Neisti - 27.05.1978, Page 1
Málgagn Alþýðuflokksins 1 Norðurlandskjördæmi vestra
3 tölublað Laugardagur 27. maí 1978 47. árgangur
★ Skrifstofan er í Borgarkaffi
þar eru veittar upplýsingar. Alþýðuflokksfólk
er hvatt til að koma á skrifstofunaa. Tökum öll
þátt í kosningabaráttunni.
★ Bíla- og upplýsingasíminn er 7 14 Gg. Þeir,
sem þurfa að nota bíla, hafi ninsamlegast
samband við skrifstofuna.
★ Kaffiveitingar ffyrir stuðnigsmenn A - list-
ans eru í Borgarkaffi frá kl. 15. Komið í kosn-
ingakaffið.
Alyktun Alþýöuflokksinssy a
um bæjarmál Siglufjarðar™ “
Atvinnumál
Bæjarstjóminni ber að bejta öllum ráðum til að
stuðla að og tryggja atvinnulífið í bænum
a) Með því að byggingu hraðfrystihúss Þormóðs
ramma h.f. verði lokið á þessu ári og húsið tekið í
notkun vorið 1979
b) Lagmetisiðjan Siglósíld
Alþýðuflokkurinn er algerlega andstæður sölu fyrir-
tækisins. Hagkvæman rekstur fyrirtækisins ber að efla
á allan hátt og auka.
Alþýðuflokkurinn lítur svo á, að í framtíðinni þurfi
fyrirtækið að fullnýta öll grásleppuhrogn, sem hér
koma að landi.
c) Húseiningar er vaxandi fyrirtæki sem ber að efla og
treysta þarf fjárhagslegan grundvöll þess t.d. með því
að skipuleggja byggingasvæði hér í bænum fyrir slík
hús.
d) Alþýðuflokkurinn mun heilshugar styðja alla þá
aðila, sem hér vilja treysta atvinnuöryggi í bænum. T.d.
smábátaútgerð í bænum, iðnað o.fl.
Hafnarmál:
Alþýðuflokkurinn fagnar því að loksins er uppbygg-
ing hafnarinnar hafin, með byggingu bryggju fyrir
togskip bæjarins.
En betur má ef duga skal. Á næstu fjórum árum
dugar ekkert annað en stórátak til að koma málefnum
hafnarinnar í eðlilegt ástand.
a) Skipulag og uppbygging aðstöðu fyrir smábátaút-
gerð í samráði og samstarfi við sjómenn.
b) Steypingu á þekju og endurbætur á öldubrjótnum.
:) Dýpkun hafnarinnar
Orkumál:
Unnið verði að því að Rafveita Siglufjarðar tengist
orkukerfi landsiris, svo tryggt sé í tíma að fyrirtækið
verði fært um að mæta þeirri aukningu sem verður. á
orkunotkun á næstu árum.
Hitaveita:
Ef rannsóknir leiða það í ljós, að ekki sé að vænta
meira vatns af laugarsvæðinu í Skútudal, Verði endur-
skoðaðar þær athuganir sem fram hafa farið á þeim
möguleika að vinna heitt vatn í Fljótum. Slíkt verði gert
í samvinnu og samráði við heimamenn þar. Einnig
verði gerð könnun á nýtingu á raforku til upphitunnar.
Með tilliti til hagkvæmni við samtengingu á rafkerfi
Rafveitu Siglufjarðar og orkukerfi landsins
Hið fyrsta verði fyrirtæki bæjarins, Rafveita og
Hitaveita, sameinuð undir eina stjórn, og haft þar í
huga hagkvæmni á dreifingu orku og rekstri.
Skipulag:
Skipulag byggðar hefur megináhrif á svip og eðli
þess umhverfis, sem ris í þéttbýli
Gott skipulag gerir ráð fyrir félagslegum þjónustu-
mannvirkjum, ræður hæfilegum aðskilnaði milli íbúð-
arhverfa og atvinnurekstrar.
Af þessum sökum ber bæjarstjórninni að leggja ríka
áherslu á skipulag fram í tímann og beita sér fyrir
sýningum á hugmyndum og sem almennustum um-
ræðum meðal íbúanna.
Skipulag lóða undir einna hæða íbúðahús er brýn-
asta verkefnið.
Húsbyggingamál
Haldið verði áfram byggingu leigu- og söluíbúða.
Byggður verða á kjörtímabilinu 10-12 íbúðir fyrir
aldraða í samráði við félagssamtök í bænum.
Gatnagerð:
Haldið verði áfram gatnagerðarframkvæmdum eftir
því sem efni og ástæður leyfa.
Ný vatnsveita:
Eitt af stórverkefnum næsta kjörtímabils er ný vatnsveita
og endurskipulag vatnsveitukerfisins.
Til þess að þetta takist þarf að koma til fjármagnsað-
stoð ríkisvaldsins.
íþróttamál:
1) Við lýsum yfir fulium stuðningi við uppbyggingu
íþrótta- og æskulýðshreyfinga í bænum, eftir því
sem fjármagn bæjarins leyfir, og bendum á að vel-
ferð æskunnar geti verið undir því komin, hvernig
að þessum málum verði staðið.
2) Lofaðar endurbætur á íþróttavellinum verði
framkvæmdar í sumar eða haust.
3) Undirbúningi að byggingu íþróttahúss verði
haldið áfram og teikningar gerðar.
Framhald á 4. síðu