Neisti - 23.12.1980, Page 8
Minning:
Sigfús Ólafsson
Hlíð Siglufirði
Fæddur 24. ágúst 1882.
Dáinn 3. nóvember 1980.
Að muna tímana tvenna er
orðtak sem mér kom í hug er mér
barst fréttin um andlát langafa
míns enda var hann 98 ára gamall
er hann lést. Gn hann naut þess að
vera andlega hress allt fram í
andlátið og fylgdist af áhuga með
öllu sem honum fannst máli
skipta en það voru öðru fremur við
ættingjar hans, velferð okkar og
lífshamingja, hvort við hefðum
góða og trygga vinnu, næga vinnu
og svo í annan stað atvinnulíf
bæjarins. Enda var siðasta hugs-
un hans í þessu lífi sú hversu
mikil loðnubræðslan hefði verið
þann daginn. Það kom okkur því
ekki á óvart og höfðum við á orði
að þetta væri honum iíkt.
Mér verður títt hugsað til þeirra
stunda er ég sem lítil stúlka svaf í
sama herbergi og hann og varð
aðnjótandi sagna hans um gamla
tímann og þó sérstaklega lífi og
starfi alþýðu manna, hans lífi, allt
frá því er hann ólst upp á
barnmörgu, fátæku heimili í
Ólafsfirði og flyst síðar sem ungur
maður til Siglufjarðar og hefur
þar búskap, fyrst fyrir handan
fjörð og síðar er hann fyrstur
manna byggir húsið sitt í hlíðinni,
Hlíð. í Sigiufirði kynntist hann
ömmu, Sólveigu Jóhannsdóttur
frá Hóli. Ég var ekki svo lánsöm
að kynnast ömmu, Sólveigu í Hlíð,
eins og hún var jafnan nefnd. Það
var ekki oft sem hún barst í tal
okkar í milli en auðheyrð var
virðingin í lýsingum hans á henni.
Hún hafði verið mikilhæfur dugn-
aðarforkur, sem hann virti svo
mikils.
Mér er það ríkt í huga hvað
vinnan var honum mikils virði og
honum fannst mest um vert að
allir hefðu atvinnu því þá fannst
honum öllu borgið. Vinnan var
fyrir öllu. Iðjuleysi og starfsleysi
var hans mesti óvinur enda vann
hann í Mjölhúsinu þar til hann
neyddist til að láta af störfum
fyrir aldurs sakir og gaf þó ekki
þeim yngri neitt eftir í vinnu og
afköstum þá orðinn 85 ára gamall.
Þá fannst manni stundum eins og
honum fyndist lífshlaup sitt
mætti fara að taka enda þegar
vinnan var ekki lengur fyrir
hendi.
Það gætti ævinlega mikillar
festu og styrks í návist hans og
það var ekki erfitt að sjá ef honum
mislíkaði þegar við systkinin vor-
um að ólátast meira en góðu hófi
gegndi. Orðin voru ekki mörg en
einhvern veginn fundum við þegar
við höfum gengið of langt.
Það duldist ekki þegar maður
komst til vits og ára að jafnað-
arstefnan var lífshugsjón hans þó
aldrei væri reynt að hafa bein
áhrif á skoðanir manns í þeim
efnum. Þó fór ekki hjá því að
maður fann að sú stefna værf rétt
og sú skoðun hans var sannfær-
andi. Hann gekk ætíð beint til
verks, hafði ákveðnar skoðanir og
bar hag Alþýðuflokksins' og jafn-
aðarstefnunnar mjög fyrir brjósti
og taldi hag fólksins, hins vinn-
andi manns, eiga besta samleið
með þeirri stefnu.
Það er margs að minnast þegar
hann afi minn er allur, og margt
gaf 'hann mér sem veganesti í
lífinu. Styrk og stöðuglyndi og að
standa sig í þeim störfum sem
maður tekur sér fyrir hendur.
