Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1958, Side 3

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1958, Side 3
Ljósmæðrablaðið V. Hlutverk Ijósmæðra í þágu mæðraverndar Bæða prófessors J. H. de Haas, Leiden í Hollandi á 11. alþjóðaþingi ljósmæðra í Stokkhólmi. Framh. mæðra og barna, hafa þær þó að engu leyti sleppt sínu að- alstarfi að taka á móti bömum. Þær eru enn nærkonur, sem eiga að aðstoða fæðandi konur. Fyrr á tímum ólu næstum allar konur börn sín í heima- húsum. Á átjándu öld var orðið nokkuð algengt í Evrópu, að börn fæddust í sjúkrahúsum. Smátt og smátt fjölgaði fæðingunum í sjúkrahúsunum, og var þó síður en svo, að konum heilsaðist þar alltaf betur. Víða um lönd hafa fæð- ingarheimili komizt æ meir í tízku, og fæðingum á sjúkra- húsum hefur stórfjölgað, einkum eftir síðari heimsstyrj- öld. Hlutverk ljósmóðurinnar er allt annað á sjúkrahúsum en í heimahúsum. Á heimilunum ber hún ábyrgð á móður og bami, meðan fæðingin stendur yfir og í sæng- urlegunni. Hún ræður hér auðsjáanlega mestu og ber á- byrgð gagnvart heilsuvemdaryfirvöldunum. Ef eitthvað verður að móður eða barni, leitar hún læknis. Sé ekkert að, gætir hún ein móður og barns. Spyrja mætti, hvort kunnátta ljósmóðurinnar varðandi meðferð ungbarna, svo og þekking hennar á lífeðlisfræði og sjúkdómafræði ný- fæddra bama sé svo mikil, að henni sé treystandi til að taka ábyrgð á lífi bama á því aldursskeiði, sem dánar- talan er hæst í lífi þeirra. Sama gildir einnig, þó að ekki sé um lífshættu fyrir bamið að ræða. Þetta atriði verður æ mikilvægara á vorum dögum, þegar mæðradauðinn er ekki lengur neitt vandamál meðal menningarþjóða, en andvaná- fæddum börnum og þeim, er deyja á fyrstu viku, fækkar

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.