Neisti


Neisti - 28.02.1947, Blaðsíða 4

Neisti - 28.02.1947, Blaðsíða 4
4 NE I STI Ríkisstjórnin boðar Lækkun vísiiölunnar aftur með néður- greiðslu vöruverðs. Á að fara aftur niður í 310 stig. R'ikisstjórnin gaf út 20. þ. m. svofellda yfirlýsingu: Út af þeirri hækkun, sem orðið hefur á vísitölu kauplagsnefndar og auglýst hefur verið í dag, vill ríkisstjórnin taka fram eftirfar- andi: 1) Hækkun þessi stafar af vöru- hækkun í janúarmánuði, og þar sem ráðstafanir til lækkunar höfðu ekki verið gerðar 1 þeim mánuði hlaut þessi hækkun að koma fram riú. 2) Ríkisstjórnin hefur ákveðið, í samræmi við málefnasamning, er lagður var til grundvallar við stjórnarmyndunina, að greiða niður vöruverð fyrir næstu mán- aðamót, þannig að vísitalan færist þá niður í það sem hún var í janúarmánuði, 310 stig. II BÆNOM Skíðafél. „Skíðaborg“ hélt aðal- fund sínn 19. jan. s.l. I stjórn fé- lagsins voru kosnir: Alfreð Jórisson, form. Sveinbj. Tómasson, ritari Erl. Stefánsson, gjandk Sigurgeir Þórarinsson, skálav. Félagið varð 10 ára s.l. ár og voru þau hjónin Þóra Olsen og Gunnlaugur Gottskálksson gerð að heiðrusf élögum. I félaginu eru 246 meðlimir. ★ Knattspyrnufélag Siglufjarðar hélt aðalfund sinn 9. þ.m. Stjórn íélagsins er skipuð eftirtöldum mönnum: Þórir Konráðsson, form. Jóhann Möller Bragi Magnússon Jón E. Sigurðsson Alfreð Jónsson Helgi Sveinsson og Vilhjálmur Sigurðsson gengu úr stjórninni. Helgi hefur átt sæti í stjórninni í mörg ár og hefur unnið þar mikið og gott starf. Meðlimir K.S. eru um 160. ★ Sk'iðafél. Siglufjarðar hélt aðal- fund 18. þ. m. — í stjórn félagsins voru kosnir: Vilhjálmur Hjartarson, form. Einar Kristjánsson, ritari. Daniel Þórhallson, gjaldk. Einar Ólafsson, meðstj. Valtýr Jónasson, meðstj. I félaginu eru 340 meðlimir. ★ J. ... u Knattspyrnufélag Siglufjarðar hélt grímudansleik á bolludag. — Dansleikurinn var fjölsóttur. — Þrenn verðlaun voru veitt fyrir beztu búningana. 1. verðlaun hlaut: Stella Clausen. 2. verðlaun hlutu: Þórir Konráðs- son og Hrönn Jónsdóttir. 3. verðlaun hlaut: Þórður Jónsson Úmaktegar árásir Eftiríarandi igrein er eitt af bréf- um þeim, sem Þórði Þögla liafa borizt. Þórður hefir sent blað- nefnd Neista bréfið með þeim um- mælum, að það sé of langt til birt- ingar í pistlum lians Blaðnefndin hefur valið því yfirskrift. Jóhann Möller hefir mjög orðið fyrir dólgslegum árásum af Þór- oddi Guðmundssyni og undir söng Þóroddar hafa þeir kyrjað Ás- grímur Albertsson, Þórhallur Björnsson og ýmsir aðrir úr hinni dreifðu kommúnistahjörð Siglfirzkir verkamenn standa í mikilli þakklætisskuld við J. M. fyrir störf hans í verkalýðshreyf- ingunni hér, þótt hann sé ungur að árum. Þessar árásir Þ. G. eru því með öllu ómaklegar og illa þokk- aðar af verkamönnum yfirleitt. Árið 1940 var Jóhann 'í samn- inganefnd þeirri fyrir okkur verka- menn, er aflaði okkur 25% kaup- hækkunar. Mæddi sú samninga- gerð einna mest á honum, því stjórn Þróttar mátti þar hvergi nærri koma. Hótanir sáttasemjara um fangelsi lét nefndin ekki á sig fá. Mætti og minnast þátttöku hans í kyndaraverkfallinu og bera saman afskipti Þóroddar af því. Leiðrétting I grein F.U.J.-félaga í síðasta blaði er meinleg villa, þar stendur m. a.: „að kommúnistar gátu ekki fallist á, að hinn sameinaði flokkur lýsti því yfir, að hann starfaði á lýðræðisgrundvelli, og neituðu með öllu að fallast á“ o. s. frv. Þessi málsgrein er rétt þannig: „að kommúnistar gátu fallist á, að hinn sameinaði flokkur lýsti því yfir, að hann starfaði á lýðræðisgrundvelli, en neituðu með öllu að fallast á“ o. s. frv. I 1. maí-nefnd verkalýðsfélag- anna hefir Jóhann verið imdan- farin ár og oft flutt snjallar ræður á þeim degi, sem vakið hafa at- hygli allra er á hlýddu og kommún- istar hafa farið viðurkenningar- orðum