Neisti - 28.02.1947, Qupperneq 3
NEISTI
3
Fyrirspurmr
Bréf
%
t
Gilslaugar-rabb í kaffitímum — Pósthúss-
tröppurnar — Enn um Bíó.
Eftirfarandi bréf barst mér fyrir
nokkrum dögum:
„í kaffitimanum í morgun var mér
faliö aS skrifa þér nokkrar línur, fijrir
hönd nokkurra verkamanna, sem hafa
lesið dúlka þina, síSan þeir fóru flð
birtast í Neista. UmrœSuefni okkar
var viSvíkjandi Sigurjóni Ósland, sem
var starfsmaSur Gilslaugar súliigii. —
Spurull skrifaSi þér um þetla, og
spurSi þig hvort þaS væri satl, flð
Gilslaug, eða Þóroddur GuSmundsson
á- Co, heffii ekki greitt honum vinnu-
laun, þannig að Sigurjón hefói útt
iiuii hjá þessu brask-félagi um 15
jjúsund krónur. ViS förum þess góS-
fúslega ú leit viö Jiig, að þú svarir
okkur, hvort þetta er satt eSa ekki.
ViS vorum einu sinni samverkamenn
Sigurjóns og finnst húlfvegis nð viS
eigum heimtingu á aS vita sannlieikann
um þetta. 1
V erkamaSur.“
Þegar Sigurjón hætti störfum hjá
H.f. Gilslaug í fyrravetur átti liann
inni hjá fyrirtækinu milli 14 og 15
þús. króna vinnulaun. Hann mun hafa
falið Alfons Jónssy-ni innheimtu á
þessu fé. Uppgjöri á þrötabúi Gils-
laugar er enn ekki að fullu lokið, en
mjög ólíklegt verður að teljast, að
Sigurjón fái laun sín greidd þaðan,
þar sem meira hvíldi á Gilslaug með
fyrsta veðrétti, en eignir liennar seld-
ust fyrir á nauðungaruppboðinu.
Þar sem stjórn H.f. Gilslaugar var
það fullkunnugt hve fyrirtækið var
fjárhagslega illa stætt, verður að telja
að henni hafi borið siðferðileg skylda
til þess.að greiða Sigurjóni vinnulaun-
jn jafnóðum ineð andviröi seldra af-
urða eða tryggja honum greiðslu
þeirra á annan hátt: Þetta hefir
þrenning „verkalýðsvinanna“ i stjórn
H.f. Gilslaugar látið undir liöfuð
leggjast, og verður sú smán ekki af
skafin.
Bezti Þórður!
Af öllum þeim ÞórSum, sem ég
þekki finnst mér þú ætla að verSa
beztur. ASeins nokkrar liniir, ÞórSur.
Eg er ungur aS árum og langar til
þess aS verSa gjunall. Svo er víst um
fleiri.
Einhvern veginn er þaö saml
þannig, aS fara npp og niSur tröpp-
urnar hjá Pósthúsinu vekur ugg í mér
um þaS, aS nú sé minn siSasti tími
kominn. Getur okkar ágœti Pósthús-
stjóri ekki séS um, aS þessar tröppur
séu oftar mokaSar og betur hatdiS viS,
þvi aS i snjó og frostum eru þær stór
hættulegar. Eg veit, aS Jörgensen
bregzt vel viS þessari ósk minni. MeS
margfaldar þakkir fgrir birtinguna.
Bæjarbúi
Ef ég man rétt, sá ég þess einhvern-
tíma getið í einu bæjarblaðanna, að
hestarnir, sem þá þrömmuðu ásamt
mannfólkinu um götur Siglufjarðar,
hafi „spásserað" yfir Pósthúströpp-
urnar, -— upp öðrum megin, niður
hinum megin. Eins og þessar tröppur
hafa verið að undanförnu, væri slíkt
ekki á færi annarra hesta en skafla-
járnaðra gæðinga, og verður það senni
lega að teljast afturl'ör. Já, Jörgensen
má fara að „gera hreint íyrir sínum
dyrum“.
Kærl Þórður!
Dálkarnir þínir eru nú þegar orSnir
mjög athgglisverSir og skemmtilegir.
Bréfin, sem þú hefur fengiS finnsi
mér ágæt og sjálfur erlu áreiSanlega
skemmtilegur karl. Gaman væri aS
vita hver þú erl. Sumir halda, aS }>ú
sért Gunnlaugur Hjálmarsson, Ólafur
GuSmundsson, Jóliann Möller eSa
Gísli SigurSsson. HvaS um þaS. Hver
sem þú ert, þá lœturSu ekki þessar
línur lenda í ruslakörfunni þinni, þvi
auSvitaS áttu stóra ruslakörju.
