Neisti - 06.06.1931, Side 1
Samborgarar!
Blað það, sem kemur ykkur nú
fyrir sjónir er, eins og nafnið bend-
ir til, aðeins lítiil neisti. En það
verður neisti sannleikans, sem tendr-
aður verður í því, og hann mun
verða að því báli sem að lýsir hin-
um vinnandi lýð leiðina að hinu
setta merki. Verkamenn og verka-
konur, látið neista jafnrjettisinstendr-
ast í hugum ykkar, og verða þar að
þvi báli sem lýsi, svo að einungis
hið rjetta og sanna komist þar að.
Verkamenn og verkakonur; áldrei
hefur þöríin fyrir að gæta sannleik-
ans verið meiri en einmitt nú, og
það á öllum ^sviðum, og ekki síst á
stjdrnmálasviðinu, því að aldrei hafa
blöð andstæðinganna ofið jafn þjett
net af ósannindum og óhróðri sem
nú um stefnumál vor og foringja.
Neista sannleikans er því full þörf
og vill „Neisti“ hjálpa ykkur til að
greiða úr ósannindanetinu, og sá
neisti sem að þá kemur í ljós, er
neisti sannleikans, fylkið ykkur um
hann samborgarar góðir.
Sjaldgæft
tækifæri.
Undanfarin 10—15 ár höfum við
Siglfirðingar farið fram á þá sjálf-
sögðu rjettarbót ókkur til handa
við Alþingi, að fá sjerstakan þing-
mann. Pessar óskir hafa allan þenn-
an tíma verið fyrir borð bornar.
Bæði þingmenn kjördæmisins og
aðrir á lögþingi þjóðarinnar hafa
virt þessa sjálfsögðu kröfu okkar að
engu. Við kosningarnar hjer í
sýslunni í þetta sinni eru fleiri fram-
bjóðendur en nokkru sinni fyr.
Allir sem fylgjast eitthvað með í
þessari kosningabaráttu hjer í sýsl-
unni, vita það, að Framsóknarflokks-
þingmennirnir eru vissir að ná
kosningu og fá altaf 60—70 prc. af
öllum atkv. kjördæmisins.
Okkur Siglfirðingum gefst því við
þessar kosningar sjerstakt og sjald-
gceft tækifœri til þess að nota kjör-
daginn 12. j ú n í bænum okkar til
sjerstaks gagns, og það er með því
að sýna það þá, að okkur sje full-
komin alvara með að knýja fram
sjerstakan þingmann fyrir Siglufjörð
á næstu árum, verði svipaðri kjör-
dæmaskipun haldið við sem nú er,
þannig að hver þinghá hafi sinn
þingmann.
Leiðin til þess að framkvæma
þetta er ofur einföld. Pað þarf ekki
annað en við kjósum öll Guðm.
Skarþhjeðinsson og einhvern annan
með honum því kjúsa verður tvo,
svo kjörmiðinn sje elcki ógildur.
Á þennan hátt eigum við nú við kosn-
ingarnar 12. júní aðbeita atkvæðis-
rjetti okkar til að knýja fram þær
rjettarbætur okkur til handa, sem
okkur hefir til þessa vérið synjað
um í krafti ranglætisins. Pessar
rjettarbætur eru:
Sjerstakur þingmaður fyrir
Siglufjörð.
Að það sje hættulaust frá pólitísku
sjónarmiði sjeð, að beita þannig at-
kvæðisrjetti sínum hjer, nú við
kosningarnar, þori jeg sem kunnug-
ur að fullyrða, og það erafþví, að
Sjálfstæðismenn hafa hvort sem er
ekki nægilegt atkvæðamagn til að
koma að manni í kjördæminu, og
Kommúnistar því síður, og Fram-
sókn hefir yfirdrifið atkvæðamagn í
sýslunni, utan Siglufjarðar, til að
koma að sínum mönnum, f>ó hún
fengi hjer ekkert einasta atkvæði.
Að þessu athuguðu er það sýni-
legt, að Siglfirðingar geta aðeins á
einn hátt gert gagn með sínu at-
kvæði 12. júní og það er með því
að stíga nú sameinaðir það skref,
sem hefði átt að stíga fyr, og það
er að sýna það í verkinu að okk-
ur er alvara að knýja fram þessar
rjettarbætur okkur til handa, en sem
þingið til þessa hefir haldið fyrir
okkur.
Ur því við getum þetta nú, þá
t
Jakobina Jónsdóttir Stœr
ljósmóður,
andaðist föstudaginn 5. þ. m.
Jakobína sáluga var búin að vefa
Ijósmóðir hjer í 38 ár.
Blessuð sje hennar minniíig.
eigum við að nota tœkifærið sem
hjer gefst. Okkur er þetta náuðsyn-
legt, til að koma fram ýmsum okk-
ar málum, sem á undaförnum þing-
um hafa verið svæfð eða alveg
gleymst. Siglfirðingar! Að lokum
minnist þess, að kjördagurinn 12.
júní er baráttudagur þjóðarinnar.
Gerum hann um leið að baráttu-
degi Siglufjatðar, bæjarins okkar,
og undirbúum honum til handa
þau sjálfsögðu rjettindi er við eig-
um, ril áhrifa á lögþingi þjóðar-
innar.
Sigurvænlegasta vopnið í þessari
baráttu fyrir Siglufjörð er það, sém
jeg hefi bent á,.og það er að við kjús-
um öll Guðnmnd Skarf>hjeðinsson,
með öðrum manni, svo að hann
fái það atkvæðamagn er sýnir þing1
flokkunum fyllilega þá einurð og
þann sameiginlega vilja okkar Sigl-
firðinga fyrir þessu sjálfsagða metn-
aðarmáli okkar.
Pingmaður fyrir Siglufjörð.
Garnall Sigljirðingur.
Tölurnar tala.
Hvað er sannleikur?
Pað eru margir, sem hafa gaman
að tölum og leika sjer með þær eins.
og börn, þeir raða þeim fram og
aftur og fá þá út ýmsar myndir og
líkingar, og mönnum verður á að
trúa þegar tölumyndirnarkoma fram,
næstum því hvernig sem þær eru,
og nota svo tölumyndirnar sem
sönnunargögn. „Tölurnar tala“ og
„þa? er starðfræðislega sannað"
segja þeir.