Forðast að gera of mikið úr
hlutunum og ganga hreint og
heiðarlega til verks.
Með þessum orðum vil ég þakka
afa mínum þátt hans í-lífi mínu og
minning hans mun ávallt verða
mér kær.
Sólveig Helga Jónasdóttir.
Með Sigfúsi Ólafssyni í Hlíð er
til moldar hníginn einn af merk-
ustu og bestu borgurum þessa
bæjar.
Sigfús var fæddur 24. ágúst að
Reykjum íÓlafsfirði. þarsem hann
ólst upp til 12 ára aldurs, en þá
fluttist hann hingað til Siglufjarðar
og lifði hér og starfaði í 86 ár.
Það voru margvísleg störf sem
Sigfús leysti af höndum á þessum
árum. enda rómaður dugnaðar- og
atorkumaður. Unt 17 ára skeið var
hann sjómaður á hákarla- og sild-
veiðiskipum og talsvert af þeim
tíma stýrimaðúr.
Fyrir mörgum árum síðan var
hér starfandi losunar- og lestunar-
félag. skipað duglegum og af-
kastamiklum verkamönnum og var
Sigfús urn tíma formaður þess fé-
lags og síðar gjaldkeri. Síðar gerðist
hann starfsmaður hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins og vann þar erf-
iðisvinnu allt til 85 ára aldurs. án
þess að láta hlut sinn fyrir sér vngri
mönnum. Slíkur eljumaður var
Sigfús í Hlíð.
Sigfús Ólafsson var dreng-
skaparmaður með fastmótaða
skaphöfn. Mikill vinur vina sinna
og margir eru þeir. sem hann
hjálpaði og studdi á lífsleiðinni. en
hann hafði aldrei hátt um það.
Vinsæll var hann og vinamargur.
Hann var einn af brautrvðjend-
um Alþýðuflokksins og jafnaðar-
stefnunnar í þessum bæ. Á fvrstu
árum þessara samtaka var þjóðar-
andinn þannig. að nokkra djörfung
þurfti til að taka sér stöðu þar í
fylkingarbrjósti. En Sigfús Ólafs-
son hikaði þar aldrei. Verkamað-
urinn í dag hefur ekki hugmynd
um. hvað störf brautryðjandans
voru mörg og hvað starfsskilyrði
voru erfið í mörgum tilfellum.
Störf brautryðjendanna verða því
aldrei metin til fulls af nútíðinni.
enda enginn jarðneskra fjármuna
mælikvarði til yfir þau. Siglfirskir
jafnaðarmenn þakka Sigfúsi holl-
ustu og drengskap við góðan mál-
stað.
Hinn 1. mars 1903 gekk Sigfús
að eiga Sólveigu Jóhannsdóttur.
mestu sæmdarkonu. Sólveig í Hlíð
tók virkan þátt í starfsemi kvenfé-
lagsins,.Von" og þótti skörungur
mikill, sem lét verkin tala.
Þau hjónin eignuðust tvö börn,
Þorfinnu búsetta hér í bæ og dreng
sem dó ungur. Þau Sigfús og Sól-
veig ólu upp mörg börn og reynd-
ust þeim öllum sem bestu foreldr-
ar.
Heimili þeirra hjóna í Hlíð var
víðfrægt fyrir rausn og myndar-
skap allan. Þar fór saman hlýlegt
viðmót og alúðleg framkoma við
hvern sem í hlutátti. Þar voru allir
jafnir. í Hlíð var siglfirskt höfð-
ingjasetur.
Því fer nú óðum fækkandi hér í
bæ. fólkinu. sem með dugnaði og
fórnfúsu starfi mótuðu og skópu
bæjarfélagið upp úr aldamótun-
um..
Það er mikil og merkileg saga
sem liggur að baki ævi og lífsstarfi
Sigfúsar Ólafssonar. sem væri holl
kynning ungu fólki í dag.
