Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1931, Qupperneq 12

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1931, Qupperneq 12
32 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ krampa. Hún var af heilbrigðri ætt, og bæði maður liennar og hún sjálf höfðu verið hraust. Um meðgöngu- timann iiafði henni liðið vel. Á (5. mánuði meðgöngu- tímans leitaði hún læknis vegna einhverrar veilu i haki. Uvagrannsókn sýndi þá ekkert óeðlilegt. Eftir tíðunum var fæðingartíminn áætlaður 21. maí. Nóttina 8. júni litlar briðir. Næsta dag velgja og upp- köst. Um kvöldið krampakast. Fékk morfin (1 ctgr.), cn skömmu siðar aftur annað kast. Var flutt frá Hönefoss á kvennaklinikkina í Osló, og þar fckk hún skömmu eftir komuna þriðja og síðasta kastið. Á milli kastanna var hún að öllu óringluð. Uað vottaði að eins fyrir bjúg. Enginn hiti. Blóðþrýst- ingur 130 RR. Púls 100, reglulcgur. Lungu og lijarta: Ekkert athugavert. Þvag: Eggjahvíta (töluv.). Vegna teppu og vandkvæða á að koma inn þvaglegg, var blaðran tæmd með ástungu. Stroganoff-meðferð fyrir- skipuð. Á kvennaklinikkinni heyrðust ekki fósturhljóð. llöfuð fyrirliggjandi, skorðað i grindaropinu -—• frem- ur stórt. Litlar hríðir. Við skoðun á fæðingarstaðnum sást, að slimhúðin í farvegsopinu var blóðþrungin, og var þar líka nokkuð föst skóf. Innri rannsókn: Legopið 3 em. Fremri vörin bólgin, klemd milli höfuðsins og nárabogans. Enginn fæðing- arsveppur, en höfuðbeinin mjög úr lagi færð. Conjugata diagonalis (skáþyktarvíddin) 11. Að svo komnu máli var álitið, að auk fæðingar- krampans væri grindin dálítið of þröng á alla vegu, og var því ákveðið að Ijúka fæðingu. 1 eter-svæfingu var klipt upp í l'remri legopsvör. Per- foration (höfuð gatað). Cranioclasie (höfuð kramið). Kleidotomie (viðbein skorin sundur). Barnið fullburða. Þyngd 3250 gr. Fylgjan kom á eðlilegum tíma, lieil með heilum himnum. Þyngd 900 gr. Stærð 17 X 20 cm. Að öðru leyti er ekkert sérstakt tilgreint um hana í sjúkra- sögunni.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.