Neisti - 18.06.1949, Blaðsíða 2
2
NEISTI
— VIKUBLAÐ —
ttgefandi: ALÞráUFLOKKSFÉLAG SIGLUFJARÐAR
Ábyrgðarmaðnr: ÖLAFUR H. GUÐMUNDSSON
Ritstjóm annast blaðnefnd Neista.
Blaðið kemur út alla föstudaga
Áskriftargjald kr. 20,00 árg. — Afgreiðsla í Aðalgötu 22.
Alþýðuflokkurinn og bæjarmálin
Að loknum bæjarstjórnarkosningunum 1946 var 'það skoðun Al-
þýðuflokksins, að vinna bæri að því að skapa raunhægt samstarf alira
þeirra floikka, sem fulltrúa áttu í bæjarstjóminni, um bæjarmálin. —
Fjármálaástand bæjarins var þannig að eitt af fyrstu verkum hinnar
nýju allsherjarnefndar var að taJka % milljón króna bráðabirgðalán,
til þess að geta annast nauðsynlegar greiðslur bæjarsjóðs. Bærinn
mun hafa safnað um 30 millj. kr. sikuld á kjörtímabilinu 1942—1946;
framimdan var kyrrstaða í öllum framkvæmdur og jafnvel bæjar-
gjaldþrot. Það var því mikill vandi, sem beið hinnar nýkjörnu bæjar-
stjómar. Samningaumleitanir milli bæjarfulltrúanna og flokkanna um
bæjarmálasamlstarfið stóð yfir um hálfan þriðja mánuð. Kommúnistar
gáfust fljótlega upp á því að hafa forustuna. Á þessu samningaum-
leitanatímabili kom berlega í ljós, að bæjarbúar óskuðu einskis fremur
en allra flo'kka samstarfs um málefni bæjarins. Undir fomstu Alþýðu-
flokksins tókst þetta 26. apríl 1946.
Alþýðuflokkurdnn lét minnsta flokknum, — Framsóknarflokknum
— eftir annað sætið í þýðingarmestu nefnd bæjarstjómarinnar; ails-
herjarnefnd, svo að bæjarfulltrúa flokksins gæfist kostur á að fylgjast
með helztu mjálum bæjarstjórnarinnar. Forseti bæjarstjórnarinnar var
kosinn Gunnar Jóhannsson og ávallt s'íðan og síðast með atkvæðum
jafnaðarmaima og kommúnista í þæjarstjóminni. Þannig skipar
Sósíalistaflokksmaður mestu virðingarstöðu innan bæjarstjórnarinnar,
enda þótt „flokkurinn" þykist vera „ábyrgðarlaus" gagnvart gerðum
meiri-hluta bæjarstjómarinnar. Er það harla eihkennilegt að sá meiri-
hluti, sem kommúnistar tala um í bæjarstjóminni, skuli ekki nota
meirihlutaaðstöðu sína, til þess að eignast forsetann úr sínum hópi.
Ástæðan fyrir þessu er sú, að umi minni eða meirihluta er ekki hægt
að tala, nema í einstökum, þýðingarlitlum málum, en Alþýðuflokkur-
inn taldi sanngjamt að kommúnistar ættu forseta bæjarstjómarinnar,
þar sem þeir reyndust aðeins sterkari við siðustu kosningar.
Það hefur fallið í hlut Alþýðuflokksins, þetta kjörtímabil, að fá
flokkanna til iþess að vinna saman í einingu um bæjarmálin. Fyrst
féll þessi vandi á herðar Hallgríms Dalbergs, sem bæjarstjóra, en
síðan 22. nóv. 1946 hefur það fallið í hlut Gunnars Vagnssonar. —
Það hljóta aliir bæjarbúar að skilja að hið slæma f járhagslega ástand
bæjarins í lok kjörtímjabilsins 1942—1946 hefur verið þungur baggi
fyrir bæjarfélagið, sem ekki hefur verið hægt að létta af. Þrátt fyrir
þennan arf frá stjómartíð íhaldsins, hefur núverandi bæjarstjórn
tekizt að þoka þýðingarmiklum málum fram á veg. Aldrei fyrr 1 sögu
bæjarfélagsins hefur verið varið jafn milklu fé til verklegra fram-
kvæmda og á þessu kjörtímabili, þrátt fyrir fjögur síldarleysisár,
sem mjög hafa dregið úr tekjumöguleikum bæjarsjóðs. Á þessu kjör-
tímabili hefur síldarverksmiðjan Rauðka verið stækkuð upp í 8000—
10000 mála afköst á sólanhring. Fest hafa verið kaup á vélumj og
útbúnaði til stækkunar orkuversins við Skeiðsfoss. Með þessum ráð-
stöfunum ætti að veera tryggt að í árslok 1951 verði afköst Skeiðsfoss
'komin upp í 6000 hestöfl. — Uppbygging innri hafnarinnar er hafin.
