Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1958, Blaðsíða 6

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1958, Blaðsíða 6
52 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ allir velþenkjandi menn geri sér Ijósa þessa staðreynd og hagi sér samkvæmt því? Einmitt ljósmæður gætu leyst þennan vanda. Þær gætu öðrum fremur losað heiminn við það böl, sem á ári hverju kostar hálfa milljón ungra mæðra og milljónir nýfæddra bama lífið, svo að ekki sé minnzt á þær óþörfu þrautir, sem lagðar eru á fjölda annarra. I náinni framtíð blasa við ljósmæðrum nær ótak- mörkuð verkefni í sambandi við mæðravemd, með því skil- yrði þó, að þær vinni í nánu samstarfi við lækna. Reynslan í þeim löndum, sem skemmra em á veg kom- in í menningarlegu tilliti, sýnir, að síðustu 30—50 árin og sérstaklega eftir síðari heimsstyrjöld fellur barna- og mæðravemdarstarfið æ meir í hlut Ijósmæðranna, sér í lagi þar sem hörgull er á læknum. Þegar svo er ástatt, verður ljósmóðirin að ganga fram fyrir skjöldu og fræða fólkið. Hún kennir fóstmm og hjálpar stúlkum, stjómar starfinu í heilsuverndarstöðvum bama — í einu orði, skipuleggur mæðravemdarstarfið um meðgöngutíma, við fæðingu og eftir hana, svo og allt ungbarnaeftirlitið. Um allt þetta hefur hún samvinnu við heilbrigðisyfirvöldin. Óskandi væri, að mistök þau, sem orðið hafa í þessum málum, verði þeim, sem á eftir fara og skemmra eru komnir, til lærdóms í framtíðinni. Störf Ijósmæðra í þágu mæðravemdar em mjög mis- munandi í hinum ýmsu löndum. Ef athugað er ástandið, eins og það er, geta menn betur gert sér grein fyrir þró- un mæðraverndarmálanna. Öll stig þeirra koma fvrir sam- tímis. Konur ala böm sín jöfnum höndum í nýtízku fæð- ingarstofnunum, á sjúkrahúsum, á fæðingarheimilum og í heimahúsum. Allt gerist þetta samtímis í sama landi. Eftirlit og heilsuvemd kvenna eftir fæðingu virðist hafa orðið aftur út, jafnvel meðal þeirra, sem lengst eru komn- ir. Afleiðingar meðgöngu og fæðingar em ekki horfnar. um leið og konan stígur af bamssæng. Ekki bamið eitt, heldur líka móðirin, þarfnast eftirlits fyrstu vikumar eða mánuðina eftir fæðingu. Starf Ijósmæðra í þágu mæðra-

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.