Ljósmæðrablaðið - 01.09.1938, Blaðsíða 6
52
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
kostuðu dálítið fé og þegar árangur var enginn til efling-
ar félagsskapnum eða samtakanna, þá var þeim hætt.
í vor var fundarsókn á aðalfund með allra lakasta móti,
svo að verra má það ekki vera ef nokkur fundur á að
vera haldinn og nokkuð að gela gerst. Hafa þó víst ekki
eða tæplega nokkurntíma heðið fundarins merkari félags-
mál.
Sem tilraun, að hæta úr þessum vandræðum með fund-
arsókn og félagslegan áliuga, var á aðalfundi í vor tekin
sú ákvörðun, að fá ljósmæður í hverri sýslu landsins til
að koma á lijá sér einskonar „sýslufundi“ og kjósa þar
fulltrúa, 1 eða fleiri, lil að koma fram á aðalfundi fé-
lagsins fyrir sína hönd. Náttúrlega væri æskilegt að
einhverjar yrðu í för með þeim fulltrúum ef unt væri.
Með þessu ætti að nást betri og nánari samvinna Ijós-
mæðrum sjálfum í hag. Fulltrúar ættu svo að boða til
fundar með ljósmæðrum þegar lieim kæmi, og segja þeim
fréttir al' aðalfundi; yrði það mun hetra og ljósara lield-
ur en þær fundargerðir sem koma i blaðinu, þvi margt
kemur til mála á fundum og í sambandi við þá sem ekki
er ritað inn í fundargjörð..
Að sjiálfsögðu yrði að kjósa fulltrúa hvert ár, svo
fyrirhöfn og kostnaður lenti ekki ár frá ári á sömu ljós-
mæðrum. Með þessu mynduðust smáfélög í hverri
sýslu. Þó þau ekki gælu haft nema 2—3 fundi á ári, eftir
staðháttum, væri það mikil hót. Verður þetta nánar rætl
síðar í blaðinu og skorað á ljósmæður til samtaka í þessu.
Það má ekki koma fyrir, að áhugaleysi og félagsskapar-
deyfð verði til þess að eyðileggja 20 ára baráttu okkar
eigin stéttarfélags eða svæfa framkvæmdir þess í fram-
tíðinni. Það þarf að vera náin samvinna með félagskon-
um og félagsstjórn, því engin veil hvenær ný stjórn
verður að taka við, og þá er nauðsynlegt að nokkrar fé-
lagskonur hafi fylgsl svo vel mcð, að þær geti, ef á þarf
að halda, tekið stjórnina í sínar hendur.