Neisti - 09.09.1949, Síða 4
NIJI STJ
KEÐJAN ER ALDREI STERKAR!
EN VEIKASTI HLEKKURINN“
iNýlega tok ónafngreiryiur rit-
'höfundur að sér það hlutverk að
fræða bæjarbúa um dráttarbrautar
byigginguna með grein í „Siglfirð-
ingi“. Væri slík fyrirhöfn og um-
hyggja þaikkarverð, ef hinn rauin-
verulegi tilgangur slíkra skrifa
væri' að miðla fróðléik* en hér
skeði það, sem oftar, að höfundur-
inn féll fyrir þeirri freistingu, sem
bann yfirleitt virðist gera sér æði
lítið far um að sigrast á, að ata
pólitíska andstæðinga sína óhróðri,
læða inn hjá lesendum blaðsins tor-
tryggni gagnvart mér og öðrum
þeim, sem ábyrgir eru fyrir þess-
um framikvæmdum sem öðrum á
bæjarins vegum, snúa við stað-
reyndum, láta annarra staðreynda
ógetið, þótt verulega máli skipti,
allt þetta að þvl er virðist oft gegn
betri vitund.
Hér koma nokkrar leiðréttingar
við ummæli greinarhöfundar varð-
andi þetta sérstaka mál.
Hvorki hafnarnefnd né bæjar-
stjóm gengu að því með neinni sér-
stakri hrifningu að kaupa umrædd-
an dráttarbrautarsleða frá Akur-
eyri, eins og greinarhöfundur vill
vera láta. En allir aðilar voru al-
gerlega sammála um, að þetta
myndi þó eina færa leiðin til að
fullgera dráttarbrautina á þessu
ári. Tel ég, að það hafi verið rétt
sikoðað og enginn þurfi éftir því að
sjá. Verður vonandi unnt á kom-
andi vetri að tryggja noikkrum
mönnum sæmilega atvinnu við
þetta fyrirtæki. Nógu þungur verð-
ur komandi vetur samt, því miður,
eftir því sem nú horfir í atvinnu-
málum.
„Ein nefndin ásamt bæjarverk-
fræðingnum var send til Akureyr-
ar.“ Er ekki von, að mönnum
bíöslkri bruðlið. Það tók því svo
sem að vera að senda bæjarverk-
fræðinginn alla leið inn á Akur-
eyri og eyða í ferðakostnað
kannske á annað hundrað krónum,
til að kynna sér ásigkomulag hlut-
ar, sem ekki á að kogta nema tvö
hundruð þúsund krónur! Hvað þá
heldur að senda þar á ofan þrjá
mehn til að semja við seljandann
um andvirðið og eyða í það heilum
virkum degi.
„Ekki rnirn enn hafa verið gengið
frá kaupsamningi, en við undir-
skrift hans átti Sigluf jarðarkaup-
staður að greiða 25 þús. kr.“
Frá kaupsamningi hefur verið
gengið, og það fyrir méir en tveim
mánuðum.
Engin greiðsla átti að fara fram
við undirskrift samningsins, heldur
all-löngu síðar. Munnlegt sam-
komulag varð síðan um það milli
mín og bankastjóra Útibús Lands-
bankans, en þangað átti upphæðin
að greiðast, að greiðslan skyldi
fara fram 1 ágústlok. Hinn 31.
ágúst var upphæðin, kr. 25.000,00,
greidd inn í Sparisjóðinn hér og
send Útibúi Landsbankans, Akur-
eyri. Við þetta atriði hefur verið
staðið gagnvart seljanda, svo sem
vera bar og eins og um var samið.
„Nú hefur verið unnið að undir-
byggingu undir sleðann hér í góða
tvo mánuði. Þurfti að mölva og
ryðja burt sumu, sem byggt var
í fyrrasumar og byggja annað
undir þennan sleða. Kemur þetta
niðurrif og nýbygging sumum á
óvart, þvi fram var tekið í vetur
skýrt og skorinort, að Akureyrar-
sleðinn „passaði“ á garðana, sem
byggðir voru í fyrra“.
