Leo - 01.12.1974, Síða 1
Auglýsingablað gefið út af Lionsklúbbnum HÆNG, Akureyri
ARNI GUNNARSSON, fréttamaðui:
ÁVARP
Snorri Sigfússon, fyrruni námsstjóri, varð níræður 31. ágúst
síðastliðinn. Um það lcyti afhenti Blaðamannafélag íslands
Reykjavrkurdeild Rauða Kross íslands hinn umtalaða hjarta-
bíl, eða neyðarbíl, sem reynst hefur framar öllum vonum. —
Þegar börn Snorra fóru að hugleiða hvernig þau gætu glatt
föður sinn á afmælisdaginn, sáu þau, að Blaðamannafélagið
hafði gert grein fyrir þeim hugmyndum að safna fé til kaupa á
hjartabíl fyrir Norðurland. — Hjartabíll Reykvíkinga var gefinn
til minningar um Hauk Hauksson blaðamann, en hann var
fyrsta barnabarn Snorra Sigfússonar, sem hafði á honum mikið
dálæti.
I framhaldi af þessu fékk
Anna Snorradóttir, dóttir
Snorra, þá hugmynd, að rétt
væri að þau systkinin gæfu
stofnframlag í söfnun til kaupa
á hjartahíl fyrir Norðurland.
Hún nefndi þessa hugmynd við
föður sinn, sem ekki hafði
áhuga á persónulegum gjöfum á
afmælisdaginn. Snorri fagnaði
þessari hugmynd mjög, og eftir
að hafa heyrt hana fannst hon-
um annað ekki koma til greina.
Eftir að þau systkinin greindu
frá þessari ákvörðun vaknaði
mikill áhugi meðal vina og
frændfólks Snorra á því að stofn
framlagið yrði veglegt, og er
það nú orðið um hálf milljón
króna. Gjafir hafa borist víða
að; stórar og smáar, og til gam-
nas má geta þess, að ekkja Frey-
móðs Jóhannssonar, málara,
sem nú býr í Kaliforníu, og var
nemandi Snorra, sendi fimmtíu
dollara, er hún las um söfnunina
í hlöðunum. Af þessari hálfu
milljón hafa börn Snorra gefið
280 þúsund krónur. Svarfdæl-
ingar gáfu ríflega fjárhæð.
Fleiri, sem vildu þakka Snorra
Sigfússyni, golt og gæfuríkt
starf sendu fjárhæðir.
Hjartabíll Norðurlands verð-
ur því lengdur nafni Snorra Sig"
fússonar og Hauks Haukssonar,
barnabarns hans. Vart getur
grundvöllur söfnunarinnar ver-
ið belri. — Ekki þarf að kynna
Snorra Sigfússon fyrir lesendum
þessarar greinar. Hann fæddist
31. ágúst 1884 á Brekku í Svarf-
aðardal. Foreldrar hans voru
Sigfús Jónsson, hóndi þar og á
Grund í Svarfaðardal, og kona
hans, Anna Sigríður Björnsdótt-
ir. Snorri hlaul góða menntun
og slundaði framhaldsnám í
Danmörku, Noregi og Englandi.
Hann var heimiliskennari á Ak-
ureyri 1906 og 1907. Kennari
var hann í Arnarneshreppi
1909 og 1910. — Hann hélt
unglingaskóla í Svarfaðardals-,
Arskógs- og Olafsfjarðarhreppi
1910 til 1912. Þá var hann skóla
stjóri barnaskólans á Flateyri
frá 1912 til 1929. Hann var
kennari við barnaskólann á Ak-
ureyri 1929 og ’30 og skólastjóri
frá 1930 til ’47. Námsstjóri
harnafræðslunnar á Norður-
landi var hann 1941 til ’43 og
aítur frá 1944 lil ’54. Árið 1954
kom hann á fót Sparifjársöfnun
skólabarna á vegum Landsbank-
ans og hafði þá forystu á hendi
í fimm ár. — En það var fleira
|***H*H*H*«**H*H**»*H*H*H^**H*H*H*H*4 *♦**♦**♦**«**V*********
en skólamál, sem Snorri fékkst
við. Hann var ráðsmaður á
sumrum, síldarmatsmaður og
yfirsíldarmatnsmaður var hann
á Vestfjörðum 1916 til ’28.
