Neisti - 22.12.1966, Blaðsíða 10

Neisti - 22.12.1966, Blaðsíða 10
NEISTI JÖLABLAÐ 1966 Nýja sjúkrahúsið tekið í notkun Listaverk Höllu Haraldsdóttur, er prýðir anddyri nýja sjúkrahússins. Þann 15. des. s.l. var nýja sjúkrahúsið vígt og afhent Siglufjarðarkaupstað til nm- sjónar og reksturs. Byrjað var að grafa fyrir grunni hússins 17. nóvember 1958, en 1960 hófst bygg- ingin fyrir alvöru. í fyrstu var fyrirhugað að byggja við gamla sjúkrahúsið, en frá því var fljótlega horfið, og hafði Vilmundur Jónsson þáverandi landlæknir for- ustu í því. Nýja sjúkrahúsið er að stærð 860 fermetrar, rúm- mál um 8000 rúmmetrar. Byggingarkostnaður mun nú vera um 20 millj. króna. Samkvæmt lögum leggur ríkissjóður fram 60% af kostnaðarverði hússins, en bæjarsjóður 40%. 1 sjúkrahúsinu eru 40 rúm, 26 á miðhæð, sem er aðalsjúkradeild hússins og á efstu hæðinni 14 rúm, sem einkum eru ætluð eldra fólki. Allar teikningar af hús- inu hefur Sigurjón Sveinsson arkitekit, gert, og hefur hann og systkini hans gefið teikn- ingamar og aðra vinnu hans í sambandi við bygginguna, til minningar um foreldra þeirra, Geirlaugu Sigfúsdótt- ur og Svein Jónsson tré- smíðameistara. Hafa þau Fyrsti spyrðuklúbburinn Fremri röð frá vinstri: Valírerður Landmark, Guðrún Sig'urðardóttir, Jóna B. Möller, Aaðalbjörg Friðvinsdóttir, Sigríður Jónsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Sigríður Sigurðardóttir, Petra Landmark, 'Sigurbjörg Hólm, Anna Gunnlaugsdóttir, Freyja Jónsdóttir Innan Kvenfélagsins ,Von‘ hefur verið starfandi til f jölda ára svonefndur Spyrðu klúbbur. Konumar í klúbbn- um hnýta spyrður og selja þær skreiðarframleiðendum í bænum, aðallega S. R. Á- góðann af þessari vinnu sinni hafa kvenfélagskonurn- ar lagt í sérstakan sjóð. Þann 9. júlí í sumar af- henti frú Sigríður Jónsdóttir 125 þús. kr. úr sjóðnum til elliheimilisdeildar sjúkra- hússins nýja, til minningar um frú Sigurbjörgu Hólm, er lengi var formaður Kven- félagsins ,,Von“ og um lang- an tíma aðal drifkrafturinn í starfsemi Spyrðu-klúbbs- ins. Starfsemi Spyrðuklúbbs- ins heldur áfram og nú nýt- ur hann handleiðslu frú Ól- afar Kristinsdóttur. mí IfPH | J Ólafur Þ. Þorsteinsson, Iæknir, formaður byggingarnefndar ný.ja sjúkrahússins, afhendir Sigurjóni Sveinssyni, arkitekt, gjöf frá nefndinni. systkinin með þessari gjöf sinni heiðrað foreldra sína að verðleikum, en þau vom með merkari borgurum þessa bæjar. Byggingarmeistari er Skúli Jónasson, múrarameistarar Baldur Ólafsson og Sigurð- ur Magnússon, raflagnameist arar Jóhann Jóhannesson, Sverrir Sveinsson og Birgir Gestsson, málarameistari Herbert Sigfússon og pípu- lagningameistari Jón Dýr- fjörð. Form. bygginganefndar undanfarin ár hefur verið Ólafur Þ. Þorsteinsson, sjúkrahússlæknir. Ýmis félagasamtök í bæn- um, svo og einstaklingar, hafa stutt byggingu sjúkra- hússins með stómm fjár- framlögum frá upphafi, og er þar stærstur hlutur Kven- félags Sjúkrahússins, er nú hefur lagt fram til bygging- ar sjúkrahússins á þriðju milljón króna. Form. Kven- félags Sjúkrahússins hefur verið frú Hildur Svavars- dóttir, þar til í haust, að frú Kristine Þorsteinsson tók við því starfi. Þá hefur Kvenfélagið „Von“ lagt af mörkum til sjúkrahússbyggingarinnar um hálfa milljón króna. Margir einstaklingar hafa, eins og áður segir, stutt bygginguna með stórum fjárfúlgum, og er framlag Elísabetar Erlendsdóttur, fyrrverandi yfirhjúkmnar- konu gamla sjúkrahússins, þar stærst, en hún hefur gefið til byggingarinnar um 350 þús. kr. 1 nýja sjúkrahúsinu getur að líta marga muni, er fé- lagasamtök og einstaklingar Framhald inni í blaðinu r „Móðurklukkan“, er stjórnar 19 klukkum, sem staðsettar eru á ýmsum stöðum í sjúkrahúsinu.

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.