Neisti - 13.05.1949, Side 3
I
NEISTI
TILKYNNIIMG
um fendurnýjun umsókna um lífeyri
frá almannatryggingum
Yfirstandandi bótatímabil almannatrygginganna er útrunnið
hinn 30. júní næstkomandi. Næsta bótatímabil hefst 1. júlí 1949
og stendur yfir til 30. júní 1950. Samkvæmt almannatrygginga-
Iögunum skal endumýja fyrir hvert einstakt bótatímabil allai
umsóknir um eftirtaldar tegundir bóta:
Ellilífeyri, örorkulífeyri, barnalífeyri, fjöl-
skyldubætur, ekknalífeyri, makabætur, ör-
orkustyrki.
Ber þvi öllum iþeim, sem njóta framangreindra bóta og óska
að njóta þeirra næsta bótatímabil, að sækja á ný um bætur þessar.
Umboðsmenn Tryggingastofnunarinnar munu veita umsókn-
um viðtöku frá 6. maí til 6. júní n. k>— Ber því umsækjendum
að hafa skilað umsóknum sínum til umboðsmanna eða póstlagt
þær eigi síðar en 6. júní n. k. Eyðublöð fást hjá umboðsmönnurn.
Sérstaklega er áríðandi, að öryrkjar, sem misst hafa
50%—75% starfsorkunnar og sækja um örorkustyrk, skili um-
sóknum á tilsettum tíam, ella má gera ráð fyrir, að ekki verði
unnt að taka umsóknirnar til greina, þar sem upphæð sú, sem
nota má í þessu skyni, er fastákveðin.
Fæðdngarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu fylgja um-
sóknum, hefi þau eigi verið lögð fram áður. Þeir umsækjendur,
sem gjaldskyldir eru til tryggingasjóðs, skulu sanna, með trygg-
mgaskírteini sínu eða á annan hátt, að þeir hafi greitt iðgjöld sín
skilvíslega. Vanskil varða skerðingu eða missi bótaréttar.
Umsóknir um aðrar tegundir bóta en þær, sem hér að framan
eru nefndar, svo sem fæðingarstyrki, sjúkradagpeninga og ekkna-
bætur, svo og nýjar umsóknir um lifeyri, verða afgreiddar af
umborðmönnum á venjulegan hátt, enda hafi umsækjandi skilvís-
lega greitt iðgjöld sín til tryggingasjóðs.
Reykjavík, 3. maí 1949.
Tryggingastofnun ríkisins.
Reykjavík, 4. maí 1949
, VERDLAGSSTJÓRINN
IBOD TIL SOLU
4ra herbergja íbúð með eldhúsi og baði til sölu. — IJpplýsingar í
síma 51. — Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir laugardagskvöid.
Almannatryggingar tilkynna:
Athygli skal vakin á því, að réttur til bóta frá almannatrygg-
ingunum skerðist eða fellur niður, ef hlutaðeigandi eigi hefur
greitt skilvíslega iðgjöld sín tíl tryggingasjóðs.
Þeir, sem sækja um bætur frá Tryggingastofnun ríkisins,
skulu leggja fram tryggingaskírteini sín með kvittun innheimtu-
manna fyrir áföllnum iðgjöldum.
Reykjavík, 3. maí 1949.
Tryggmgastofhun rfldsius.
TILKYNNdG
TILKYNNING
Bannað er smásölum að hækka verð á þeim birgðum af tóbaki, sem
þeir eiga í vörzlum sínum, og keypt hefir verið af Tóbakseinkasölu
rikisins fyrir 1. maí s. 1.
♦♦«
Viðskiptanefndin hefur ákveðið, að hámarissverð á blautsápu
("kristalsápu) í heildsölu skuli vera kr. 3,70 pr. kg.
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 25. apríl 1949.
VERÐLAGSSTJÓRINN
Flugfélag íslands
býður yður upp á flugferðir frá Siglufirði, —
til Kaumannahaf nar — Oslo — Prestwick — London.
ÁÆTLUN SEM HÉR SEGIR :
Daglegar flugferðir frá Siglufirði
til Reykjavíkur.
Til Osló fimmtudaginn 19. maí og
síðan hálfsmánaðarlega, — frá
Osló 20. maí; síðan hálfsmán.lega.
Frá Reykjavík tál Kaumannahafn-
ar hvern laugardag, — frá Kaup-
mannahöfn hvem sunnudag
Til Prestwick og London hvera
★ þriðjudag, — f rá London og Prest-
wick hvera miðvikudag.
Allar nánari upplýsingar um verð farmiða og aiuiað er lítur áð
ferðalaginu gefnar á skrifstofu vorri, Norðurgötu 4 — sími 31. —
FLUGFÉLAG ISLANDS H. F.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦-
JJij/a tf íc
Sunnudag kl. 3: .
KRÓKUR A MÓTI BRAGÐI
Sunnudag kl. 5:
FLUGKAPPINN
Sunnudag kl. 9:
HVÍTAR RÓSIR
Tilkomumikil finsk stórmynd
Atvinna
2 til 3 stúlkur geta fengið at-
vinnu við saumaskap. — Nemar
koma til igreina. Vinnutími eftir
samkomulagi.
Helgi Vilhjálmsson
klæðskeri