Ljósmæðrablaðið - 01.07.1964, Side 8
48
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Sitjanda og fætur bar að:
Sitjanda ............ 2,5 —
Fót ................. 0,5 — 3,0 %
Þverlega ........................ 0,1 —
Heilbrigðisstarfsmenn
Læknar, sem lækningaleyfi hafa á íslandi, eru í árs-
lok taldir 269, þar af 222, sem hafa fast aðsetur hér á
landi og tafla I tekur til. Eru þá samkvæmt því 783
íbúar um hvern þann lækni. Búsettir erlendis eru 16, en
við ýmis bráðabirgðastörf hér og erlendis 34. Auk lækn-
anna eru 68 læknakandidatar, sem eiga ófengið læknis-
leyfi. Islenzkir læknar, sem búsettir eru erlendis og ekki
liafa lækningaleyfi hér á landi eru 8.
Tannlæknar, sem búsettir eru hér á landi, teljast 53,
þar með taldir 3 læknar, sem jafnframt eru tannlæknar.
Mœðradeild.
Á deildina komu alls 2946 konur, en tala skoðana var
9631. Af þessum konum voru 2057 búsettar í Reykjavík,
en 889 utan Reykjavíkur, þar af 189 í Kópavogi, og voru
skoðanir á þeim 571, 145 í Hafnarfirði (310 skoðanir), 29
á Seltjarnarnesi (108 skoðanir) og 70 í Keflavík (135
skoðanir). Skoðanir á utanbæjarkonum voru alls 2099.
Meðal þess, sem fannst athugavert við skoðun, voru eftir-
talin einkenni:
2 konur höfðu blóðrauða 30—49%
7 — — _ 50—59%
35 — — — 60—69%
482 — — — 70—80%
526 konur höfðu því blóðrauða 80% eða lægri.
52 konur höfðu hækkaðan blóðþrýsting (140/90 eða
hærri, tvisvar eða oftar) án annarra einkenna. 167 konur
höfðu bjúg án annarra einkenna. 18 konur höfðu hvítu í
þvagi án annarra einkenna 137 konur höfðu bæði hækk-