BréfiS frá S.O.S. í síSasta pistli þin-
um var ágætt. Þetta meS seturnar í
Nýja Bió sætunum er „hreinasta
hneyksli“. Mikill fjöldi af sætunum er
alveg setulaus, og mætti þe^ssvegna
taka undir meS Gísta, Eiriki og Helga,
aS botninn væri suSri í BorgarfirSi.
ÞaS er. staSreynd, aS síSan sýning-
um var hæll í SiglufjarSarbíó hefur
myndavali hjá Nýja Bíó mjög hrakaS.
Gelur eigandi Nýja Bió ekki fengiS
hingaS bezlu myndirnar frá kvik-
myndahúsunum í Reykjavík? Nýja-Bíó
verSur aS fá sér betri myndir annars
hætta SiglfirSingar aS sækja þaS. —
Takist eigandanum, auk annarra lag-
færinga, aS fá betri myndir þarf hann
engu aS kvíSa um aSsókn.
Bíó-gestur
Eg held, að það væri rétt, hréfrit-
arar góðir, að gefa eiganda Nýja Bíó
nokkurra daga tóm til þess að lag-
færa það, sem þið hafið fundið að.
En sjáist þess ekki merki, eftir. svona
einn mánuð, að liann hafi látið sér
segjast við það sem komið er, verðum
yiS aS laka lxann alvarlega til bæna.
Þórður Þögli
Skvrsla bæjarstjóra
(Framliald af 1. síðu).
Hinsvegar var mér af skiljanleg-
um ástæðum erfitt að vinna máli
þessu fylgi innan annarra þing-
flokka. Sat ég mig þó ekki úr færi
um að hafa áhrif á þingmenn ann-
arra flokka, er ég þekki persónu-
lega.
c) Hjá húsameistara ríkisins
var bráðabirgðauppdráttur sá af
sjúkrahúsinu, sem verið hefur hér
til meðferðar í bæjarstjóminni, og
sjúkrahúslæknir og bæjarverkfræð
ingur gert sínar athugasemdir við.
Húsameistari tjáði mér, að upp-
dráttur þessi myndi aldrei hafa
komið fyrir augu landlæknis. Ætti
þó upptaka sjúkrahúsbygginga að
vera sú, að bæjaryfirvöld í sam-
ráði við læknir staðarins óskuðu
eftir því við landlæknir, að hann
mælti með því við heilbrigðisráðu-
neytið, að það gæfi samþykki til
byggingarinnar, og ráðuneytið fæli
síðan landlækni að útvega teikn-
ingu í samráði við húsameistara
Þikisins. Með það fór ég til land-
læknis. Óskaði hann eftir því, að ég
skrifaði sér bréf um beiðni um
leyfi til sjúkrahússbyggingar, sem
ég og gerði. Innan nokkurra daga
hafði landlæknir fengið leyfi heil-
brigðismálaráðuneytisins fyrir
byggingunni.
En þegar til kom, reyndist land-
læknir ekki allsskostar ánægður
með uppdráttinn. Áleit hann ekki
nægilega vel séð fyrir heppilegu
fyrirkomulagi á uppdrættinum
með tilliti til heilsuverndar. Á
bráðabirgðauppdrættinum var gert
ráð fyrir sömu stofunum fyrir heil-
brigða og sjúka til ljóslækninga,
berklaskoðunar o. þ. h. Vildi hann
fá því breytt, en það krafðist þess,
að taka varð um helming starfs-
mannaherbergjanna af og leggja
þau undir heilsuverndarstarfsem-
ina. Er það tillaga landlæknis, að
byggt verði sérstakt hús fyrir
starfsfólkið. — Til þéssara-breyt-
inga verður sem allra fyrst að
taka afstöðu í bæjarstjórn í sam-
ráði við sjúkrahússlæknirinn.
