Ljósmæðrablaðið - 01.07.1964, Side 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
49
aðan blóðþrýsting og bjúg. 76 konur konur höfðu hvítu í
þvagi, ásamt hækkuðum blóðþrýstingi og/eða bjúg. 213
konur höfðu því tvö eða fleiri þesara einkenna saman.
180 konur höfðu áberandi æðahnúta. 4 konur höfðu já-
kvætt Kahnpróf.
Minnsta barn, sem mun hafa fæðzt á íslandi — og
haldið lífi — fæddist í Reykjavík 31. maí 1945. Var það
sveinbarn, og var þyngd þess tæpar þrjár merkur. Dreng-
urinn fæddist nálega þrem mánuðum fyrir tímann. Hann
var aðeins 700 gr. að þyngd, vantaði því 50 gr. upp á
þrjár merkur. Lengd drengsins var 36 cm. Ljósmóðir var
frú Helga Níelsdóttir og læknir frú Kristín Ólafsdóttir.
Þegar drengurinn fæddist var hann lagður í bómull og
olía borin á líkama hans.
Gekk svo lengi að hann var eingöngu þveginn úr olíu.
Fengin var fyrir hann brjóstamjólk, og neytti hann
einskis annars í hálfan þriðja mánuð.
Drengurinn hefir dafnað vel. Sjö mánaða gamall var
hann orðinn 26 merkur. Hann er nú kominn nokkuð á tí-
unda mánuð og er hinn sprækasti. Drengurinn heitir Sig-
Jrður Guðjónsson.
'WHHmMWWVWWMVMMWWVVWWMWWMMWil
Ljósmæðrastaða
í Svarfaðardals- Dalvíkur- og Árskógshreppsumdæmi
laus til umsóknar frá 1. jan. næstkomandi.
Umsóknir sendist undirrituðum.
Sýslumaður Eyjafjar'ðarsýslu 5. ág. 196-j