Lokið er að nolkkm byggingu fyrirstöðulþils meðfram höfninni. Unnið
er kappsamlega að því að verkinu verði haldið áfram, og í því sambandi
er verið að athuga að festa kaup á uppmokstursskipi fyrir bæinn. Bær-
inn hefur eignast nýsköpunartogara, sem hann rekur á sinn kostnað.
Þannig hefur tekizt að framkvæma á þessu kjörtímabili gamalt stefnu-
mál siglfirzkrar alþýðu. Byggðir hafa verið verkamannabústaðir fyrir
30 fjölskyldur, en alls em íbúar þeirra um 130. Gagngerð endurbygging
í sundlaug -bæjarins er hafin, en hún hefur verið ónothæf í 6 ár. Hafin
er bygging nýs sjúknahúss, en vöntun á teikningum og nauðsynlegum
leyfum, gera allar byrjunarframkvæmdir mjög erfiðar. Unnið er að
stækkun rafveitunnar og í ráði er að dæla vatni úr Fjarðaránni -upp í
aýju- leiðslumar, og er 'i ráði, að vatn úr Fjarðaránni verði eingöngu
notað til að sjá verksmiðjunum og ,,plönunum“ fyrir nægu vatni. I
Tilkynning frá Rafveitu Sigluf jarðar
Á fundi Bæjarstjórnar Siglufjarðar '9. mai þ. á. ivar sam-
þykkt, að frá ]1. júlí n. k. skyldi Jverð á Haiforku frá Rafveitu
Siglufjarðar hækka sem hér segir:
Burtu falli sú 5% lækkun, sem verðlagsstjóri
fyrirskipaði á árinu 1947. Auk þess hækki allir
taxtar fyrir raforku samkvæmt gjaldskrá Raf-
veitunnar um 10%, að undanskildum taxta B2
(umframnotkun á heimilistaxta).
Gengur því hækkim jæssi í Jgildi /frá næsta mælaálestri, sem
fram fer um mánaðarmót júní—júlí þ. á.
Siglufirði, 14. júní 1949
Rafveita Sigluf jarðar
K AUPTAXTI
Trésmíðafélags iSigluf jarðar frá og með 20. júní
1949, þar til öðruvísi verður ákveðið.
ALMENN SMÍÐAVINNA:
Dagvinna kr. 4,10 á klst.
Eftirvinna greiðist með 60%; og nætur- og helgidagavinna
með 100% á dagvinnukaup.
Meistarar, sem standa fyrir verki, skulu hafa 25% hærra
kaup en að ofan greinir.
Dagvinna er frá kl. 7 f.h. til kl. 4 e.h. mieð kaffitíma frá kl.
9 til 9,30 f.h., án frádráttar á kaupi. Þó er heimilt, að dagvinnu-
tími sé unninn frá kl. 7 f.h.til kl. 4,35 e.h. fimm daga vikunnar,
og er þá dagvinnu lokið ld. 12 á hádegi á laugardaga. Eftirvinna er
f rá kl. 4 til kl. 8 e.h. og næturvinna frá kl. 8 e.h. til kl. 7 að morgni.
Almenna frídaga, tryggingu vegna slysa, og önnur hlunnindi,
áskilur félagið sér hin sömu og verkalýðsfélögin á staðnum.
Félagið áskilur sér þau réttindi fyrir meðlimi sína, að séu
þeir ráðnir til smíðavinnu utan kaupstaðarins, fái þeir kaup sam-
kvæmt ofanrituðum taxta, á meðan á ferðum stendur til og frá
vinnustað, ásamt ferðakostnaði, og auk þess frítt fæði og hús-
næði á vinnustað.
Ofangreindur taxti greiðist mieð fullri verðlagsuppbót frá 1.
hvers mánaðar, eftir birtingu dýrtíðarvisitölu kauplagsnefndar.
Þannig samþykkt á félagsfundi 14. júní 1949.
STJÓRN OG KAUPTAXTANEFND
imíðum er slippur, er kemur til að taka upp allt að 150 tonna skip,
og má vænta, að hann verði fullgerður á þessu sumri. Lagðar hafa
værið nýjar götur og aðrar í byggingu, enda þótt sérstakir örðugleilkar
íiafi verið á að vinna þar á æskilegan hátt.
Til alla þessa framkvæmda hefur bærinn lagt stórfé, óg það án þess
ið iafla þess með lántökum.
Þannig hefur Alþýðuflokkurinn, með þvf oð fá alla flokka innan
oæjarstjómarinnar til þess að vinna sarnjan tekizt að koma í veg fyrir
kyrrstöðu í verklegum framkvæmdum. Álþýðuflokkurinn þarf -því
sannarlega ekki að óttast næstu kosningar.
4
/
<
*
t
X
\