Neisti - 05.05.1962, Blaðsíða 4
4
Sundhöll Siglufjarðar vígð 1. maí síðastliðinn
Eitt af stefnumálum Aiþýðu-
l'lokksins við síðusltu bæjarstjórn-
arkosningar var það, að sundlaug-
in yrði yfirbyggð og kannaðir
möguleika á iað nota sundlaugar-
liúsið sem íþróttahús á vetrum.
l>etta hefur verið framkvæmt, og
1. maí síðastiliðinn var Sundhöll
Siglufjarðar formlega tekin í
notkun, með athöfn, sem fór fram
kl. 4 síðdegis þann dag. Við það
tækifæri lék Lúðrasveit Sigluf jarð-
ar, bæjarstjóri flutti ræðu og af-
henti Sundhöllina til afnota fyrir
íilmenning. — Heilgi Sveinsson
íþróttakennari flutti ávarp og
þakkaði fyrir hönd íþróttabanda-
lags Siglufjarðar og æskufólks í
bænum bæjarstjóra og bæjar-
stjórn fyrir farsæla framkvæmd
við byggingu þessa myndarlega
mannvirkis.
Ræða bæjarstjóra fer hér á
ef tir:
Clóðir Siglfirðingar!
f dag er hátíðisdagur verka-
manna, og er dagsins minnst hér
í Siglufirði, eins og annars stað-
ar um váða veröld. Dagurinn í dag
er einnig að öðru leyti 'hátíðisdag-
ur okkar Siglfirðinga, því að í
dag fögnum við merkum áfanga
í íþróttamálum okkar. Við fögn-
um því, að nú getum við loks
tekið Sundhöll Siglufjarðar í
notkun sem fuilfrágengna að allri
innréttingu og búnaði sem sund-
höll og afhent hana til afnota
fyrir unga og aldna, og þó er það
sérstaklega æskulýður þessa bæj-
ar, sem ég vil samfagna á þess-
um tímamótum.
Siglfirzkt æskufólk hefur marg
ofit sýnt það, að það hefur efni-
við til að standa jafnöldrum sín-
um í öðrum byggðarlögum fylli-
ilega á sporði. Vil ég þar minnast
tveggja síðustu atburða í þessa
efni: Siglfirzkir knattspyrnumenn
urðu Norðurlandsmeistarar á síð-
asta hausti. Kom það mörgum á
óvart, því að æfingaskilyrði í
þeirri íþróttagrein eru mjög tak-
mörikuð enn sem komið er. Það
var þvá eingöngu atgervi og æsku-
þróttur siglfirzkra ungmenna, er
þar bar sigur af hólmi. — Hitt
atriðið er enn minnisstæðara, en
það er sigurganga siglfirzka
skíðafóilksins á Skíðalandsmótinu
á Akureyri nú um páskana. Ber
iþað vott um, hvers vænta má af
siglfirzkum ungmennum, þegar
æfinga- og ástundunarskilyrði eru
í lagi, því að keppnisvilji, æsku-
þróttur og efniviður í hinu sigl-
firzka æskufólki virðist vera eins
og bezt verður á kosið.
Sundíþróttin er ein sú íþrótta-
grein, sem ekki hefur verið hægt
að leggja stund á að undanförnu
hér í Siglufirði eins mikið og
æskilegt hefði verið. Orsök þess
er sú, að undanfarin ár hefur
Simdhöllin verið í smíðum, og þó
að reynt hafi verið að halda uppi
sundkennslu og annarri sund-
starfrækslu í húsinu hálfbyggðu,
þá hefur það ekki verið fram-
kvæmt við eins góð skilyrði og
nú munu verða fyrir hendi, eftir
að 'húsið er fulbyggt. Von mín
og jafnvel vissa er sú, að þegar
siglfirzk ungmenni fara að stunda
sund að staðaldri, við þau skid-
yrði, sem þeim hafa hér verið
búin, að þá verði þau ekki ef'tir-
bátar jafnaldra sinna í öðrum
byggðarlögum í þessari íþrótta-
grein, heldur skari fram úr, eins j
og í knattspyrnunni og sfcíða- J
íþróttinni, sem ég gat um áðan. í
Byggingarsaga þessarar sund-
hal'lar er orðin nokkuð löng. —
Fyrst var byggð hér á þessum
stað opin sundlaug, sem hituð
var með kælivatni frá dieselvéluni
rafstöðvarinnar við Hvanneyrará.
