Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 4

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 4
44 LJÓSMÆÐRABL.AÐIÐ reynst hættuleg ekki aðeins fyrir málarann heldur einnig fyrir barnið, sem nagar málað barnarúmið eða leikgrind- ina. Þau efni, sem ekki eiga að vera á glámbekk eru fjölmörg, og má þar m. a. nefna naglalakk, ilmvötn, ryð- varnarefni, þynnir, mölkúlur, benzín, bílalakk, flugna- eitur, illgresiseitur, fægilyf .meindýralyf — svo nokkuð sé talið upp af því sem til er á venjulegum heimilum. Það þykir sjálfsögð varasemi að hafa slíka hluti ekki þar sem talið er að börn geti náð til þeirra, en annað mál er það að fullorðnir geta einnig verið mjög óvarkárir. Öll eiturefni á því að merkja mjög greinilega þannig að ekki verði á þeim villst í misgripum. Hér eru nokkur atriði varðandi eiturefni á heimilum. 1. Látið aldrei börn ná til meðala, eiturefna og hrein- gerningarefna. 2. Látið ekki óæti standa í sömu hillu og matvöru. 3. Látið öll eiturefni vera í upphaflegum umbúðum sín- um. Setjið aldrei á flöskur eða box, sem ekki er merkt. 4. Þegar búið er að nota lyf á að eyðileggja hugsanlega afganga. Kastið afgöngum aldrei þar, sem börn geta náð í þá. 5. Þegar börn eiga að taka inn lyf, töflur eða annað, sem er bragðgott eða ilmandi, talið þá ekki um þetta sem sælgæti heldur lyf. 6. Takið aldrei né gefið lyf í myrkri. 7. Lítið ávalt á miðann áður en þér takið lyf. Flest eiturtilfelli sýna sig fyrst í sambandi við melt- ingarfærin og kemur þá í ljós lystarleysi, magaverkir, uppsala og niðurgangur. Sömu einkenni fylgja mörgum sjúkdómum svo meltingartruflanir eru engin sönnun fyrir eitrun. Eitrun getur orsakað fölva, að menn bláni í fram- an og húðin verði rök. Meðvitundarleysi og krampi geta verið tákn bráðrar eitrunar. Það er um gera að bregðast eins fljótt við og hægt er ef um eitrun er að ræða. Hættan er að eitrið nái að breið-

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.