Alþýðublaðið - 20.11.1923, Blaðsíða 4
4
frelsi f.A % 1855, 11. gr., að
tekin veiði upp í 1. eða 2 nr.
Alþýðublaðsins, sem út kemur
hér eftir.
Rey&javík, 16. nóvember 1923.
Hið íslenska steinolíuhlutafélag.
M. EsTcildsen.
Til
ritstjóra Alþýðublaðsins.«
frent hafl menn í huga, er þeir
lesa þessa >leiðiéttingu< : l.Stein-
olíufélagið ber ekki á móti því, að
það hafl sigrað, en það var aðal-
atriði greinárinnar í Alþýðublað-
inu. 2. Reikningar Steinolíuféiags-
ins eru ekki biitir almenningi
fremur en annara einkafyrirtækja,
og er því ekki auðvelt að sanna
neitt um, hvernig féiagið ver
okurgróba sínum. 3. Fæstum
blandast hugur um, að þegar at-
burðir og >leiðréttingar< á þeim
fara í bága hver við annað, þá
hafi at.burðirnir meira gildi og
það jafnvel, þótt þeir séu lýstir
>helber ósannindi<. >Samt snýst
hún<, sagði Gaiilei.
UmdagiMopegitm.
Fisbreiðaiöggjefln. Fyrir for-
göngu verkamannafélag8ins í Hafn-
arflrði hafa um 820 hafnfirzkir
kjósendur sent ríkisstjórninni áskor-
un um að beitast fyrir því, að
flskveiðalöggjöflnni verði breytt á
þá leið, að erlendir togarar geti
lagt upp flsk í ísleDzkum kaup
stöðum. Hafa fyrirmæli löggjafar-
innar, er banna þetta, drepið nið-
ur atvinnu verkamanna í Hafnar-
firði og víðar, og er þar alt í k'aida
koli og. fyrirsjáanleg vandræði,
nema gerðar sóu ráðstafanir til
umbóta.
Sýning á lijúkrnnargeguum.
Félag islenzkra hjúkrunarkvenna
heldur þessa dagana sýningu uppi
á lofti í húsi frú Margrétar Zolga.
Eru þar sýnd í tveimur herbergj-
um margs konar áhöld, sem not-
uð eru vib hjúkrun bæði sökum
nauðsynjar og til þæginda, upp-
búin sjúkrarúm, baðáhöld og 11.,
og enn fremur er þar deild með
sjóntækjúm frá Thiele sjóntækja-
sala. Er sýningin fróðleg og á henni
ALÞYÐUBLAÐIÐ
margir hlutir, sem gagnlegt er að
kunna deili á og eigi.
Atkvæðatölnr við kosniDguna
í Noiðurmúlasýslu voru þessar:
Halldór St.efánsson fékk 416, Arni
Jónsson 414, Þorsteinn M. Jönsson
311, Björn Hallsson 294 og Jón
Sveinsson 280 atkvæði.
Isfiskssala. Nýlega hafa selt
isfisk í Englandi togararnir Geir
fyrir 1500 og Belgaum fyrir 1700
sterlÍDgspund.
Látin er í fyrra dag að heimili
sínu Anna Kr. Sigmundsdóttir
(prentara Guðmundssonar), ekkja
Jóns heitins skípstjóra Þórðarsonar
frá Riðagerði.
Nætarlæbnir er í nótt Hall-
dór Hansen, Miðstrsetí 10. Sími
256.
Hestnr í hættn. í brekkunni,
þar sem veguiinn yfir tjörnina
liggur niður frá Laufásveginum,
bar það til í gær síödegis, að
grjótvagn, sem ekið var niður
brekkuna, skrikaði út af veginum
að norðanverðu vegna hálku og
tók hestinn með sór. Var hestur-
inn« mjög nærri hafður mikilli
hættu, því að vegurinn er tals-
veit upphækkaður þarna, en fyrir
einbverja furðulega tilviijun sakaði
hann ekki, svo að á bæri. Er óaf-
sakanlegt hirðuleysi að bera ekki
sand á götur eins og þessa, þegar
hálka er komin, ekki sízt, þegar
yflr hefir verið kvartað, eins og
ökumennirnir, er þarna fóru um,
kváðust márgsinnis hafa geit.
Æflngar í glímufólaginu Ar-
manni hefjast í kvöld kl. 8. Var
hitt misprentun, er í gær var sagt
í blaðinu.
Ðeildarstjórafundur verka-
kvennafól. >Framsóknar< verður í
kvöld kl. 8 í Alþýöuhúsinu.
Talin veiða í dag upp atkvæði
í Barðastrandarsýslu. Er hún eina
kjöidæœfð, sem ófrótt er um
koiniDgaúiBlit úr.
E.s. Esja
fer héðan á morgnn, 21. nóv.,
bl. 10 árdegis vestur og notður
um land, hringferð.
Farseðiar sækist fyrir kl. 5
í dag.
Stangasápan með blámannm
fæst mjög ódýr í
Haupfélaginn.
Jafnaðarmaimafél&gsfundnr
á morgun í Bárunni uppi.
Nýjusta símskeyti.
Khofn, 19. okt.
Horðíngjar sýknaðir.
Frá Lausanne er símað: Morð-
ingjar Vorovskis (sendiherra ráð-
stjórnarinnar rússnesku, er myrt-
ur var í Sviss í voij hafa verið
sýknaðir. Hefir Conradi verið
slept úr varðhaldi, en Polinini
vísað úr landi.
Frá Fýzkalandi.
Frá Berlín ersímað: Fyrrver-
andi forsætisráðharra Saxiands,
Zeigner, hefir veiið sakaður um
að hafa þegið mútur. Jafnræðis-
menn (social-demokratHr) hata
samþykt að styðja stjórn Strese-
manns.
Þýzka láninu, sem tekið hefir
verið í Ameríku og nemur 122
milljónum dollara, verður varið
til kaupa á matvælum og kol-
um. Abyrgjast lánið þýzkir náma-
og jarð-eigendur.
Framieiðslutæhín eiga að
vera þgóðareign.
Ritstjóri og ábyrgðarmaðar: Hailbjörn HsIIdórssorj.
Prsntámiðja Haíígríms Bes»diktssonar, Bcrgstaðastræti 19,