Neisti - 23.12.1980, Blaðsíða 8

Neisti - 23.12.1980, Blaðsíða 8
Minning: Sigfús Ólafsson Hlíð Siglufirði Fæddur 24. ágúst 1882. Dáinn 3. nóvember 1980. Að muna tímana tvenna er orðtak sem mér kom í hug er mér barst fréttin um andlát langafa míns enda var hann 98 ára gamall er hann lést. Gn hann naut þess að vera andlega hress allt fram í andlátið og fylgdist af áhuga með öllu sem honum fannst máli skipta en það voru öðru fremur við ættingjar hans, velferð okkar og lífshamingja, hvort við hefðum góða og trygga vinnu, næga vinnu og svo í annan stað atvinnulíf bæjarins. Enda var siðasta hugs- un hans í þessu lífi sú hversu mikil loðnubræðslan hefði verið þann daginn. Það kom okkur því ekki á óvart og höfðum við á orði að þetta væri honum iíkt. Mér verður títt hugsað til þeirra stunda er ég sem lítil stúlka svaf í sama herbergi og hann og varð aðnjótandi sagna hans um gamla tímann og þó sérstaklega lífi og starfi alþýðu manna, hans lífi, allt frá því er hann ólst upp á barnmörgu, fátæku heimili í Ólafsfirði og flyst síðar sem ungur maður til Siglufjarðar og hefur þar búskap, fyrst fyrir handan fjörð og síðar er hann fyrstur manna byggir húsið sitt í hlíðinni, Hlíð. í Sigiufirði kynntist hann ömmu, Sólveigu Jóhannsdóttur frá Hóli. Ég var ekki svo lánsöm að kynnast ömmu, Sólveigu í Hlíð, eins og hún var jafnan nefnd. Það var ekki oft sem hún barst í tal okkar í milli en auðheyrð var virðingin í lýsingum hans á henni. Hún hafði verið mikilhæfur dugn- aðarforkur, sem hann virti svo mikils. Mér er það ríkt í huga hvað vinnan var honum mikils virði og honum fannst mest um vert að allir hefðu atvinnu því þá fannst honum öllu borgið. Vinnan var fyrir öllu. Iðjuleysi og starfsleysi var hans mesti óvinur enda vann hann í Mjölhúsinu þar til hann neyddist til að láta af störfum fyrir aldurs sakir og gaf þó ekki þeim yngri neitt eftir í vinnu og afköstum þá orðinn 85 ára gamall. Þá fannst manni stundum eins og honum fyndist lífshlaup sitt mætti fara að taka enda þegar vinnan var ekki lengur fyrir hendi. Það gætti ævinlega mikillar festu og styrks í návist hans og það var ekki erfitt að sjá ef honum mislíkaði þegar við systkinin vor- um að ólátast meira en góðu hófi gegndi. Orðin voru ekki mörg en einhvern veginn fundum við þegar við höfum gengið of langt. Það duldist ekki þegar maður komst til vits og ára að jafnað- arstefnan var lífshugsjón hans þó aldrei væri reynt að hafa bein áhrif á skoðanir manns í þeim efnum. Þó fór ekki hjá því að maður fann að sú stefna værf rétt og sú skoðun hans var sannfær- andi. Hann gekk ætíð beint til verks, hafði ákveðnar skoðanir og bar hag Alþýðuflokksins' og jafn- aðarstefnunnar mjög fyrir brjósti og taldi hag fólksins, hins vinn- andi manns, eiga besta samleið með þeirri stefnu. Það er margs að minnast þegar hann afi minn er allur, og margt gaf 'hann mér sem veganesti í lífinu. Styrk og stöðuglyndi og að standa sig í þeim störfum sem maður tekur sér fyrir hendur. Forðast að gera of mikið úr hlutunum og ganga hreint og heiðarlega til verks. Með þessum orðum vil ég þakka afa mínum þátt hans í-lífi mínu og minning hans mun ávallt verða mér kær. Sólveig Helga Jónasdóttir. Með Sigfúsi Ólafssyni í Hlíð er til moldar hníginn einn af merk- ustu og bestu borgurum þessa bæjar. Sigfús var fæddur 24. ágúst að Reykjum íÓlafsfirði. þarsem hann ólst upp til 12 ára aldurs, en þá fluttist hann hingað til Siglufjarðar og lifði hér og starfaði í 86 ár. Það voru margvísleg störf sem Sigfús leysti af höndum á þessum árum. enda rómaður dugnaðar- og atorkumaður. Unt 17 ára skeið var hann sjómaður á hákarla- og sild- veiðiskipum og talsvert af þeim tíma stýrimaðúr. Fyrir mörgum árum síðan var hér starfandi losunar- og lestunar- félag. skipað duglegum og af- kastamiklum verkamönnum og var Sigfús urn tíma formaður þess fé- lags og síðar gjaldkeri. Síðar gerðist hann starfsmaður hjá Síldarverk- smiðjum ríkisins og vann þar erf- iðisvinnu allt til 85 ára aldurs. án þess að láta hlut sinn fyrir sér vngri mönnum. Slíkur eljumaður var Sigfús í Hlíð. Sigfús Ólafsson var dreng- skaparmaður með fastmótaða skaphöfn. Mikill vinur vina sinna og margir eru þeir. sem hann hjálpaði og studdi á lífsleiðinni. en