d) Það munu fleiri bæjarfélög
en Siglufjörður eiga erfitt með að
standa við gerðar skuldbindingar
í sambandi við kaupin á togurum
þeim, sem fyrr'verandi ríkisstjóm
lét smíða i Engiandi. Samkv. lög-
um lánar ríkissjóður bæjarfélög-
unum 75% af kaupverði þeirra,
gegn 15% framlagi. Um það, sem
þá er eftir, einn tiundahluta kaup-
verðsins mun svo hafa verið
ákveðið, að fjármálaráðherra
skyldi ákveða, hvort ríkið bein-
línis lánaði þá upphæð eða veitti
bæjarfélögunum ríkisábyrgð fyrir
þeim hluta. Nú mun fyrrverandi
fjármálaráðherra hafa ákveðið, að
þessi hluti yrði ekki lánaður,
heldur aðeins veitt fyrir honum
ábyrgð ríkisins. Kaupverð togar-
anna mun nú vera orðið nálægt 3
millj. króna, og verða því bæjarfé-
lögin að leggja fram þrem hmidr-
uðum þúsundum meira en ella. í
byrjun marz-mánaðar stendur
til að halda í Reykjavík fund, þar
sem saman verða komnir bæjar-
stjórar nokkurra kaupstaða,
ásamt lögreglustjóranum i Kefla-
vík, og ræða um hvað unnt væri
að gera af hálfu bæjarfélaganna
til þess að fá ákvörðun fyrrv. f jár-
málaráðherra breytt í það, að ríkið
láni til togarakaupanna 85% í stað
75%. Álít ég nauðsynlegt, að Siglu
fjörður leggi sitt lóð á metaskál-
arnar með að fá þessu framgengt,
og feli t.d. þingmanni kjördæmis-
ins að mæta þar fyrir sína hönd.
e) Áður en ég fór frá Reykja-
n
vík og að loknum samtölum mín-
um við vitamálastjóra, var mér
lofað mjög bráðlega bréfi um að
hvaða niðurstöðum var komizt. —
Það bréf hefur ekki borizt enn.
Viðræður mínar við vitamála-
stjómina og vitamálaráðherra
varðandi hafnarmálin snerust eiuk
anlega um eftirfarandi:
1. Skipulag innri hafnarhumr:
Skipulag hafnarinnar að nortSao
og vestan verður ákveðið í sam-
ræmi við tillögur, sem ræddar voru
á fundi hafnamefndar á s.l. hausti,
og Þorlákur Helgason vitaverk-
fræðingur var staddur á. Taídi
vitamálastjóri engar hindranir
vera í vegi fyrir að framkvæmdir
gætu á þessum parti hafizt, Skipu-
lagsins vegna, hvenær sem vssri úr
þessu.
2. Möguleikar á að fá uppmokatur-
skip:
Svo sem kunnugt er, er vita-
málastjómin nú að láta byggja í
Englandi mikið og voldugt upp*
mokstursskip, sem fyrir alllöngu
er hlaupið af stokkunum og vænt-
anlegt er í apríl-mánuði n. k.
Lagði ég ríka áherzlu á að fá það
skip til Siglufjarðar til bráða-
birgðadýpkunar á innri-höfninni
fyrir næstu síldarvert’íð, jaifnframt
því að ég reyndi að fá loforð vita-
málastjómarinnar fyrir skipinu að
lokinni síldarvertíð næsta haust,
svo að framkvæmdir gætu þá haf-
izt þessvegna. Undir hvort tveggja
var vel tekið, þótt ekki liggi fyrir
nein bindandi loforð í þessu efni.
Vitamálastjómin á í vök að verjast
með þetta skip sitt þvi færri fá
það en vilja, og er vont að sjá
hver sigrar í því kapphlaupi.
3. Byrjunarframkvæmdh’ við
innri-höfnina.
Það er eindregin tillaga vita-
málastjómarinnar að byrjað verði
á hafnarmannvirkjunum að norðan
1 frá hafnarbryggju og vestur með
landinu inn í krók og síðan suður
með bökkum. I framhaldi af því
verði svo byggður fyrirhugaður
garður á leirunum með platningu
og bryggjum að norðan.
4. Efni í fyrirstöðuvegg,
Með tilliti til þess, að mjög erfitt
er nú að fá keypt járo í fyrir-
stöðuvegg og einnig þess, að til-
tölulega lítið virðist vera af tré-
maðk í Siglufjarðarhöfn, er það
tillaga vitamálastjórnarinnar, að
fyrirstöðuveggur innri • hafnar-
innar verði úr tré aUt í kring. Lof-
aði vitamálaskrifstofan aðstoð
sinni við pöntun á því, strax og
ákveðið hefði verið að hefjaet
handa.
Um öll þessi atriði varðandí
hafnarmálin vænti ég að fá bréf
vitamálastjóra mjög bráðlega, og
verður þá hafnamefnd og bæjar-
stjóm að taka um þau sínar
ákvarðanir sem f jnrst.
Gunnar Vagneeo*
/