Var laugin rekin á þann hátt í
nokkur ár.
Ef'tir að Skeiðsfossvirkjunin tók
tiil starfa og dieseilstöðin var lögð
niður að nokkru leyti, var sund-
laugarvatnið hitað upp með raf-
magni og að nokkru með oiíu,
og er svo enn.
Árið 1947—49 var hin opna
sundlaug endurbyggð og lagður
grundvöllur að fyrirkomulagi |
Sundhallarinnar, eins og hún er
í dag. Var sundlaugin rekin þann-
ig sem opin sundlaug Itil ársins
1957, en þá sýndi sig að opin
sundlaug gat e'kki staðizt ásókn
vetrarveðurs og frosta og ekki
nema um það tvennt að velja, að
leggja sundlaugina niður eða
byggja yfir hana, eins og fyrir-
hugað hafði verið. Bæjarstjórn
Siglufajrðar var ein'huga um að
velja síðari kostinn og nú stönd-
um við hér í dag, eftir fjögurra
ára starf við yfirbyggingu þess-
arar sundlaugar, í glæsilegum sai-
arkynnum, sem eru Siglufirði til
stórsóma og sem verða munu miö-
stöð líkamsræktar í framtíð-
inni.
Kostnaður við opnu sundlaug-
ina, sem ég gat um áðan, var
hinn 31. desember 1957 orðinn
kr. 1.006.506,48, og hafði Íþrótta-
sjóður greitt sinn bluta af þeim
byggingarkostnaði, eða kr. 414.-
500,00. Þannig stóðu málin í árs-
byrjun 1958, er vinna við yfir-
bygginguna hófst.
Yfirbyggingin hefur kostað
fram til þessa dags ca. 1.800.00,00
og er því iheildarverð byggingar-
innar, gamalt og nýtt, ca. 2.800.-
000,00.
Nokkrir erfiðleikar hafa verið
að því, að þessi fjögur s. 1. ár,
sem yfirbyggingin hefur verið í
smíðum, hafa greiðslur úr íþrótta-
sjóði gengið mjög treglega. Var
ekki annað sýnt um tíma, en að
bæjarsjóður yrði að bera mest-
an þungan af byggingarkostnað-
inum, enda þótt íþróttasjóður
ætti að greiða allt að 40% af
þessum kostnaði. En nú hefur úr
þessu rætzt betur en vonir stóðu
til. — Fyrir atbeina núverandi
menhtamálaráðherra, Gylfa Þ.
Gíslasonar o. fl. aðila hefur Sund-
höl Siiglufjarðar verið viðurkennd
sem skólabús, og sem slíkt verið
tekin inn á fjárlög ríikissjóðs, sem
þar með greiðir helming 'bygg-
ingarkostnaðar, eða áætlað kr.
1.500.000,00 á næstu fimm árum.
Þetta gerði ofckur mögulegt að
ljúka við alla innri gerð bygg-
ingarinnar á þessu vori og einnig
mun mögulegt að ljúka við múr-
ÞEll
GERÐL
GARÐ
INH
FRÆGAK
Myndin er af hinni fræknu boðgöngusveit Siglfirðinga, og við hlið
þeirra er Baldur Ólafsson, er var einn af fararstjóruni
Siglfirðinga. Myndina tók Þorleifur Haraldsson.
húðun og málun á húsinu að utan
í sumar, og yrði þá húsið full-
gert í haust sem S'UndhöW, bæði
að utan og innan, og búið öllum
nauðsynlegum tækjum.
Auk þessa er svo fyrirhugað
á næstunni að leggja gó'lf yfir
sundlaugarþróna og nota húsið á
vetrum som íþrótltahús. Kostar
sá útibúnaður allur um 1 milljón
króna og ætti ekki að vera neitt
sérstakt vandamáil að framkvæma
það, þar ssm fjármagn fyrir því I
er tiltækt á næstunni. Yrði þá hús I
þetta starfræfct sem sundhöll á
sumrum og íþrófitahús á vetrumr
en fyrir hvort tveggja er brýn
þörf. Mun húsið þannig fullbúið
sem sundhöll og íþróttahús, meö
öllum nauðsynlegum tækjum,
kosta um 4 millj króna.
