Neisti


Neisti - 27.09.1945, Page 4

Neisti - 27.09.1945, Page 4
4 N E I S T I ! i fKa Birgið yður vel upp með vatvöru til vetrarins.. ^ Ivomið með afgang skömmtunarseðianna og N kaupið þær fyrir mánaðarmót. Það borgar sig. § Sel á næstunni „Gullauga“ úrvalskartöfliir — g pantið þær og setjið í kartöflugeymsluna. Við merkjum þær og sendum þær þangað. síma í 165. GESTUR FANNDAL Bara I s Undir þessari fyrirsögn mun les- endum „Neista gefinn kostur á ]»ví, að fá glefsur úr því, sem birt- ist úr liinum blöðunum, sem gefin eru út liér í Siglufirði. ★ í 37. tbl. Siglfirðings birtir rit- stjórinn Jón Jóhannesson vel skrif- aða, rökfasta og skelegga grein um skrif kommúnista vegna þess, að úrskurður setufógeta í Kaup- félagsmálinu ekki gekk þeim í vil. Segir þar meðal annars: „Það er ekki óalgengt fyrirbæri, og raunar mannlegt, að menn sem þola varla dóm, er gengur á móti þeim, halda því fram, og jafnvel trúa því sjálfir, að sá dómur sé rangur. Þar sannast vel málshátt- urinn: „Blindur er hver í sjálfs sins sök.“ — Þessi skoðun er mannleg, en hún er óskynsamleg. Ef dómur er studdur sterkum rök- um, styðst við lög þau, er um deilu- atriðið gilda, og þann skilning, sem má ætla, að löggjafinn hafi haft í huga, er hann samdi lögin, þá get- ur 'ekki hjá því farið, að heilbrigð skynsemi segi okkur, að sá dómur sé í höfuðatriðum nærri hæfi. Allt þetta á við úrskurðinn í Kaup- félagsmálinu.“ ★ Hér má skjóta því inn í, að kommúnistar telja allt rangt, sem fer í bága við skoðanir þeirra og framkvæmdir. 1 umræddri grein segir J.J. enn- fremur: „Dómsmálaráðherra er æðsti maður dómsvaldsins í landinu, sam kvæmt stöðu sinni. Gunnar Pálsson er fulltrúi dómarastéttarinnar í landinu í máli þessu. Dómarastétt landsins nýtur t’rausts og virðing- ar með þjóðinni og ekki hvað sízt Hæstiréttur. — Þeijr Finnur Jóns- son og Gunnar Pálsson eru því ekki stimplaðir einir, og ómaklega þó, með svívirðingarummælum Þjóðviljans og Mjölnis, heldur er það stéttin öll, sem blöð þessi vilja brennimerkja, ef nokkur tryði þeim. Hér kemur og annað til greina, sem er ekki síður alvarlegs eðlis. Bak við ummælin liggur það, að hver sá, sem dyrfist að fella dóm eða úrskurð gegn því, sem kommúnistum er skapfellt, skuli fá hinn sama vitnisburð í blöðum og af munni kommúnista, sem þeir hafa nú fengið þessir tveir menn, Hæstiréttur þar meðtalinn. Það er því með slíkum ummælum gerð hatrömm tilraun til ]>ess að rýra virðinguna .fyrir og traustið á dómsvaldi landsins. „Ég er þeirrar skoðunar, að kommúnistar skjóti með þessu langt yfir markið. Eg trúi því af sannfæringu, að slíkar dulbúnar hótanir hafi ekki áhrif á dómara landsins né á Hæstarétt, en tilraun in vekur viðbjóð hjá öllum hugs- andi mönnum. — Ef þjóðin fyrir alvöru færi að trúa því,_ að réttar öryggið i landinu væri 'lítils- eða einskis virði, þá er hún á hættu- legri braut.“ Engum þarf að koma það á óvart, þó að kommúnistar reyni að veikja trú þjóðarinnar á réttar- öryggi landsins. Enda þótt þeir nú um stund vilji telja landsfólkinu trú um löghlýðni sína og lýðræði, er það apdstætt skoðunum þeirra og trúarbrögðum. Það eitt er að þeirra áliti rétt, sem þeir fram- kvæma og segja. Það, sem er and- stætt því er fordæmanlegt, órétt- læti, einræði — fasismi eða eitt- hvað enn verra. Veiking dómsvalds ins og truflun réttaröryggisins er eitt af jesúitameðölum þeirra til þess að skapa glundroða í þjóðfé- laginu, sem leiða á til valdaaðstöðu flokks þeirra. ★ I ritstjórnargrein í 37. tbl. „Mjölnis“ er að finna eftirfarandi gullkorn: „------Vitanlega er það ekkert athugavert, þótt ráðherra, sem á að vaka yfir velferð og eflingu út- gerðarinnar, eigi einhverra pers- ónulegra hagsmuna að gæta í út- gerð. Þetta væri sama og ráðast á formann verkalýðsfélags fyrir það, að hann ynni að hækkun kaups verkamanna, þar sem hann hefði sjálfur hag af því, að kaup hækkaði.