Neisti - 23.12.1980, Qupperneq 1
IV V? W HP A'
JlH Wj M 9 JL il
meðyður
alla
daga, “
(Matt. 2S:20;.
Jólin koma. Hin hljóða nótt
eða nóttin blíða, eins og segir í
nýrri þýðingu af sálminum
Heims um ból. Við erum leidd að
lágreistri jötu, „hörðum stalli“
frelsarans og í ljóma hennar fá-
um við að gleðjast með okkar
nánasta fólki, — þeir, sem á
annað borð mega það og geta.
Sumir komast ekki heim fyrir jól.
Það er jafnan viðmiðun á ís-
landi að komast heim fyrir jólin
og hvaða Siglfirðingur þekkir
ekki þá viðmiðun. Menn leggja
jafnvel á sig ferðir landa í millum
til að komast heim um þessa
ljóssins hátíð og slíkum föru-
mönnum er fagnað eins og ný-
fæddu bami. En svo eru þeir,
sem ekki komast, vegna fjar-
lægðar, vegna sjúkdóms, og
sjúkravistar, — og sumir eiga
hvergi heima, þrátt fyrir velmeg-
un í landinu. Svona er þetta allt í
kringum okkur. Líf hlaðið and-
stæðum ríkdóms og örbirgðar,
heilbrigðis og sjúkdóms, gleði og
sorgar.
En þótt þessu sé svo farið sem
raun ber vitni, þá er ekki þar með
sagt að það sé hið rétta lífs-
munstur, sem okkur beri að sætta
okkur við og viðhalda. Öðru nær.
Bam jólanna var sent í þennan
heim í öðrum tilgangi en þeim,
að viðhalda þjóðfélagsskipan
mannlegs breiskleika. Kristur
birtist hér á jörð í þeim dlgangi
að opna augu mannanna fyrir
kærleika Guðs og kenna þeim að
sjá tilgang lífsins af sjónarhóli
þess er elskar og virðir, imber og
vekur von. „Svo elskaði Guð
heiminn að hann gaf son sinn
eingetinn, til þess að hver, sem á
hann trúir, glatist ekki, heldur
hafi eilíft líf“, (Jóh. 3:16). Jó-
hannes guðspjallamaður segir
um hann í hinum stórkostlega
formála að guðspjalli sínu (Jóh.
1): „Hann kom til eignar sinnar
og hans eigin menn tóku eigi við
honum, en öllum þeim, sem tóku
við honum, gaf hann réttinn til
að vera Guðs börn, þeim sem
trúa á nafn hans.“ Það eru stór
orð og vekja óneitanlega til um-
hugsunar.
Við fögnum því á jólum að
IJANN kom til eignar sinnar.
Hvað felst í því? Hve sannur er sá
atburður fyrir okkur hverju
sinni? Það skiptir öllu að við sé-
um einlæg í leit að svari. Er ég sá
sem ekki tekur við honum eða
má ég telja mig vera Guðs barn?
Hverju trúi ég í öllu því umstangi
sem jólum fylgir.
Það er oft freistandi að víkja
áleitnum spurningum til hliðar,
það er svo margt annað að hugsa
nú á tímum og tíminn er naumur
í vitund hins ákafa og duglega
athafnamanns verðbólguskeiðs.
Og það er býsna erfitt fyrir at-
hafnamann og hinn sjálfbjarga
að finna fyrir því að Guðs sé
þörf. Jól fyrir slíkum manni
verða varla meira en hátíð, til-
breyting, hvíld frá daglegu
amstri stutta stund, — ekki
gleðidagur, sem gjörbreytir öllu í
lífinu, eins og fyrsta barn hverrar
fjölskyldu. En víst er það þess
virði að fara að boði englanna:
„Farið og þér munuð finna ung-
barn reifað og liggjandi í jötu“.
Guð velur ekki úr, þegar hann
býður okkur að vöggu sonar síns.
Ekki heldur þegar hann leiðir
okkur að krossi hans. Öllum er sá
réttur til reiðu fyrir nafn Jesú, öll
erum við Guðs börn, en því
miður erum við ekki öll reiðu-
Sr. Birgir Ásgeirsson
búin að meðtaka þá blessun.