Hafnarnefnd gerði sér ljóst, að
hverju leyti sleðinn „passaði" á
garðana og að hverju leyti ekki,
og í því efni hefur enginn verið
iblekktur, þótt greinarhöfundur
telji sér hentara að reyna að telja
bæjarbúum trú um hið gagnstæða.
Mátulega langt var á milli garð-
anna, en það þurfti að hæklka þá
af þeirri ástæðu, að þeir voru s.l.
sumar ekki byggðlr hærri en svo,
að hæfilega var miðað við hliðar-
færslugarðana og trésleða,'sem þá
var gert ráð fyrir að smíða. Járn-
sleðinn, sem keyptur var, er miklu
þynnri. Ekkert var mölvað og engu
var rutt burt og ekkert var byggt
annað undir þennan sleða, ofan
fjöruborðs, en búið var að gera
í fyrrasumar, nema að mölvað var
af efsta yfirborð gömlu garðanna
ofan sjávarmáls, til að steypan í
upphælkkuninni festi sig betur. Við
það fóru að visu í kaf þeir teinar,
sem settir voru í steypugarðana
s.l. sumar, en það fékkst marg-
faldlega uppbætt, þar sem í stað
komu mikhi ibetri teinar, er selj-
andi Akureyrar sleðans og verk-
takinn, Gunnar Jósefsson, leggur
sjálfur til, hafnarsjóði að kostn-
aðarlausu.
Þegar verkinu lauk í fyrrasumar
hafði ekki verið gengið frá undir-
byggingunni í sjó, og kom þvi ekki
til neinnar breytingar þar. Hins
vegar varð hækkun garðanna til
mikils hagræðis við veríkið frammi
í sjónum. Staurasleðarnir, sem
þvertré hvila á, komu ofar en ella.
Af framanskráðu er ljóst, að
frásögn blaðsins af umræddu verki
er í öllum atriðum ýmist röng, vill-
andi eða fölsuð. Hiér er ekkert að
kafna í fæðingu vegna fyrirhyggju
leysis í einu eða neinu. Staðið hef-
ur verið við þær skuldbindingar, er
á hafa fallið fram að þessu, og
þrátt fyrir illæri það, sem alla
þjáir, bæði fyrirtælki, einstaklinga
og opinbera aðila, verður unnt,
með góðum vilja og samstarfi að
standa við þær skuldbindingar,
vegna þessa verks, sem á munu
faila á næstunni.
„Keðjan er aldrei sterkari en
veikasti hlekkurinn". Þegar í sam-
starfinu að framgangi nauðsynja-
mála, eða að lausn aðsteðjandi
vandamála, eru hlekkir af þeim
gæðum, sem lýsa sér í rógskrifum
sem þessum, er ékki góðs að vænta.
Niðurlagsályktanir greinarhöf-
undar um afrek, sem kafna í fæð-
ingu, fyriihyggjuleysi, brölt og
busl í fjármálum, eru sjálfdæmdar
dauðar og ómerkar, því þær eru
dregnar af forsendum, sem hér að
framan héfur verið sýnt fram á,
að eru alrangar. Rithöfimdi „Sigl-
firðings“ skal á 'það bent í fullri
vinsemd, að þegar draga á álykt-
anir af gefnum forsendum, verða
forsendumar að vera réttar, ef
ályktanirnar eiga ekki að verða
hégómi og fánýtt 'hjal, því einnig
a rölksemdafærslu gildir hið gull-
væga spakmæli:
„Keðjan er aldrei sterkari en
veikasti hlekkurinn"!
Gmuiar Vagnsson
Framsókn og verzlunarmálin
Framh. af 1. síðu.)
dregið taum heildsalarma í verzl-
unarmálunum. Þetta er alrangt og
skal bent á 3 atriði, sem skipta
verulegu máli.
1. Innflutningur kaupfélaganna á
vefnaðarvörum, hreinlætistækj-
um o.fl. þ.h. hefur í tíð núver-
andi stjórnar aukist um 25—30
prosent. Þetta hefur gerzt með
stuðningi Allþýðuflokksins en í
andstöðu við SjáLfstæðisflolkk-
inn.