“ , Einhverntíma hefði það þótt fyrirsögn, að svona ummæli mjmdu birtast í blaði kommúnista, hinna skeleggu-! forsvarsmanna verka- lýðsins. En hér bólar kannske á spádómi vegna frekari aðgerða til þess að hjálpa útgerðum Þórodds og Áka. En meðal annarra orða. Man nú enginn ummæli „Mjölnis" og annarra blaða kommúnistanna, þegar Ólafur Thors var atvinnu- málaráðherra, og gerðar voru „ráð stafanir til að bjarga útgerðinni" ? Laukur Sítrónur Appelsínusafi , Eplasafi Hnetur 0 Ilollur og góður matur % GESTUR FANNDAL Hvernig er bókhaldið hjá kommúnistum í K.F.S. ? Á það var bent í þessu blaði fyrir nokkru síðan, hver házki það væri fyrir jafn stórt fyrirtæki og K.F.S. að ráða fyrir aðalbókara mann, sem ekki kynni bókfærslu og væri ófær til starfans, að dómi kaupfé- lagsstjórans. Var þetta ekki sagt til persónulegs lasts manninum sjálfum, því að hann lýsti því þegar í byrjun, að hann hefði ekki æskilega þekkingu eða kunnáttu til starfans. Þessa gagnrýni þoldu kommúnistar ekki, og rálíu ábyrgð armann blaðsins úr kaupfélaginu. Nú hefir blaðið sannfrétt, að í ljós hafi komið við upptalningu og af- hendingu félagsins, að bókfærslu þess hafi verið mjög ábótávant. Stór upphæð yfjr í sjóði, sem fyrr- verandi kaupfélagsstjóri var talinn eiga, og algerlega ómögulegt að gera sér nokkra grein fyrir kola- birgðum "félagsins. Gegnir það mestu furðu, að þetta skuli koma fyrir og ekki sízt þar sem talning og birgðakönnun kom ekki óvænt eða fyrirvaralaust. Annars heimtar almenningur öll plögg á borðið og að tafarlaust verði látin fram fara rannsókn á því, sem athugavert er. Þeir verða að svara til ábyrgðar, sem ábyrgðina bera, og engum á að hlífa. Margskonar orðasveimur gengur um bæinn, og er jafnvel þegar orðinn að umtalsefni blað- anna. Þetta á að upplýsa. Ef að það er óréttmætt, sem sagt er manna á milli um þessi mál, þá á að hrekja það. Kommúnistar eiga þar að njóta fyllsta réttar sem aðrir. Upptalningarbækur yfir vörur þær, sem keyptar voru af Önnu og Gunnu og Geislanum hljóta að vera til staðar, og þá hægur vandi að meta verðgildi varanna. Reikningar yfir hinar lítt seljanlegu kápur, sem Þórodd- ur keypti í Reykjavík, hljóta einnig að sýna greinilega hvernig þau kaup eru gerð. Enginn hula á að hvíla yfir aðgerðum kommún- istanna, eða annarra, þeim, sem átaldar eru. Það er bezt fyrir alla aðila, að það upplýsist, satt og rétt, undanbragðalaust, sem allra fyrst. Þrír efnððir menn!! „Hvern fjandan eruð þið að rífa kjaft yfir því, þó að Rauðkustjórn hafi skrifað upp á smávíxil fyrir félag mitt og Áka,“ má lesa milli línanna hjá Þóroddi í seinustu „Mjölnir“, þegar þrír efnaðir menn skrifuðu líka á blaðið. Siglufjarð- arkaupstaður má þakka fyrir að fá að vera með á víxilblaðinu, þegar „þrír efnaðir“ Reykvíkingar láta svo lítið að þiggja það. Þetta eru nú heldur engir smákarlar. Sjálfur atvinnumálaráðherrann, Áki Jakobsson, Steinþór Guð- mundsson togaramaður og skóla stjóri — einu sinni á Akureyri — og Sigurður Thoroddsen verkfræð- ingur í Reykjavík. Það þurfti svo sem ekki að hafa þá dinglandi þarna, fyrir framan eða aftan hann Ragnar „mág“, Schiöth apó- tekara og Gunnar Jóhannsson. Enda hefði ekkert gagn verið að þeim, ef að ekki hefði verið settur lítill stimpill fyrir ofan. Það hefði víst engum verið hin minnsta þægð í því að hafa þá dinglandi með þessum „þremur efnuðu“, nema þá helzt Schiöth. En meðal annarra orða. Hvenær varð nú Áki efn- aður? Eiginlega er ómögulegt að sjá það af skattaskránum í Siglu- fjarðarkaupstað eða Reykjavík. Það kemur víst varla til mála, að sjálfur atvinnumálaráðherrann hafi gleymt að skrifa „efnin“ á framtalsblaðið, úr því að Þóroddur mundi eftir að telja hann meðal hinna „þriggja efnuðu“, sem skrif- uðu á litla 130 þúsund króna víxil- blaðið, sem Rauðkustjórnin ábyrgð ist fyrir útgerðarfélagið hans Þór- odds og Áka „efnaða".

x

Neisti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.