Neisti


Neisti - 01.11.1958, Qupperneq 4

Neisti - 01.11.1958, Qupperneq 4
NEISTI Jy>Í0utdtiz JK-tistjánsson heiðursborgari Sigluíjarðarkaupstaðar S J Ö T U G U R Þanli '24. okt. sl. átti Sigurður Kristjánssdn, sjötugsafmæli. Sigurður er Siglfirðingum kunn- astur sem forstjóri Sparisjóðs Siglufjarðar. Þegar Sigurður tók við Sparisjóðnum fyrir nærfellt 40 árum, var'. það lítil stofnun og lítils megnug. .En á þessu árabili hefur Sparisjóðnum aukist ás- megin með hv-erju ári sem liðið hefur, undir öruggri stjórn Sig- urðar. Er Sparisjóðurinn nú viðurkenndur sem hin traustasta stofnun, og mest af þeim, sem bezt þekkja til. Og á sama hátt er Sigurður viðurkenndur sem mikil- liæfur og glöggskyggn fjármála- maður. Hefur hann verió fjöl- morgúm Siglfirðingum hin bezta hjálparhella, bæði hollráður og hreinn og beinn í viðskiptum. Þá er Sigurður fyrir löngu orðinn landskunnur sem framúr- skarandi bridge-maður. Hefur hann verið lífið og sálin 1 félagi bridge-spilara í Siglufirði og for- ustumaður þeirra í mörgum og erfiðum keppnisferðum, sem orðið hafa Siglufirði og Siglfiröingum til sóma. Á 1000. fundi bæjarstjórnar Siglufjarðar var Sigurður kjörinn heiðursborgari Siglufjaröarkaup- staðar. Voru allir sammála um, að þessi mesti heiður, sem Siglu- fjörður getur veitt sonum sínum, væri á réttum stað hjá þessum heilsteypta heiðursmanni, og verð- skulduð viðurkenning fyrir rnarg- vísleg störf, unnin í þágu bæjar- félagsins. Þá hefur Sigurður um árabil verið ræðismaður Svía í Siglu- firði. Hefur hann sinnt þeim störf- um af kostgæfni, svo sem hans er vandi, og Svíar kunnað vel að meta það. Þótt Sigurður sé orðinn sjö- tugur, er hann samt léttur og kvikur á fæti, og það svo, að margur tvítugur mætti öfunda hann. Á afmælisdaginn heimsótti hann. mikill fjöldi gesta, og heilla- óskirnar voru geysimargar, bæði innlendar og erlendar. Þó munu þeir miklu fleiri, sem í huganum hafa sent Sigurði hlýja kveðju og þakkir, fyrir margvíslega vinsemd og viðskipti. Neisti vill fylgjast með þeim hópi og senda Sigurði heillaóskir og alúðarkveðjur á sjötugsaf- mælinu. S. Sundlaug Siglufjarðar að komast undir pak Laugardaginn 25. okt. sl. voru flögg dregin að hún á þaksperrum Sundlaugarinnar, til merkis um það, að undirstöður undir þak væru reistar. Af þessu tilefni bauð bæjar- stjórnin smiðum, sem unnið hafa að þessu verki, og forustu- mönnum í íþróttamálum í smá- vegis ,,reisugilli“ úti í sundlaug, þar sem borið var fram öl og brauð. Bæjarstjóri bauð gesti vel- komna og lýsti verki því, sem hér vah vérið að vinna. En það er í stórum dráttum það, áð hinn lang- þráði draumur er að rætast, að þak er að komast á sundlaugina, til þess að forða þessu mikla m'anlívirki frá frekari skemmdum. Hugsa ráðamenn bæjarins gott til þess, að byggja upp sundlaugina, sedi einnig er fyrirhugað sem í- þróttahús í framtíðinni. Verður það gert á þann hátt, að gólf verður lagt yfir sundlaugarþróna og með því fæst eitt glæsilegasta íþróttahús á landinu, sem bætir úr mikilh þörf, þar sem íþrótta- hús, í þeim skilningi, er ekki til- tækt hér í bænum. Er einnig mögulegt að starfrækja böð í sam- bandi við íþróttahús og sundlaug. Bragi Magnússon tok til máis af hálfu íþrottamanna og þakkaði bæjarstjóra og bæjarstjórn dugn- aó við framkvæmd þessa verks. Bjarki Árnason hefur haft verk þetta í ákvæðisvinnu og hefur það gengið að óskum. Færði bæjarstjóri Bjarka og starfs- mönnum hans þakkir fyrir þau vel unnu störf, sem þegar hafa verið þarna unnin. Nýkomið Enslcar kápur Kjólaefni í miklu úrvali Stíf skjört Bréfnylon í skjört Alltaf að konia eitthvað nýtt. Verzl. G. K ö gn v a 1 tls TILBOÐ óskast í tvær íbúðir í húsinu Lindargötu 26 (Steinaflatir) eða alit húsið. Haghvænnr greiðsluskilmálar. Upplýsingar gefur IIELGI SVEINSSON . . Hverfisgötu 34 ÞAKKAKÁVAKP lunilegustu hjartans þakkir fsðrum við öllum þeim nær og fjær, sem á svo margan hátt sýndu okkur samúð og miltla vinsemd við andlát og jarðarför móður minnar, önunu og tengdamóður HÓLMFKlÐAK SIGURGEIKSDÓTTUK Lindarbrekku, og þeim sem minntust hennar með hlýliug og virðingu. Guð blessi ykkur öll. Alía Pálsdóttir, Páll Helgason, Helgi Ásgrímsson Falsaiiir kommúnista Framhald af 2. síðu Sérstaklega mun þó Björninn vera talinn höfuðóvinurinn, og er það túlbað á þann veg, að skipið hafi tekið vinnu frá bílstjórunum. Með bezta vilja er þó mjög erfitt að koma auga á það, hvernig Vigfús hefur hugsað sér að láta bílana moka upp framan við hafnar- bryggjuna. En ef hinn lélegi og marg-rægði Björn er erkióvinur bílstjóranna, með því að taka frá þeirn vinnu, hvað mætti þá segja um hið afkastamikla uppmokst- ursskip, sem Vigfús Friðjónsson hyggst selja bænum? Er þá ekki Vigfús með tilkomu þess einmitt að leggja grundvöll að alveg sér- stakri ' óvináttu við bílstjórana? En það er kannske annað mál, af því að þar er „bisness" annars vegar. Þriðji tilgangur Vigfúsar og félaga hans er að reyna að mynda um þessi niál pólitískan storm. Gremst þeim vitanlega útreiðin, sem þeir urðu fyrir í vetur eftir kosningamar, þegar þeir létu sjálfa sig í poka og bundu meira að segja fyrir opið! Hiæyta þeir úr sér máttlausum skætingi og persónulegum dylgjum, aðallega í garð bæjarstjóra, sem yfirleitt hefur ekki virt þá svars. En aðal- úrræðið virðist ætla að vera, að þessir virðulegu herrar flýji burtu úr bænum, eins og hræddir hérar með skottið milli fótanna og skammist sín! Það er síður en svo að skýrsla sú, sem fram var lögð um kostnað við hafnarbryggjuna, geti gefið nokkurt tilefni til pólitískrar deilu. Þetta er aðeins yfirlit um kostnað við ákveðna framkvæmd, sem unnið hefur verið að af sér- stökum dugnaði allra sem þar hafa lagt hönd að verki, bæði af verkstjóra, bílstjórum og öðrum starfsmönnum. Það er einnig yfir- lýst mörgum sinnum af þeim, sem vit hafa á, að verkinu hafi miðað eins vel áfram og frekast varð á kosið. Það má því teljast fremur aumlegt hlutskipti, sem þeir Vig- fús Friðjónsson og félagar hans hafa valið sér, að vera með skammir og skæting út af þessu vel unna verki. En þegar betur er að gáð, þá er auðséð að við öðru var ekki að búast. Þetta er fram- lag kommúnistanna til uppbygg- ingu bæjarfélagsins og vitanlega hljóta þeir laun fyrir sín „vel unnu störf“, þegar fram líða stundir. Sandur og hrærivél í „Mjölni“ þann 27. sept sl. var mikið um það rætt, að bæjarstjóri hefði ákveöið lágt sandverð, með tilliti til þess, að hann væri sjálíur stór sandkaupandi. Heimsóttu þeir Þóroddur Guðmundsson og Vig- fús Friðjónsson bæjarskrifstofuna nokkrum sinnum í upplýsinga- leit, til þess að geta komið réttri tölu á sandkornin, sem afgreidd voru til bæjarstjóra, til þess síðan að geta blásið sig út eins og froskamamma forðum yfir þessu regin fargani. Fannst þeim mikið til um það, hve bæjarstjóri hefði' komist þarna að góðum kjörum, en vitanlega var ekki minnst á þann fjölda manna, sem einnig hafa keypt sand af bænum. I síðasta blaði „Mjölnis“ kveður við svolítið annan tón. Þá er „Mjölnir" miður sín af vand- lætingu yfir því, hve bæjarstjóri hafi þurft að borga mikið fyrir afnot af hrærivél bæjarins við- byggingu sína! Skorar blaðið á ráðamenn bæjarins að lækka nú leiguna á hrærivélinni, til hags- bóta fyrir bæjarstjóra og aðra húsbyggjendur í bænum. Á sand er ekki minnst í þetta sinn. Minnir þessi málflutningur „Mjölnis" um of ódýran sand, en of dýra hrærivél, mjög á hund- grey, sem hleypur í hring til þes3 að reyna að ná í skottið á sjálfum sér.. Bíða menn þess nú, að „Mjölnir" greyið fari næsta. hring,-

x

Neisti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.