Neisti - 21.12.1964, Page 8

Neisti - 21.12.1964, Page 8
Minnzt látinna Siglfirðinga ÁGOST E1NAR SIEBY V Fœddur 9. febrúar 1891. — Dáinn 28. okt. 1964. Aðfaranótt sunnudagsins 28. akt. s.l. lézt að heimili son- ar síns, iVilhelms, Hávegi 5, Ágúst Einar Sæby, 73 ára að aldri. Hann var iborinn og barnfæddur Siglfirðingur, vann hann imestmegnis við höfnina. Það rúm, sem Ágúst skip- aði, þótti vel skipað, hvort sem hann var á sjó eða landi — og nauit hann Itrausts og fæddur 9. febr. 1891. Árið 1911 giftist Ágúst, Steinþóru Barðadótltur, mik- ilhæfri konu, og eignuðust þau fimm börn, og eru fjög- ur þeirra á lífi og öll búsett hér. Ágúst stundaði sjósökn framan af ævi og oft sem formaður, en í seinni tíð virðingar samferðamanna í ríkum mæli. Við fráfall Ágústs má segja með réttu, að horfinn sé einn af hinum ágætu al- þýðumönnum, sem helga þjóðfélaginu krafta sína háv aðalaust, en með elju og trú- lyndi í starfi. Blessuð sé minning hans. OLE OLSEN Fœddur 8. nóv. 1899. Laugardaginn 21. marz s.l. gekk Ole Olsen, Máva- hlíð 11, Rieykjavík, hress og glaðlegur heiman frá sér til sinnar daglegu vinnu, en er þangað kom, var hann að lítilli stundu hðinni, lífvana. slíkt eru snögg umskipti, er hljóta að hafa djúptæk áhrif á nánustu ástvini og f jöl- skyldulíf á hvaða heimili, sem það kemur fyrir. — Er nauðsynlegt fyrir átsvini að - Dáinn 21. marz 1964. geta tekið slíkum atburðum imeð sltillingu hins andlega sterka manns, og mun svo hafa verið í þessu tilfelli. Að heilsast og kveðjast það er lífsins saga. Ole Olsen var fæddur 28. nóv. 1899 í Skálavík á Sand- ey í Færeyjum. Hingað til landsins flutt- ist hann 1928 og settist að í Vestmannaeyjum, þar sem ihann stundaði sjósókn, og þótti afburða góður sjó- maður. Til Siglufjarðar flutt- ist hann 1931, og það sama ár giftist ihann eftirlifandi konu sinni, Þuríði Pálsdótt- ur, þingeyskri að uppruna, sem nú er búsett í Hafnar- firði. Þau hjónin eignuðust tvo syni, Kjartan vélvirkja, sem nú er giftur og búsettur í Keflavík og iPál húsgagna- bólstrara, sem nú er giftur og búsettur í Hafnarfirði. Fyrstu árin hér var Ole til sjós, gerðist síðan starfs- maður hjá Síldarverksmiðj- um ríkisins, en síðustu árin áður en hann fluttist til Reykjavíkur starfaði hann ihjá ísafold s.f. Öll störf sín leysti Ole af höndum með trúmennSku og dugnaði, þannig, iað hann var eftirsóttur starfsmaður, og tryggur og góður félagi. Þau hjónin eignuðust 'gott og myndarlegt heimili að Hafnargötu 8. Þangað var gott að ikoma. Húsmóðirin dugleg og myndarleg í öll- um verkum og húsbóndinn kátur og fjörugur, enda nutu margir Siglfirðingar hinnar alkunnu gestrisni þeirra hjóna. Oft vor-u þá bridge- spilin tekin upp á dimmum haust- og vetrarkvöldum og eiga margir Bakkabúar ánægjulegar minningar frá þeim kvöldum. Ole Olsen var sérstakur aufúsuigestur á beimili for- eldra minna að Hafnargötu 4 og var alla tíð frábær vin- átta milli þessara tveggja heimila. Fyrir þessa vináttu vil ég nú þaikka þér, Ole, og öll góðu og ihúgljúfu kynnin. Þótt Ole væri fæddur og uppalinn í fjarlægu landi reyndist hann góður og nýt- ur íslenzkur ríkisborgari, er undi hér vel hag sínum og var gæfumaður- Til Reykjavíkur fluttist hann 1957 og segir mér svo hugur, að oft hafi hugur hans leitað þaðan og hingað til Sigluf jarðar, og í sumar- leyfum sínum vildi hann allt- af helzt fara hingað, til þess að leita uppi gamla vini og kunningja og vera i sigl- firzku umhverfi. Eiginkonu, svo og sonum, aldraðri móður, syStkinum og öðrum ástvinum hins látna votta ég samúð 'mána og hluttekningu. Það fflun ætáð verða bjart yfir minningu Ole Olsen. Blessuð sé minnig hans. Jóhann G. Möller Myndarleg gjöf Nýlega barst Kvenfélagi