Neisti - 08.03.1946, Page 1
NEISTI
tJtgefandi Alþýðuflokksfélag
Siglufjarðar.
Ábyrgðarmaður:
ÓLAFUR H. GUÐMUNDSSOJN
Sigluf jarðarprentsmiðja
11. tbl. Föstudaginn 8. marz 1946
14. árgangur
Frá »Þrótti
«
„Þróttur sagði upp samningum við atvinnurekendur í vetur,
frá og með 1. marz. Samningar eru ekki hafnir, en á félagsfundi
þann 27. f. m. voru samþykktar þær breytingar, sem félagið fer
fram á frá eldri samningum. Eru þær þessar:
I. Á tímabilinu 1. maí til 1.
nóvember. skal dagvinnu lokið
kl. 12 á hádegi á laugardag. Á
sama tímabili skal dagvinna
vera til kl. 4,30 eftir hád. fimm
daga vikunnar og greiðist hálf-
tíminn með dagvinnu taxta. Öll
vinna, sem unnin er á laugardag
eftir hád. greiðist sem eftir-
vinna.
II. Sé unnin eftirvinna skal
kaffitíminn vera kl. 4,30 til 4,45
III. Lágmarkskaup skal vera
sem hér segir: Almenn dag-
vinna kr. 2,75 á klst.
Skipavinna, þróarvinna, vindu
menn, öll steypuvinna, handlöng
un hjá múrurum, lagermenn,
járnabeyingarmenn, gerfismið-
ir, sem leggja sér til verkfæri
kr. 3.00 á klst.
Vinna við kol, salt, út- og upp-
skipun á sementi og hleðslu þess
í vörugeymsluhús, dixilmenn, er
verið hafa við tilslátt á síldar-
tunnum í minnst tvö sumur,
ketilkyndarar, þurrkarakyndar-
ar, kolalempárar, allur flutning-
ur á möl og út- og uppskipun á
möl í bing og úr bing, og losun
síldar og síldarúrgangs úr skip-
um og bátum kr. 3,30 á klst.
Boxa- og katlavinna kr. 4,00
á klst.
Unglingataxti frá 14—16 ára
kr. 2,10.
Mánaðarkaup.
Álít að sex mánuði kr. 550,00
Sex til tólf mánuði kr. 530,00
Kyndarar og aðrir, sem falla
undir þann lið kr. 650,00
Þróarmenn og aðrir, sem falla
undir þann lið kr. 600,00
Malar- og grjót 'taxti:
Fyrir möl á bryggju komna
kr. 2,25
Fyrir pr. ten. faðm. grjót á
bryggju komið kr. 115,00
Öll eftirvinna skal greidd með
60% viðauka.
Næturvinna.
Næturvinna reiknast frá kl.
10 að kvöldi til kl. 7 að morgni
og greiðist með 100% álagi mið-
að við dagvinnukauptaxta.
Vinnutrygging.
Síldarverksmiðjurnar skulu
tryggja öllum verkamönnum,
sem hjá« þeim vinna minnst
fjögra til fimm mánaða vinnu
samfleytt. Síldarsaltendur skulu
tryggja verkamenn, sem hjá
þeim vinna, minnst þriggja til
fjögra mánaðar vinnu sam-
fleytt.
Þeir atvinnurekendur, sem
tryggja verkamenn, sem hjá
þeim vinna eftir þessum reglum,
skulu undanþegnir að greiða
næturvinnukauptaxta til þeirra
rnanna, sem tryggðir eru yfir
ráðningartímabilið.
Vaktavinna.
Þegar síldarbræðsla hefst í
verksmiðjunum skulu allir, sem
við þær vinna og eru ráðnir
fyrir mánaðarkaup kallaðir út á
vaktir og má ekki leysa þær upp
fyr en öll síld, sem verið hefir og
komið hefur til bræðslu er upp-
brædd. Útimenn skulu kallaðir á
vaktir þegar öll löndunartæki
hafa verið tekin í notkun í
hverri verksmiðjusamstæðu
fyrir sig.
Skipavinna. •
Liðurinn haldist óbreyttur
eins og hann er í verkakaups-
samningi Þróttar við Vinnuveit-
endafélag Siglufjarðar að því
viðbættu, að út- og uppskipun
á tómtunnum og síldartunnum
reiknist sem skipavinna.
Önnur atriði. Aðrir liðir kaup-
taxtans séu óbreyttir frá því,
sem áður hefur gilt. Þó áskilur
verkamannaféiagið sér rétt til
þess að koma með ákveðnara
orðalag við hina ýmsu liði kaup-
taxtans, svo sem um vinnu og
öryggisútbúnað á vinnustöðvum
og um rétt verkamanna til vinnu
áfram á þeim stöðum og við þau
verk, sem þeir hafa unnið við
áður.