Hann var í hreppsnefnd Mos-
vallahrepps og oddviti um tíma
í þeim hreppi og síðar í Flateyr-
arhreppi, þar sem hann var einn
ig formaður sóknarnefndar. Þá
var hann söngstjóri á Flateyri
og í Hohskirkju og stofnandi og
formaður Lestrarfélags Flateyr-
inga í mörg ár. Hann var for-
maður Kennarafélags Eyjafjarð
ar frá stofnun 1931 til 1954 og
þannig mætti lengi telja. Fyrir
störf sín hefur liann hlotið marg
víslega viðurkenningu. Snorri
Sigfússon hefur ritað mikið um
skóla- og menningarmál, og er
óhætt að fullyrða að fáir menn
hafa unnið skóla- og menningar
málum landsins jafnmikið gagn
og Snorri Sigfússon. Atorka
hans og dugnaður eru annáluð,
og má segja, að Norðlendingar
eigi honum margt að þakka.
Vonandi verða störf hans met
in í tengslum við söfnun þá, sem
nú er hafin fyrir hjartabíl Norð-
lendinga. — Þessi bíll verður
jafnvel ennþá fullkomnari en
bíll sá, sem Reykvíkingar hafa
eignast. Hann verður af gerð-
inni Range Rover, með drifi á
öllum hjólum og er því einkar
hentugur til flutninga í ófærð og
á slæmum vegum. — Grind bíls-
ins verður lengd um rúman
metra. A honum verður spil,
sem hefur fjögurra tonna drátt-
arkraft. Grindin verður sérstak-
lega styrkt og tvöfalt rafkerfi
verður í bílnum. Þetta verður
fyrsti sjúkrabíllinn á Norður-
löndum, sem búinn verður svo-
Neyðarbíll, svipaður þeim, sem norðlendingar fá.
nefndum hjarta-hljóðsendi, sem
tengja má við síma eða talstöð.
1 hílnum verður auk þess hjarta.
línurit, rafloststæki, slímsog-
dæla, súrefnistæki, sjálfvirkur
„súrefnisskammtari“, þrjár gerð
ir af sjúkrabörum, vaskur, full-
komin aðstaða fyrir lækni og
sjúkraliða, sjálfvirkt hitakerfi
og þannig mætti lengi telja.
Ymis hjálpartæki verða auk þess
í hílnum, sem geta komið að not
um er alvarleg slys her að hönd-
um. Á bílnum eru vinnuljós,
sem beina má að slysstað, og er
óhætt að fullyrða að engu hafi
verið gleymt af nútíma tækni,
sem getur gert sjúkruflutninga
öruggari og eykur líkur á því að
fleiri mannslífum verði bjarg-
að. — í nóvember var áætlað
verð á bílnum um fjórar milljón
ir króna, og er þá reiknað með
því að tollar og innflutnings-
gjöld verði felld niður og takist
að fá bílinn fluttan til landsins,
án endurgjalds. — Þess er að
vænta, að bíllinn verði tilbúinn
í febrúar eða mars á næsta ári.
Ljóst er, að mjög þarf að herða
á söfnuninni til þess að nægilegt
fjármagn safnist, og er það ein-
læg von Blaðamannafélagsins að
það takist. — Á þessum vett-
vangi verður ekki um það rætt
hvernig híllinn verður rekinn á
Akureyri. — Skylt er að taka
fram, að þær deilur, sem risu
um hjartabíl Reykvíkinga stöf-
uðu að miklu leyti af misskiln-
ingi og hefur það mál verið
leyst á farsælan hátt. — Þess
má að lokum geta, að hjartabíll
Reykvikinga hefur verið í stöð-
ugri notkun og hann þegar
hjargað mannslífum. — Þeir
menn, sem hafa veg og vanda af
rekstri bilsins segja hann full-
komnasta farartæki, er þeir hafi
notað og komi vart til greina
en að framvegis verði aðeins
slíkir bílar keyptir til landsins.
Má því með réttu segja, að með
kaupum þessa bíls hafi orðið
tímamót í öllum sjúkraflutning-
um.
t
*
y
y
y
y
y
y
y
y
y
y
y
y
x
i
k
X
*
y
Verðlaunamyndagáta er á blaðsíðu 3—7
\ síðum 3—7 er myndagáta. Veitt verða verðlaun að upphæð kr.
25.000 fyrir retta lausn — Sérstakur seðill er á síðu 2 og skai
úriausnin skrifuð á hann! — IJrlausnir sendist i posthólf 655 fyrir
20. desember nk. — Dregið verður úr réttum úrlausnum og verð-
laun afhent þann 23. desember.
I
x
*
?
y
I
y
:í
t
t
x