Sjúkrahússins rausnarleg gjöf að upphæð kr. 100,000 til Sjúkraliússbyggingarinn- ar í Siglufirði. Gjöf þessi er frá velunnara byggingarinn- ar, sem óskar ekki eftir að láta nafns síns getið, og mun vera búsettur sunnan- lands. Kvenfélag Sjúkrahússins og byggingarstjórn þess hafa beðið blaðið að koma á framfæri iimilegasta þakk- læti fyrir þessa stórmann- legu gjöf. 0 Ljósmynd af Siglufirði á forsíðu er tekin af Ólafi Ragnarssyni. Öll myndamót eru gerð í Siglufjarðarprent- smiðju li.f. Síldaiílutningai Að undanförnu hafa farið fram miklar umræður um það á hvern hátt hinar miklu síldveiðar fyrir Austurlandi verði sem bezt hagnýttar fyrir þjóðar- búskapinn. Sýnt þykir nú, að síldarverksmiðjurnar á Austur- landi geta hvergi nærri tekið á móti því síldarmagni, sem þar veiðist, en á sama tíma er hinn mikli verk- smiðjukostur á Norðurlandi ónothæfur. Mannekla við verksmiðjurnar fyrir austan kemur nú veg fyrir full afköst þeirra, en hér norðanlands, t.d. á Siglu- firði, er nægilegt vinnuafl fyrir hendi, til þess að fullnýta verksmiðjurnar hér, hvort sem um er að ræða yfir sumar- eða haustmánuðina. Á fundum í stjórn SR, sem voru haldnir í Reykja- vík urn mánaðamótin nóv.—des. s.l. voru þessi mál all ýtarlega rædd og flutti þá fulltrúi Alþýðuflokks- ins í stjórn SR, Jóh- G. Möller, eftirfarandi tillögu: „Verksmiðjustjórnin telur, að með stórauknu þróarrými við síldarverksmiðju S.R. á Seyðis- firði, með afskipunarmöguleikum í flutuinga- skip, verði hægt næsta sumar að auka all veru- lega síldarflutninga til verksm. S.R. á Norðurl. Jafnframt þessu telur verksmiðjustjórnin nauðsynlegt að taka á leigu tankskip, útbúið síldardælu, sem getur flutt 15—20 þús. mál síldar, til þess að fá úr því skorið, hvort slík skip henti ekki bezt til síldarflutninga, og um leið veitt síldarflotanum bætta þjónustu og komið í stað nýrra verksmiðja. Verksmiðjustjórnin samþykkir að fela fram- kvæmdastjórum framkvæmdir í málinu. Samþykkt var í stjórn S.R. að vísa þessari tillögu til umsagnar framkvæmdastjóranna, og má búast við umsögnum þeirra upp úr áramótunum. I MERKISAFMÆLI Anton Jóhannsson 75 ára Þann 3. október sl. átti Aniton Jóhannsson, Lindar- götu 20B, 75 ára afmæli. Anton er fæddur Siglfirð- ingur, og hefur hér dvalið allan sinn aldur. Áður fyrr stundaði hann sjósókn, m.a. á hákarlaskip- um, og þótti traustur og góður sjómaður. Síðar gerðist hann starfs- maður ihjá S.R., og befur þar gegnt ýmsum störfum með Itrúmennsku og skyldu- rækni.svo til fyrirmyndar er. Beztu hamingjuóskir. Gunnlaugur Hjálmarsson, sextugur Vinur iminn, Gunnlaugur Hjálmarsson, isem nú er bú- settur á Akranesi, átiti sex- tugsafmæli þann 11. des. s.l. I tilefni af þessum merku tímamótum, vil ég með fáum orðum þa'kka ihonum heilla- ríkt stanf fyrir siglfirzka verkalýðshreyfingu og í Al- þýðuflofcknum uim margra ára skeið. Allt frá unglingsárum hefur Gunnlaugur unnið Gleðileg jól Farsœlt komandi ár Þökk íyrir viöskipliri Þórarinn og Birgir Trésmíðaverkstæði ihörðum höndum, sér og sín- um til lífsviðurværis, en ætíð átlti hann að afloknum ströngum vinnudegi, tíma til þess að belga siglfirzkri venkalýðshreyfingu og mál- öfnum jafnaðarmanna starfs krafta sína, sem ætíð var til góðs, enda er Gunnlaugur greindur vel og gjörhugull. Gunnlaugur Hjálmarsson má ekki vamm sitt vita í neinu, og því drengur hinn bezti í þess orðs fyllztu merkingu, enda gott til vina. Eg er þess fullviss, að gömlu samherjamir þínir í verkalýðshreyfingunni og Al- þýðufiokknum hér, óska þér alls hins bezta á komandi ár- um, með þökk fyrir fórn- fúsu störfin, sem aldrei verða þér fullþökkuð. Lifðu heill! Jóhann G- Möller

x

Neisti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.