..Þú ert kominn heill til hafnar.
hafs úr róti um mannlífs stig.
Nú er dagur nýr upp runninn.
nú er bjart í kringum þig.
Eiga marga arfa slíka
æðsta gæfa hverri þjóð.
Virðing heið og vinahugir
vörðinn standa utn minjasjóð."
G.H.
Blessuð sé minning Sigfúsar Ól-
afssonar.
Jóhann G. Möller
Tilkynning frá bæjarfógetanum
á Siglufirði
Síðasti gjaldagi þinggjalda ársins 1980 var 1. desember s.l.
Dráttarvextir, 4,75 % reiknast á öll vanskil fyrir hvern byrjaðan
vanskilamánuð.
Hér með er skorað á alla, sem enn hafa ekki gert full skil að gera
það nú þegar.
Öll vanskil á þinggjöldum verða innheimt með lögtaksaðgerðum
á kostnað gjaldenda.
Bæjarfógetinn á Siglufirði
TILKYNNING
Eins og að undanförnu er fólki gefinn kostur á að
lýsa upp leiði í kirkjugarðinum um jólin. Þurfa öll
Ijósastæði að vera komin í garðinn í síðasta lagi 19.
desember. Þeir sem síðar koma með Ijósastæði,
eiga á hættu að fá þau ekki sett í samband. öll
Ijósastæði skulu vera vel merkt eiganda.
Nánari upplýsingar gefa starfsmenn
Rafveitunnar.
RAFVEITA SIGLUFJARÐAR
SÓKNARNEFND SIGLUFJARÐAR
AUGLYSING
UM LÓÐIR IINNRI HÖFN.
Á næsta ári mun Siglufjarðarkaupstaður út-
hluta lóðum til byggingar fiskverkunarhúsa við
Innri höfn. Svæði það, sem hér um ræðir, er á
uppfyllingu, sunnan fyrirhugaðrar smábáta-
hafnar. Svæðið hefur þegar verið deiliskipu-
lagt, og liggur tillaga að deiliskipulagi frammi
hjá byggingafulltrúa.
Þeir, sem áhuga hafa á lóðum þessum, skulu
senda umsóknir sínar til byggingafulltrúa fyrir
10, janúar n.k. Nauðsynlegt er, að umsækjend-
ur geti í umsókn sinni um stærð fyrirhugaðs
fiskverkunarhúss.
Byggingafulltrúi.
óskum öllu starfsfólki voru og viðskiptavinum
gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs
Síldarverksmiðjur ríkisins
HEIMIUSBINGÚ
Þessar tölur Kafa verið
dregnar út:
Miðað við 22/12.
B I N G O
8 28 31 51 66
10 23 44 56 75
13 22 38 52 74
15 16 45 48 64
9 19 34 47 71
3 26 40 53 63
1 20 43 58 72
5 24 37 50 70
2 17 60 61
29 73
27 62
30 65
25
Hvert Bingóspjald er einnig
HAPPDRÆTTISMIÐl 02
komu þessi númer upp: 781,
1821, 7409, 2833, 1828, 6473,
3802, 5211, 411, 4829, 2012,
6887.
Vinningar eru Fischer-price
leikföng, konfekt og plötur.
Vinningamir verða afhentir
milli kl. 11 og 12 á aðfangadag
á skrifstofu íþróttafulltrúa
INNILEGAR ÞAKKIR fœrum við öllum þeim er
auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
SIGFÚSAR ÓLAFSSONAR,
Hlíð
Siglufirði. VANDAMENN
TILBOÐ
óskast í húseignina Aðalgötu 7 (áður eign
Kaupfélags Siglufjarðar) ásamt lóðarréttindum.
Tilgreint skal í tilboði hvaða greiðslukjörum
er óskað eftir
Tilboðum sé skilað til Guðmundar Jónassonar
í Útibúi KEA á Siglufirði
fyrir 29 des. 1980