Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1938, Page 11

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1938, Page 11
LJGSMÆÐRABLAÐIÐ 57 nienn gerðir ófrjóir, án þess að sérstök lög væru til, sem heimiluðu það. Fyrstu lögin voru samþykt í rikiriu Indíana 1907, þar sem meðal annars var lej'ft að gera fávita og fábjána ófrjóa. Síðan hafa verið samþvkt samskonar lög í 30 rjkjum, en í 3 þeirra iiafa þau aftur vcrið afnumin. Þar til 1. jan. 1935 höfðu aðeins 9 ríki framkvæmt aðgerðir eftir lögum þessum yfir 500 sinnum og lang- mest liefur þeim verið beitt í Kaliforníu, þar sem gerð- ar hafa verið yfir 10.000 aðgerðir, en það er lielming- ur allra slíkra aðgerða í Bandaríkjunum. Með tilliti 1 i 1 einstakra lagaákvæða má taka þetta fram: Nokkur ríki leyfa aðeins að gera menn ófrjóa, ef við- komandi samþykkir það. Önnur ríki leyfa það einnig á móti vilja sjúklings, eftir ferignum dómsúrskurði. — Sjúkdómar þeir, sem heyra undir lög þessi, eru mis- munandi i hinum ýmsu ríkjum. Flest þeirra hafa þó ákvæði, sem heimila að gera menn ófrjóa, ef þeir eru fávitar, geðveikir, flogaveikir, veikir af syfilis, kynvillu, áfengisnautn o. fl., einkum sé um persónur að ræða. sem gerst hafa brotlegar við lögin oftar en einu sinni. Um marga þessa sjúkdóma er mjög vafasamt, hvort þeir ganga i arf. Oftast er það forstjóri þeirrar stofnunar, þar sem maðurinn dvelur, sem leggur til, að liann verði gerður ófrjór eða mælir með þvi við aðstandendur Iians. Nefnd manna, vanalega læknar, dæma svo um tillöguna og gefa leyfi til aðgerðarinnar. Sjúklingur getur síðan á- frýjað úrskurðinum til dómstólanna. Sumstaðar eru á- kvæði um, að hið opinbera veiti sakbornirigi lögfræði- lega aðstoð, ef hanri er efnalítill. Þegar dr. Taylor talar um gagn það, sem lög þessi liafa gert i Bandaríkjunum, bendir liann á, að kynbæt- ur séu best rannsakaðar, þar sem um fávita er að ræða.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.