Leo - 01.12.1986, Blaðsíða 6
6 — LEO Þó að fingur sé höggvinn af nirfli, blæðir ekki
Jólin hennar Kötu
Einu sinni endur fyrir löngu átti lítil
stúlka, sem hét Kata, heima í borg
einni í Kanada. Uppáhaldstími ársins
hjá Kötu voru jólin. En í ár hlakkaði hún
óvenjuléga mikið til þeirra.
Þessi jól yrðu alveg sérstök, því að
nú var hún í fyrsta skipti nógu gömul til
þess að taka þátt í helgileiknum í
kirkjunni.
Á hverju ári komi allir nánustu ætt-
ingjar hennar í heimsókn, til að vera
um jólin.-Hver hafði sitt hlutverk á
heimilinu.
Amma átti annríkt við baksturinn og
eins við að undirbúa steikina. Afi
myndi ná í kalkúninn, sem hann hafði
verið að fita allt áriö. Pabbi hennar og
bræður hans færu út í skóg, til þess að
höggva stærsta tréð sem þeir gætu
fundið. Það yrði sko ekki amalegt jóla-
tré. En Kata, ásamt frændum og
frænkum, myndi búa til poppkorn og
svo myndu þau gera skreytingar til
þess að hengja á jólatréð. Mamma
hennar og móðursystur myndu skreyta
allt húsið með Kristsþyrni og mistil-
teinsgreinunum.
Allir kæmist í reglulegt jólaskap. Og
svona varð þetta. Kata var svo himinlif-
andi glöð. Hún fór að hugsa um Santi
Kláus. Santi Kláus var jólasveinn allra
barnanna í Kanada. Hann flaug um
stjörnubjartan himininn á jólanótt og lét
gjafir handa börnunum í sokka, sem
þau höfðu hengt upp við arininn.
En einmitt nú í ár kom dálítið hræði-
legt fyrir.
Á aðfangadag bilaði kirkjuklukkan.
Hún gat ekki hringt. En kirkjuklukkan
gegndi miklu hlutverki á jólanótt. Það
var siðvenja í borginni hennar Kötu að
hringja kirkjuklukkunni um miðnætti á
jólanóttina, til þess að segja Santi
Kláusi, að öll börn borgarinnar væru
háttuö og sofnuð, og einnig, að þau
hefðu verið þæg og góð. En ef klukkan
hringdi nú ekki, myndi Santi Kláus
halda, að börnin væru óþæg og væru
ekki sofnuð enn. Kata hafði mjög mikl-
ar áhyggjur af þessu með kirkju-
klukkuna, en enginn í borginni virtist
vita hvað að væri.
Kata sagði viö pabba sinn og
mömmu: - Ef Sankti Kláus heyrir ekki
í kirkjuklukkunni, kemur hann ekki og
það er ranglátt, því að öll börnin hafa
verið svo dæmalaust þæg og góð, allt
árið.
Mamma Kötu sagði: - Elsku Kata
mín hafðu ekki svona miklar áhyggjur,
þetta hlýtur að lagast. Farðu nú bara
að hátta og sofa eins og öll hin
börnin.
Kata gekk upp stigann. Hún var að
hugsa um, hvað hún gæti gert. Og
þegar hún hengdi upp sokkinn sinn
við arininn, svo að Sankti Kláus gæti
sett í hann gjafirnar, fór hún með dálitla
bæn, til viðbótar við þær venjulegu.
- Góði Guð, ég veit að þú heyrir til
mín. Þú veist, að allir krakkarnir hafa
verið þægir og góðir í ár. Viltu nú ekki
láta kirkjuklukkuna hringja, svo að
Santi Kláus heyri, þá fer hann ekki
framhjá borginni okkar, og börnin
verða ekki fyrir vonbrigðum á sjálfan
jóladaginn.
Kata sat viö gluggann og horfði út.
Nóttin var mjög fögur. Stjörnurnar
glitruðu hátt uþþi á himninum, og yfir
jörðinni lá nýfallin mjöllin eins og
skínandi ábreiða. Landið leit þt eins
og mynd á jólakorti.
Kötu fannst tíminn standa I stað. Það
var komið miðnætti. En rétt í sama bili
og Kata fór upp i rúmið sitt, heyrði hún
hlukknahljóm. Þetta var kirkjuklukkan,
sem hringdi. Og eins og í fjarlægð
heyrðist í sleöabjöllum, og hljómfagra
röddin hans Santi Kláusar óskaði öll-
um börnum gleðilegra jóla. Litla stúlk-
an sofnaði með sælubros á vörum. Nú
vissi hún að allt yrði eins og það átti að
vera á jóladagsmorgni. En hvað það
var, sem kom klukkunni til að hringja,
yrði víst alltaf leyndarmál.
Vinsælasti maður Islands
l ' l .jl'l llji „Ég er búinn aft i]á ivo margt »ð !|j|'|j||||l| j| l!'l!|||| I'' i'
Ómar getur sko bara alveg hætt að láta sog dreyma um að vera
áfram eitthvað toppnúmer!
Láttu ekki nokkurn mann heyra til þín strákur. Jafnvel beljurnar
pá Hallested kunna að baula á skandinavisku góði!
Markmið okkar er fiölbreytt
oq vönduð
framleiðsla
IÐNAÐARDEILD SAMBANDSINS
602 Akureyri - Glerárgólu 28 - Póslhólf 606 - Simi 21900
Kaupið Lintiu-konfekt.
Tryggið ykkur Lindu-konfekt fyrir jóiin.
Gómsætt Lindu-konfekt svíkur engan.
Veljum íslenskt.
Akureyri
Helgarferðir - Leikhús - og Operuferðir
Gistiferðir í miðri viku á Hótel Loftleiðir fyrir hagstætt verð.
Gerum verðtilboð
fyrir hópa
Ráðhustorg 3, Akureyri Tel.: 25000
FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR HF.