LEI0KÉTTING
I síðasta tölublaði Mjölnis féll
niður og ruglaðist greinin mn
tryggingar í Síldarverksmiðjum
og síldarplönum. Tryggingin í
verksmiðjunum á að vera 4 til
5 mánuðir og á síldarplönum 3
til 4 mánuðir. Þetta eru menn
góðfúslega beðnir að athuga.
Annars eru tillögurnar birtar
hér sem lieild núna í Neista.
Siglufirði, 7/3 1946.
STJÖRNIN
Frá bæjarstjórn
„Neisti hefur lofað að skýra lesendum sínum frá því, sem
gerist í bæjarstjórninni, sem sögulegt getur talizt, jafnóðum og
hægt er.
Þær fréttir, sem blaðið liefur að flytja nú, eru þessar: Um
síðustu mánaðarmót var útrunninn sá frestur, sem bæjarstjórn
hafði ákveðið til mrisókna um bæjarstjórastarfið. í endir þess
frestar bað Alþýðuflokkurinn um þriggja daga frest, en um svipað
leyti barst beiðni frá Sósíalistaflokkmun, þar sem liann bað um
14 daga frest. Málaleitun sú var samþykkt og hefur því fresturinn
til umsóknar um bæjarstjórastarfið verið framlengdur til 14 eða
15 marz, og Hertervig verið ])ví ráðinn bæjarstjóri áfram til marz-
loka.
Einnig hefur náðzt samkomulag xun launakjör starfsmanna
bæjarins í flestum greinum.
Fréttir af sigifirzku
skíðamönnunum í Svíþjóð.
Eins og öllum Siglfirðingum er kunnugt,
dvelja þeir Jónas Ásgeirsson og Haraldur
Pálsson úti í Svíþjóð við skíðanám. Þann
10. f.m. tóku þeir þátt í stökkkeppni í
Östersund með ágætum árangri. Blaðið
hefur snúið sér til vandamanna skíðamann-
anna til þess að fá fréttir af þeim félögmn.
Eftirfarandi kafli úr bréfi Haraldar segir
frá stökkmótinu í östersund og fleiru:
„Við kepptum í ,Internatonel‘ (Alþjóða)
stökkkeppni 10. febrúar. Keppendur voru
frá Svíþjóð, Finnlandi og íslandi. Brekku-
metið er 59,50. Við komum úr 15 m. stökk-
palli í Storlein og kepptum í 60 m. palli
í Östersund. Við æfðum í viku í öster-
sund á stórpallinum. Sumir dagarnir féllu
úr vegna veðurs. Það var „agaleg liolling“
á okkur fyrstu æfingarbrekkurnar, en
alltaf stóðiun við. Stökklengdin rnn 40 m
af miðpalli í aðrennslu-brautinni. Á laug-
ardaginn fyrir mótið vonun við komnir
í 50 m., en þá var ágætis veður. Stíllinn var
samt aldrei góður; vantaði meiri legu í
loftinu. Það gerir hinn mikli þrýstingur I
svona stórum bökkum, sem við erum alveg*
óvanir. Þegar stökkið fór fram var hríð og
stormur og maður sá bókstaflega ekkert.
Finnland fékk 1. sæti. Svíþjóð öll næstu
sæti að Jónasi, sem var 11. og ég 19.
Keppendur voru 40. Lengsta stökk var
55 m. Jónas stökk 43 m og 46 en ég 40 m
og 42,5 m. Þeir, sem voru vanir stökk-
bakkanum og þekktu inn á hann, þeim
gekk bezt. Við fengum góða dóma, því að
þeir hafa víst ekki búizt við svo miklu af
okkur innan um þeirra beztu menn.
Jónas segir í bréfi, að síðustu dagana,
sem þeir félagar voru í Storlein, fór þar
fram innanliéraðs-keppni í svigi. Var þeim
félögum boðið að fara svigbraut keppend-
anna og fóru þeir á tveim beztu tímunum.
Haraldur var 39,8 sek, en Jónas 40,2 sek.
Ennfremur segir Jónas frá því, að sér hafi
verið boðið á stökkkeppni 10 ]). m. (á
sunudaginn kemur). Þar munu mæta fræg-
ustu skíðastökkmenn Svía og Norðmanna,
þar á meðal þeir Birgir og Asbjörn Ruud.
Ekki lætur Haraldur neitt uppi um það í
bréfiun sínum, hvort liann muni taka þátt
í þessu móti.
Allir Siglfirðingar gleðjast yfir þeim
árangri, sem þeir félagar náðu í hinni
fyrstú keppni sinni á erlendri grund og
vona eftir enn betri fréttum frá þeim. Það
minnsta, sem bæjarfélagið getur gert fyrir
þá, sem bera liróður þess uppi, er það að
afgreiða þau mál, fljótt, sem koma frá
þeim mönnum, og þannig, að virðing sé að.