Margar hendur hafa unnið að
byggingu þessa húss frá því
fyrsta skóflustungan var tckin.
Ég kann efcki fyrstu sögu bygg-
ingarinnar, en þar hafa margir
lagt fram miMa vinnu og fjár-
muni, og færi ég þeim öllum
þafckir. Frá ársbyrjun 1958 hafia
þessir menn s'taðið fyrir bygg-
ingunni: Bjarki Árnason bygg-
ingameistari, sem byggði 'húsið
fokhelt og hcfur séð um alla tré-
smíðavinnu. Sigurður Magnússon
og Baldur Ólafsson múrarameist-
arar, sem annast hafa alta múr-
vinnu. Jón Dýrfjörð o. fl., sem
annast hafa miðstöðvarlagningar
og aðra járnsmíðavinnu. Jóhann
Jóhannesson og Sverrir Sveinsson
rafvirkjameistarar, sem annast
hafa rafilagnir. Herbert Sigfús-
son málarameistari, sem annast
hefur alta máiaravinnu. — Þor-
varður Stefánsson byggingafuli-
trúi befur annast eftirlit og veitfi
ýmsar leiðbeiningar. — Og síð-
ast en ekiki sízt, Eiríkur Gðu-
•mundsson bæjarverkstjóri, sem
annast hefur alla aðdrætti og
verkstjórn, og verkamenn bæjar-
ins, sem teyst hafa hér mifcit og
góð störf af hendi. Öilium þess-
um aðilum færi ég alúðarþakkh•
fyrir hönd bæjarstjórnar Siglu-
Nýtt! - Nýtt!
★
BÓLSTURGERÐIN
Haukur Jónasson.
fjarðar, fyrir margvisteg og
vandasöm störf þeirra við þessa
byggingu, og sannast liér hið
fornkveðna, að verkið lofar meist-
arann.
Þá vil ég einnig færa þakkir
Kvennadeildinni Vörn og Skip-
stjóra o g stýrimannafélaginu
Ægi, sem lagt hafa fram fé til
þessarar byggingar. og vona ég
að þessi fétagasamtök telji, að
fjárfraimlögum þeirra hafi verið
vel varið og að tiilganginum með
l þessari sérstöfcu hugulsemi sé
náð.
Um langan aldur var það okkar
efitirlæti að halda á tofti afrek-
um forfeðranna. Við erum vel
minnug afreks Grettis, er hann
tagðist ti'l sunds úr Drangey. Við
munum Kjartan Ólafsson, er hann
þreytti sund víð Ólaf konung
1 Niðarósi. Við minnust þess, er
Helga Haraldsdóttir lagðist tii
sunds með sonu sína tvo. Það
er sjálfsaigt og cfcylt að halda á
lofiti afrekum genginna kynslóða,
en við sfeulum jafnframt minnast
þess, að möguleikar til slíkra af-
reka eru fyrir hendi cnn í dag.
Við höfum hvort tveggja, sem tií
þess þarf: Kjarnmikið og hraúst
fólk og ágæta aðstöðu. Þefcta
hvort tveggja hvetur til dáða.
Áður en starfsemi hefst í þessu
húsi, að þessu sinni fullbúnu, vil
ég mæla þessi varnaðarorð til
þeirra, sem hingað sækja: Gang-
ið vet um bygginguna. Minnist
þess að þefita er ykkiar eign, sem
allir eiga að hjálpast að við að
varðveita. Minnist þess, að þið
eruð stödd í musteri tíkamsræktar
og lífcamsmenningar og að sú
starfsemi, sem hér fer fram, hlýt-
ur að verða ungum sem öldnum
til farsæfdar.
Að svo mættu lýsi ég fyrir hönd
bæjarstjórnar Siglufjarðar, Sund-
höll Siglufjarðar opna til atmenn-
ingsafnota og vona að blessun
megi fylgja þeirri starfsemi, sem
hér á efitir að fara fram um
langan aldur.
Hreinsiö teppin
ykkar sjálf.
★
BISSEL-
teppahreinsarar
nýkomnir
ásamt
teppashampói.