Neisti - 23.12.1965, Side 9

Neisti - 23.12.1965, Side 9
JÓLABLAÐ 1965 N E I S T I JÓLABLAÐ 1965 ÁBYRGÐ h.f TRYGGINGASTOFNUN BINDINDIS- MANNA vekur athygli yðar á hinum hagkvæmu tryggingum fyrir bindind- ismenn: Ábyrgðartryggingum bifreiða Kaskótryggingum bifreiða Reiðhjólatryggingum m. hjálparvél Farjíegaslysatryggingum í einkabifr. Allt-í-eitt heimilistryggingar Allt-í-eitt ferðatryggingar og fleiri tryggingar Leitið upplýsinga hjá irniboðsinanni vorum á Siglufirði GUÐMUNDI KRISTJÁNSSYNI Gleðileg jól! Farsœlt komandi ár! Þökkum viðskiptin á árinu, sem er að Iíða. HÓTEL HÖFN Ódýru 30 daga jólafargjöldin gilda frá 1.-31. desember OFTLEIÐIS LflNDfl MILL UMBODSMAÐUR VOR, Qc*lur^Í!fbimcÍaÍ kaupmaður annast fyrirgreiðslu ferðalagsins liótelpantanir, tryggingar og fleira. ÞÆGILEGAR HRADFERÐIR HEIMAN OG HEIM ÞÆGILEGAR HRADFERDIR HEIMAN 00 HEIM Einu sinni með Loftleiðnm --- ÁVALLT LOFTLEIÐIS RAFVEITUSTJÖRASTARF Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Siglufjarðar 5. nóv. s.l., er hér með auglýst laust til umsóknar franikvæmdastjórastarf við Rafveitu Siglufjarðar. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1966 og starfið veitizt frá 1. marz það ár. Nánari upplýsingar gefa formaður Rafveitunefnd- ar, Baldur Eiríksson, og undirritaður. Siglufirði, 11. nóv. 1965. BÆJARSTJÓRINN í SIGLUFIRÐI TIL SÖLU MATSTOFA SIGLUFJARÐAR ER TIL SÖLU. Nánari upplýsingar gefa Guðrún Sigurhjartar og Magnús Ásmundsson, Laugarvegi 14 — sími 202. Bindindisíélag ökumanna er sá eini fél.agsskapur öku- manna, sem ihefur algjörl bind- indi á stefnuskrá sinni. Enda til mikils að vinna í hinni hættulegu umferð iþéttbýlisins, og á vegum úti um háskamm- degi í æðandi óveðri og hálum vegi. Enda lætur félagið sig varða allt, sem umferð viðkem- ur, og gefur umboðsmönnum sínum fyrirmæli um að hafa góð samskipti við umferðarlög- reglu liver á sínum stað, ineð allt það, er til góðs iná verða í umferðinni. Auk hins daglega ávinnings að vera bindindisinaður, lætur félagið í té fyrir ársgjald, sem nemur aðeins kr. 150 á ári, um- ferðarslysatryggingu, sein trygg- ir liann fyrir hverskonar slysi í sambandi við umferð, jafnvel fyrir fótgangandi sem aðra. — Dánarthætur af völdum slysa eru 15 þús. kr. og algjör ör- orka er greidd með 75 þús. kr. Sérhver aðalfélagi getur tekið með sér inn í félagið konu sína og börn, sem njóta þá allra fríðinda. Frá barnaverndar- nefnd Siglufjarðar Barnaverndarnefnd Siglu- fjarðar vill, sem undanfarin haust, beita sér fyrir því að reglum um útivist harna sé fylgt og skorar á foreldra og aðra, sem að uppeldismálum og hverskonar æskulýðsmálum starfa, að gera sitt til þess að kenna börnum að virða lög og reglur. Nefndin vill minna á eftirfarandí atriði úr „Reglu- gerð um barnavernd í Siglu- firði“. Unglingum innan 1G ára aldurs er óheimill aðgangur að almennum knattborðsstofum, dansstöðum og öldrykkjustof- um. Þeim er óheimill aðgangur að almennum veitingastofum, ís- og sælgætis- og tóbaksbúð- um eftir kl. 20, nenia í fylgd með fuliorðnnm, sein hera ábyrgð á þeim. Unglingar innan 14 ára ald- urs er ólieimill aðgangur að opinberum kvikmyndasýning- um, leiksýningum eða öðrum sýningum, er hefjast kl. 20 eða síðar á tímabilinu 1. sept. til 1. maí, nema í fylgd forsjár- manna, enda sé myndin eigi bunnii3 unglingum af öSrum ástœSum. Unglingum innan 1G ára er óheimill aðangur og þátttaka í öluspjaldahappdrætti (Bingó), nema í fylgd með foreldrum. Eftir kl. 20 er þeim þó óheimill aðgangur með öllu að þess háttar skemmtunum. fíörn yngri en Í2 ára tnega