hann hafði aldrei hátt um það. Vinsæll var hann og vinamargur. Hann var einn af brautrvðjend- um Alþýðuflokksins og jafnaðar- stefnunnar í þessum bæ. Á fvrstu árum þessara samtaka var þjóðar- andinn þannig. að nokkra djörfung þurfti til að taka sér stöðu þar í fylkingarbrjósti. En Sigfús Ólafs- son hikaði þar aldrei. Verkamað- urinn í dag hefur ekki hugmynd um. hvað störf brautryðjandans voru mörg og hvað starfsskilyrði voru erfið í mörgum tilfellum. Störf brautryðjendanna verða því aldrei metin til fulls af nútíðinni. enda enginn jarðneskra fjármuna mælikvarði til yfir þau. Siglfirskir jafnaðarmenn þakka Sigfúsi holl- ustu og drengskap við góðan mál- stað. Hinn 1. mars 1903 gekk Sigfús að eiga Sólveigu Jóhannsdóttur. mestu sæmdarkonu. Sólveig í Hlíð tók virkan þátt í starfsemi kvenfé- lagsins,.Von" og þótti skörungur mikill, sem lét verkin tala. Þau hjónin eignuðust tvö börn, Þorfinnu búsetta hér í bæ og dreng sem dó ungur. Þau Sigfús og Sól- veig ólu upp mörg börn og reynd- ust þeim öllum sem bestu foreldr- ar. Heimili þeirra hjóna í Hlíð var víðfrægt fyrir rausn og myndar- skap allan. Þar fór saman hlýlegt viðmót og alúðleg framkoma við hvern sem í hlutátti. Þar voru allir jafnir. í Hlíð var siglfirskt höfð- ingjasetur. Því fer nú óðum fækkandi hér í bæ. fólkinu. sem með dugnaði og fórnfúsu starfi mótuðu og skópu bæjarfélagið upp úr aldamótun- um.. Það er mikil og merkileg saga sem liggur að baki ævi og lífsstarfi Sigfúsar Ólafssonar. sem væri holl kynning ungu fólki í dag. ..Þú ert kominn heill til hafnar. hafs úr róti um mannlífs stig. Nú er dagur nýr upp runninn. nú er bjart í kringum þig. Eiga marga arfa slíka æðsta gæfa hverri þjóð. Virðing heið og vinahugir vörðinn standa utn minjasjóð." G.H. Blessuð sé minning Sigfúsar Ól- afssonar. Jóhann G. Möller Tilkynning frá bæjarfógetanum á Siglufirði Síðasti gjaldagi þinggjalda ársins 1980 var 1. desember s.l. Dráttarvextir, 4,75 % reiknast á öll vanskil fyrir hvern byrjaðan vanskilamánuð. Hér með er skorað á alla, sem enn hafa ekki gert full skil að gera það nú þegar. Öll vanskil á þinggjöldum verða innheimt með lögtaksaðgerðum á kostnað gjaldenda. Bæjarfógetinn á Siglufirði TILKYNNING Eins og að undanförnu er fólki gefinn kostur á að lýsa upp leiði í kirkjugarðinum um jólin. Þurfa öll Ijósastæði að vera komin í garðinn í síðasta lagi 19. desember. Þeir sem síðar koma með Ijósastæði, eiga á hættu að fá þau ekki sett í samband. öll Ijósastæði skulu vera vel merkt eiganda. Nánari upplýsingar gefa starfsmenn Rafveitunnar. RAFVEITA SIGLUFJARÐAR SÓKNARNEFND SIGLUFJARÐAR AUGLYSING UM LÓÐIR IINNRI HÖFN. Á næsta ári mun Siglufjarðarkaupstaður út- hluta lóðum til byggingar fiskverkunarhúsa við Innri höfn. Svæði það, sem hér um ræðir, er á uppfyllingu, sunnan fyrirhugaðrar smábáta- hafnar. Svæðið hefur þegar verið deiliskipu- lagt, og liggur tillaga að deiliskipulagi frammi hjá byggingafulltrúa. Þeir, sem áhuga hafa á lóðum þessum, skulu senda umsóknir sínar til byggingafulltrúa fyrir 10, janúar n.k. Nauðsynlegt er, að umsækjend- ur geti í umsókn sinni um stærð fyrirhugaðs fiskverkunarhúss. Byggingafulltrúi. óskum öllu starfsfólki voru og viðskiptavinum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs Síldarverksmiðjur ríkisins HEIMIUSBINGÚ Þessar tölur Kafa verið dregnar út: Miðað við 22/12. B I N G O 8 28 31 51 66 10 23 44 56 75 13 22 38 52 74 15 16 45 48 64 9 19 34 47 71 3 26 40 53 63 1 20 43 58 72 5 24 37 50 70 2 17 60 61 29 73 27 62 30 65 25 Hvert Bingóspjald er einnig HAPPDRÆTTISMIÐl 02 komu þessi númer upp: 781, 1821, 7409, 2833, 1828, 6473, 3802, 5211, 411, 4829, 2012, 6887. Vinningar eru Fischer-price leikföng, konfekt og plötur. Vinningamir verða afhentir milli kl. 11 og 12 á aðfangadag á skrifstofu íþróttafulltrúa INNILEGAR ÞAKKIR fœrum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför SIGFÚSAR ÓLAFSSONAR, Hlíð Siglufirði. VANDAMENN TILBOÐ óskast í húseignina Aðalgötu 7 (áður eign Kaupfélags Siglufjarðar) ásamt lóðarréttindum. Tilgreint skal í tilboði hvaða greiðslukjörum er óskað eftir Tilboðum sé skilað til Guðmundar Jónassonar í Útibúi KEA á Siglufirði fyrir 29 des. 1980

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.