Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1964, Side 3

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1964, Side 3
Heimilisóvinur Skjót hjálp er tvöföld hjálp. Hringið strax í lækni ef um eitrun er að rœða. Árlega deyja um það bil 200 000 einstaklingar í USA vegna eitrana, ekki eiturlofts eða matrareitrunar, held- ur eitrunar af meðulum, sem hafa verið tekin kæruleysis- lega eða í misgripum og að eiturefni eru á glámbekk á heimilum þar sem börn ná til þeirra og borða eitrið. Einn af hverju þúsundi deyr vegna misnotkunar lyfja- eða eiturlyfja í USA og talið er sennilegt að talan sé ekki lægri í mörgum öðrum löndum. Vegna skjótrar hjálpar ná margir þeirra, sem gleypa eitur, fullri heilsu. En einnig eru margir sem hljóta var- anlegt mein af slíku t. d. lifrar- og nýrnasjúkdóma og skemmd eða þrengsla í vélinda þótt eiturneyzlan hafi ekki dauðann í för með sér. Um það bil 90% af slysum vegna eituráts eru á böm- um yngri en 5 ára. Helmingurinn af þessmn börnum gleypir í sig lyf og hérumbil helmingurinn af þessum lyf j- um er venjulega aspirin. Af öðmm efnum má nefna pólitur og ýms olíuefni. Þótt venjulegast sé að börn borði aspirin (magnyl) eru ýmis önnur lyf hættuleg börnum svo sem róandi lyf, kvefmeðöl, hóstasaft, svefnlyf, hjartalyf, jámlyf og ýmis önnur, sem til eru á mörgum heimilum. Einnig má geta þess að sumir litir, sem börnum eru fengnir til að lita með eru eitraðir. Litir eða málning sem blý er í getur

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.