2. glS vildi fá leyfi til þess að gera
vöruskiptaverzlun við Finnland,
þar sem seldar voru gærur
með hagstæðu verði, en keypt-
ar í staðinn ýmsar hreinlætis-
vörur og aðrar vörur. Sjálf-
stæðismenn voru mjög andvígir
iþessum samningi. Hann var
samþykktur með fulltingi Al-
flokksins.
3. SÍS hafði gert samning um
byggingu Skips 1 Sviþjóð. Þessi
samnmgsgerð mætti frá upp-
hafi andstöðu fulltrúa Sjálf-
stæðisfldkksins. Að síðustu virt
ist þetta mál mundu stranda á
'þvu, að SlS fengi ekki leyfi til
þess að greiða ákveðinn hluta
af andvirði skipsins í dollurum.
Þessi greiðsla og leyfið var sam
þylkkt fyrir fulltingi Alþýðu-
flokksins.
Þessi 3 dæmi ættu að færa mönn
um heim sanninn um það, hversu
öfgakennd sú fullyrðing Fram-
sóknarflokksins er, að Alþýðu-
flokkurinn hafi alla jafna staðið
igegn hagsmunum ttmbjóðenda
Framsóknarflokksins. En Fram-
sóknartflokikurinn vii’ðist oft og
tíðum gleyma þvd, að í samstjóm
3ja flokka með gei.'ólík sjónarmið
SKRIFSTOFA
Alþýðuflokksins i Aðalgötu 22 \
er opin alla virlta daga frá í
kl. 11—12 f. h. og 5—7 e. h. )
Alþýðulflokksfóllt! Hafið )
samband við skrifstofuna. — }
Athugið hvort þið eruð á kjör-
j skrá. — Gefið skrifstofunni 1
l upplýsingar um alla þá, sem ^
Iýkur eru til að verði f jarver- J
andi á kjördag. — Komið á /
skrifstofima. — Fylgist með /
gangi málanina. Takið þátt í i
starfinu. ^
AlþýðuflokksféL Sigluf jarðar I
Félag ungra jafnaðarmanna |
l
Frækileg knattspyrnuför
Um síðustu helgi fór 2. fl.
Knattspyrnufélags Siglufjarðar til
Akureyrar og háði þar tvo kapp-
leiki. Héðan var haldið með Esju
í slæmu veðri, komið til Akureyrar
kl. 2 á sunnudag og kl. 13,30 var
'keppt við 2. fl. úr Þór og imnu K.S.
ingar með 1:0. — Kl. 18,30 sama
dag var svo keppt við 2. fl. K.A.
og fóm leikar þannig að jafntefli
varð 1 :1.
^iylufyarfatbíc
Föstudaginn kl. 9 og laugardaginm
kl. 6 og 9: HAMLET (ísl. texti)
Pantaðir aðgöngumiðar sækist
10 mín. fyrir sýningu.
er ekki unnt fyrir einn aðilann að
fá allt það, sem hann vill og telur
æskilegast.
Þá má loksins benda á það, að
öll álagning hefur i tið núverandi
níkisstjómar verið stórlækkuð og
verðlagseftinlitið ibætt nokkuð. Hitt
er svo annað mál, að verðlagseftir-
litið mætti enn bæta að miklum
mun. En það er ábyggilega ekki
sök Aliþýðuflokksins, að svo hefur
ekki verið gert.
Framsóknarflokkurinn hefur ósk
að eftir og fcnúið fram kosningar.
Hann hefur lofað þwd, að leggja
öll mál fyrir þjóðina og rökræða
þau.
Ef hann vill standa við þessi
loforð, er honum ekki sæmandi, að
taka upp hátt kommúnista og vera
með órölkstuddar dylgjur og get-
sakir í garð Alþýðuflokksins, allra
sízt þar sem gömul og ný samvinna
þessara flokka hafa fært umbjóð-
endum iþeirra margskonar um-
bætur og hagsbætur, sem þó allir
réttsýnir menn hefðu óskað, að
yrðu enn meiri.