um. Sumir kommúnistar hafa gert sér vonir um, að Jóhann gengi í flokk þeirra, því hann væri svo róttækur. Það eru að vísu tál- vonir kömmúnista og ímyridun ein, að Jóhann muni nokkurn tíma geta hent það slys að ganga 'i flokk þeirra. En þetta sýnir þó, að þeir bera raust til Jóhanns og vildu gjarna, að flokkur þeirra nyti góðs af ósérplægni hans og dugnaði Öll störf, sem Jóhann hefur unnið í Þrótti, hefir hann leyst af hendi af dugnaði og fórnfýsi, enda nýtur hann fullkomins traust okkar verkamannanna. Hvað hefur þá Jóhann unnið til saka til þess að verða fyrir þess- um rógi kommúnista? Jú, á Þróttarfundum hefir hann oft haldið uppi málstað okkar, svo sem í ágreiningsmáli okkar við S.R, sem þeir Gunnar, Þóroddur og Guðmundur hafa látið „liggja í salti“ í 6 mánuði. Hann hefur hald- ið uppi málstað þeirra manna, sem að ástæðulausu hefur verið sagt upp vinnu og hann hefir verið á- kveðið fylgjandi uppsögn kaup- gjaldssamninganna, til þess að koma fram ýmsum nauðsynlegum lagfæringum á þeim. Gagnrýni Jóhanns á meirihluta stjórnar Þróttar s.l ár, hefur verið á fullum rökum byggð, svo og á Húsnefndinni, enda óttast komm- únistar þessa gagnrýni. Af þeim ástæðum hafa þeir sett rógkvörn- ina af stað. En þeir gæta þess ekki ,að árásirnar á Jóhann Möller, eru jafnframt árásir á okkur verkamemrina, sem hann hefur haldið uppi málstað fyrir. Verkamaður Einar Albertsson staðinn að ósannsögli 1 Mjölni, sem út kom miðviku- daginn 19. þ. m„ ritar Þróttar- félagi grein, er hann nefnir: „Sann- leikpostular hagræða sannleik- anum.“ Þar segir þessi sannleiks- postuli m. 'a.: „En ékki hafði ég talað nema nokkrar setningar, þegar hinir liáttprúðn!!! kratar innan stjómar og utan, í Baldri, tóku að grípa fram í fyrir mér og heimtuðu, að mér yrði bannað að tala.“ — „Það eru nógir helv. kommúnistar hér,“ Rafpönnur Ahim. pottar GESTUR FANNDAL hrópaði einn. Eftir að hafa rejmt að yfirgnæfa köllin, og reynt að bíða eftir liljóði án árangurs, sá ég þann kost vænstan að ljúka 11 máli mínu!! Neisti hefur aflað sér upplýsinga hjá Helga Hannessyni, formanni Verkalýðsfélagsins Baldurs á ísa- firði, um fund þann í félaginu, sem Þróttar-félagi gerir að umtalsefni. Þróttar-félagi þessi er Einar Al- bertsson formaður Æ.F.S. Helgi Hannesson kveður sig hafa veitt Einari tvisvar sinnum orðið, að einu sinni hafi verið gripið fram v 'i fyrir Einari, en að öðru leyti sé fyrmefnd frásögn af þessum Bald- urs-fundi helbep ósannindi. Lygar eru stuttfættar segir þekkt, erlent máltæki og stundum tekst að elta þær uppi. Þannig hefur í þetta skipti farið með ósannsögli Einars Albertssonar af fyrrnefndum Bald- urs-fundi. Neisti átti bágt með að trúa því, að menn hefðu ekki fullt málfrelsi í Baldri og það komm- + únistar sem aðrir, enda var ákaf- lega auðvelt að fá hið sanna í þessu máli. Neisti veit að Einar Alberts- son hefur átt bágt undanfarnar vikur. Skrif þau, sem hafa farið á milli hans og F.U.J.-félaga um kommúnismann og jafnaðarstefn- una, ennfremur vöxtur Félags ungra jafnaðarmanna, en aftur á móti kyrrstaða Æ.F.S., hefur án efa gert hann dálítið taugaveikl- ^ aðan. Þó að svo sé, ætti þessi ungi maður að varast að láta hatur sitt til lýðræðissósíalista hlaupa með sig svo í gönur, að hann verði stað- inn að ósannsögli oftar. Neisti er Einari þakklátur fyrir þær upplýs- ingar, að á 70 manna fundi í Baldri hafi verið einn kommúnisti auk hans sjálfs. Neisti vissi að vísu áður, að kommúnstar voru fylgis- litlir í Baldri, en ekki svona gjör- < samlega. Annars getur Neisti upp- lýst Einar aftur á móti um það, að alþýðan um allt land er smám sam- an að endurheimta félög sín úr höndum þeirra kommúnistanna. Sýndarmennska og loddaraleikur þeirra er nú senn á enda.

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.