ekki vera á almannafæri eftir kl. 20 á timabilinu frá 1. sept. til 1. mai. fíörn innan 1'r ára mega ekki vcra á almantiafæri eflir kl. 21 á tímabilinu frá 1. sept. til 1. maí. Unglingar 12—ÍG ára skulu hera aldursskírteini til þess að sauna aldur sinni og heimild til útiveru á kvöldin og aðgangs rétt að skemmtunum og kvöld- söium. Barnavermiamefiul Það er ekki nauðsynlegt að eiga bíl til að geta gerzt félagi, ekki einu sinni að hafa hílpróf. En eitt er mauðsynlegt — bind- indi. Ilver félagsmaður á kost á að tryggja bifreið sína hjá Ábyrgð ih.f., tryggingarstofnun liindindismanna, fyrir mjög hagkvæm kjör. Sem dæmi upp á hagkvæmi og ódýrar trygg- ingar, er það, að þeir ökumenn sein hafa tryggt lijá félaginu undanfarin 4 ár, og ekki hafa valdið tjóni á tímabilinu, aka á 5. ári fyrir aðeins hálft iðgjald, og njóta nú þessara lríðinda rúinlega 250 ökumenn víðsvegar um landið. Eg hef þá sögu að segja, að hér í mínu umdæmi, Siglufirði, hefur eng- inn félagsmaður valdið svo mikLu sem eins eyris tjóni síðast liðna mánuði, og hef ég 'þó um 30 bílatryggingar. Þetta tel ég lofsverðan ávinning, og sönnun iþess, að það borgar sig að aka með gát og vera bind- indismaður. Guðmundur Kristjánssou Verkamannafélagið „ÞRÓTTUR“ óskar meðlimimi sínum og allri alþýðu Siglufjarðar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs Verkakvennafélagið „Brynja“ óskar öllum félögum sínum og öllum Siglfirðingmn gleðilegra jóla og farsæls komandi árs Auglýsing til húsbyggjenda Hinn 21. sept. s.l. staðfesti Félagsmálaráðuneyitið nýja reglugerð um lánveitingar Húsnæðismálasltjórn- ar. Reglugerð þessi var síðan birt í B-deild Stjómar- tíðinda hinn 15. okt. s.l. Nauðsynlegt er að vekja athygli þeirra, sem hyggjast sækja um lán til Hús- næðismálastjórnar, á því, að samkvæmt 14. gr. þeirrar reglugerðar skal Húsnæðismálastjórn fylgja eftirfarandi reglum varðandi stærð nýbygginga við úrskurð um lánshæfni umsókna: a) Fyrir fjölskyldu, sem telur 1—2 meðlimi, allt að 70m2 liámarksstærð, netto. b) Fyrir fjölskyldu, sem telur 3—5 maiins, allt að 120m- liámarksstærð, netto. c) Fyrir fjölskyldu, sem telur 6—8 manns, allt að 135m- hámarksstærð, netto. d) Séu 9 manns eða fleiri í heimili, má bæta við hæfilegum fermetrafjölda fyrir hvern fjölskyldu- meðlim úr því með þeirri takmörkun hámarks- stærðar, að ekki verði lánað út á stærri íbúðir en 150m2, netto. Varðandi b-, c-og d-lið, skal þess sérstaklega gætt, að lierbergjafjöldi sé í sem mestu samræmi við fjöl- skyldustærð. Öll fermetramál skulu miðuð við innan- mál útveggja. Þá skal einnig bent á, að sambvæmt 13. gr. sömu reglugerðar, skulu umsækjendur — á meðan eftir- spurn eftir lánium hjá Húsnæðismálastjórn er eikki fullnægt — sem svo er ástatt um, og lýst er í staf- liðum a til d hér á eftir, eigi fá ián: a) Eiga eða liafa átt s.l. 2 ár nothæfa og fullnægj- andi íbúð, þ.e. 12 m2 netto pr. fjölskyldumeðlim að innanmáli herbergja og eldhúss. b) Byggja stærri íbúðir en ákveðið er í 14. gr. c) Byggja fleiri en eina íbúð. d) Hafa góða lánsmöguleika aimars staðar, t.d. sam- bærileg eða betri en lán samkvæmt reglugerð þessari veita, eða næg fjárráð, að dómi Hús- næðismálastjórnar, svo að þeir geti betur komið íbúð sinni í nothæft ástand, án frekari lána, mið- að við aðra umsækjendur, er afgreiðslu bíða. c) Fengið hafa hámarkslán á s.l. 5 árum, nema sér1- stakar ástæður séu fyrir hendi að dómi Hús- L næðismálastjórnar. í Þetta tilkynnist yður hér með. ( Húsnæðismálastofnun ríkisins

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.