í frásögn Lúkasar af jólavið-
burðinum (Lúk.2) er vitnað í
dýrðarsöng englanna er ómaði
fyrir eyrum fjárhirðanna: „Dýrð
sé Guði föður og friður á jörðu
með mönnunum, sem hann hef-
ur velþóknun á.“ Þessi samsöng-
ur englanna hefur einmitt valdið
mörgum heilabrotum, því svo
sýnist, að Guð fari hér í mann-
greinarálitog hafi ekki velþókn-
un nema á vissum mönnum.
Vera má að þýðingin valdi mis-
skilningi, en hér er þó sagt að
friður sé yfir mönnunum, en á
þeim hefur Guð einmitt vel-
þóknun. Einmitt af þeim ástæð-
um minnumst við þess, að Guð
hefur opnað faðm.. sinn fyrir
manninum og við megum njóta
nafnsins, sem öllum nöfnum er
æðra, Drottins Jesú.
Að trúa á nafn hans er ekki
aðeins fólgið í því að þekkja
þetta nafn af afspurn, heldur
fyrst og fremst það að þekkja
persónu Jesú, eiginleika hans,
kærleika hans, viðbrögð hans, er
hinir þjáðu leita hans, svör hans
er leiða átti hann í gildru, kenn-
ingu hans og starf hans, en þó
umfram allt fórn hans okkur til
handa. Það er hlutverk okkar að
börn þessa heims fari ekki á mis
við þá blessun og þann fyrirgef-
andi mátt, sem í þessu nafni jól-
anna felst.
Stúlka ein yfirgaf unnusta sinn
og hugðist hverfa úr landi. Hún
taldi sér trú um fyrir áhrif ann-
arra, að hún gæti aldrei gengið
með honum alla ævi upp frá því.
En þegar frá leið sá hún eftir
ákvörðun sinni, því hún fann~að
hugur hennar í hans garð var
bundinn sterkari böndum en hún
hafði búist við. En nú virtist það
um seinan og stolt hennar bann-
aði henni að fara sjálf og leita
fyrirgefningar. Hún vissi ekki að
unnusti hennar sat eftir með
brostið hjarta og þráði þaó
að hitta stúlkuna sína aftur. Nú
ákvað stúlkan þó að senda þess-
um unnusta sínum jólagjöf í
þeirri von að hann skildi, að hún
sæi eftir öllu. Pakkinn var
myndarlegur og stór og unnust-
inn flýtti sér að opna hann, af því
að munnleg skilaboð fylgdu frá
hverjum hann væri. I pakkanum
var verðmikill fallegur hlutur, en
af því að pilturinn hélt að þetta
væri einhver sárabót frá fyrrver-
andi unnustu sinni varð hlutur-
inn harla lítils virði fyrir honum.
En þá rak hann augum í örlítið
kort fyrir tilviljun, sem smeygt
hafði verið í pakkann. A því stóð:
„Má ég koma heim?“ Nú fekk
jólapakkinn skyndilega nýtt gildi
og það sem áður hafði verið
haldlítil sárabót varð nú að heitri
og mikilvægri ástarjátningu. í
flýti hélt ungi maðurinn niður að
höfn. Þar beið stúlkan þess að
skipið léti úr höfn, vonlaus um að
tilraun hennar bæri árangur. En
vonleysið snerist í óumræðilegan
fögnuð, þegar þessir tveir elsk-
endur héldu heim á leið tilbúnir
að bjóða öllu birginn, sem gerði
tilraun til að spilla samlífi þeirra
og ást.
Það er oft mikið átak að leita
sátta og ómældan kjark þarf til
að opinbera innstu tilfinningar
sínar og stundum verður að gefa
gaum að hinu smá, og fyrirferð-
arlitla til að finna dýrmætustu
gjöfina.
Megi jólabarnið vekja þá
helgu löngun og trú í brjóstum
okkar, sem fær okkur til að ganga
á vit ljóssins og friðarins, sem frá
gjöf himnanna stafar. Það væri
okkur öllum blessun, börnum
okkar og ástvinum, ef við fynd-
um okkur eiga heima í þeim
ranni, sem hýsti lágreista jötu og
lítið barn, sem Guð gaf í þennan
heim um leið og hann gaf okkur
réttinn til að kallast Guðs börn
fyrir nafn þessa litla barns jól-
anna. Þá erum við heima hjá
þeim, sem okkur elskar og fagnar
komu okkar. Þá eruð við í faðmi
þess er aldrei bregst og veitir líkn
í hverri raun, lífi og dauða.
GLEÐILEG JÓL.