Bílddælingur - 02.02.1952, Qupperneq 9
Jónsson um nokkurt skeið, ]þótt ljómi hans sé nú mjög tekinn að dvína.
Nú e,r enn ný stjarna á loft komin, stjarna Esphdlíns, Jjótt.hér um
slóðir seu aðeins fylgitungl hennar sýnileg, sem hafa þann kost fram
yfir önnur tungl, að þau lysa á daginn, og eru auk þess aldrei ný
eða hálf, heldur skarta stöðugt í fullum ljóma.^ Pyrir þá sem trúa
jþví, að örlög þeirra seu skráð í stjörnunum, hlýtur það að verða mik-
il opinberun er Esphólín birtist hér sjálfur, hvenær sem það kann að
verða, en þangað til verða menn að reyna að ráða það af ljóma fylgi-
hnattanna, hvað fram undan sé. Ekki er það ótítt að stjörnur "ein-
staklingsframtaksins" skíni allskært um stundarsakir, og kann það að
vera einhverjum huggun í atvinnuleysinu, að gera sér í hugarlund þá
geisladýrð,er hér um Bíldudal muni leika fyrr en varir, en til þessa
hefur sú dýrð jafnan tekið enda og oftast skilið mannfolkið eftir í
skammdegismyrkrinu, starandi eftir halastjörnu eða urðarmána, sem óð-
um fjarlægist og hverfur í sortann.
hEGAE GRÖÐASJÓNARMIÐIÐ RÆÐUR svo sem jafnan er í einstaklingsrekstri,
•---------—------------------kemur það oftast allgreinilega í
ljós, að hagsmunir verkafólksins, hinna raunverulegu skapenda gróð-
ans, eru harla lítils metnir. Hvað sem segja má opinberum rekstri
til foráttu eins og honum er stjórnað. af andstæðingum þess fyrirkomu-
lags, eins og t.d. Frystihúsinu hér á Bíldudal undanfarinn áratug,
verður það ekki af skafið, að stundum hefur tillit verið tekið til
atvinnunauðsynjar verkafólks. hví mun sumum hafa þótt einkennilega
við bregða í vetur, skömmu eftir að Esphólín hafði tekið við rekstri
hússins, er verkstjóri þess og skrifstofumaður voru settir til vinnu
við störf, er verkafólkið hafði jafnan áður unnið,, einnig undir um-
sjá sama forstjóra s.l. sumar. Mörgum mun hafa þótt það býsna hart,
er atvinnuleysið svarf fastast að í desember og janúar, að þossir
menn væru dögum saman við vinnu er verkafóLkdjm. tilheyrði samkvæmt
forgangsréttarákvæðum gildandi kaupgjalds- og kjarasamnings, enda var
mál þetta tekið fyrir af stjórn V.l.f. "ViLRNAR", eftir að formaður
félagsins hafði án árangurs mótmælt þessu framferði við forstjórann.
Eftir að félagsstjórnin hafði ítrekað mótmælin bréflega barst henni
svar forstjórane, þar sem hann telur það "að sjálf3ögðu, að fast-
ráðnir menn fyrirtækjisins, hvort sem er verksmiðjustjóri, framkvæmda-
stjóri eða hvaða nafni sem staða hans kann að nefnast, vJLxmi fyrir-
tækjinu hvað því er fyrir beztu," og tilkynnir, að þeim hætti verði
haldið "í Hraðfrystihúsinu hér undir stjórn núverandi forstjóra, nema
að hreinn úrskurður frá Félagsdómi liggi fyrir um, að hér sé um samn-
ingsbrot að ræða." - Að svari þessu fengnu fól^stjórn félagsins Al-
þýðusambandi Islands að leggja mál þetta undir úrslcurð Félagsdóms.
Af þessu er augljóst,-hvað sen um hagsýni og samvizkusemi sama
forstjóra má segja er hann stjórnaðisama fyrirtæki fyrir Suðurfjarða-
fjarðahrepp -, að hér eru hagsmunir atvinnurekandans settir öllu of-
ar, jafnvel svo að samningsbundin atriði er tryggja eiga verkafólkinu
sinn hlut, eru sniðgengin og brotin. Hér verða ekki dregnar frekari
ályktanir af atriði þessu, hvað sem síðar kann að verða gert, en vert
að benda á,að í atviki þessu kemur fram sjónarmið "einstaklingsfram-
taksins" og stefna, sem mörkuð er af hagsmunum ]dqss, en samlcvsemt því
er og verður framkoman gagnvart verkafólkinu, rétti^þess og hagsmun-
um. Og út frá reynslu næstliðinna og næstkomandi mánuða verða menn
að gera upp við sig,hvort æskilegt geti talizt,að fela "einstaklings-
framtakinu" áframhaldandi yfirráð yfir lífsafkomu Bílddælinga.
- Framhald á næstu síðu. -
1952 -
- BÍLDDÆLINGUR -
- 9. síða.