Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.1908, Side 10

Freyr - 01.01.1908, Side 10
6 FREYR. á bólusetninguna, að minni stund væri fyrir það lögð á góða meðferð og nákvæma birðingu sauðfénaðarins. Eg get naumast gert mér nokkra grein fyrir, hvað valdið haíi þessu bráðapestarkasti í fé mínu síðastliðinn vetur; þó þykist eg hafa hugboð um það. í fyrra sumar var eyjan í snöggvara lagi og var slegin að vanda út í æsar; eg tek fé mitt úr afrétti í seinni leitum og gengur það alt á eynni um tima áður en eg rek lömb í eldi og byrja að skera; í fyrra var féð með flesta móti, full 300 fjár, oggekk með lengra móti alt á eynoi. í miðjum októ- bermánuði gjörði stórhret, er byrjaði með bleytu- slagi og' snerist síðan í frostgarð með fannkomu; féð lá alt úti og í því hreti drápust tvær fyrstu kindurnar. Eg gat því ímyndað mér, að þessi veðrabrigði og óholl beit sökum þess hve féð var margt (eyjan er aðeins um 130 dagsl.) hafi valdið þessu pestarkasti, en auðvitað er það ímyndun ein. Eg lét bóiusetja alt féð, er pestin var byrjuð, en ekki dugði það, það var að smádrepast mestallann veturinn og síð- asta kindin dó i maímánuði í vor. Áðurhafði eg ekki látið bólusetja. í haust lét eg bólusetja um 130 fjár, 12 lömb, um 40 veturgamalt og hitt roskið. Alt var það bólusett með hinum nýju skilkiþráðum nema 17 kindum úr „bláa efninu“. Bólusetn- ingin var byrjuð um hádegi og lokið um kl. 6 e. m. Hið bólusetta féð var hýst og þess vitjað morguninn eftir um kl. 6. Voru þá 35 kindur meira og minna haltar og margar þeirra töluvert bólgnar frá þræðinum í lærinu og nið- ur fyrir konungsnef. Kindunum var öllum haldið inni og gefið hey, en örfáar snertu við þvi. Einum tveimur var slept út, er minst voru haltar. Eftir því sem á daginn leið jókst bólgan og öll bráðapestareinkenni komu í ljós kl. 1—2 voru flestar kindurnar lagstar, og á meðan skroppið var heim varð ein sjálfdauð á ekki meira en 10—15 mínum. Eg reyndi að kippa burtu þráðunum úr nokkrum kindum ogrista i bólguna, en ekkert dugði það. Bólgan óx stöðugt, færðist hún bæði niður á fótinn og upp eftir lærinu og fram á kvið á fáeinum kindum. Eg sá því ekki til neins að draga lengur að slátra fénu, og var því slátrað á örskömmum tíma um kveldið, og mátti ekki tæpara standa að ná því með lífi; varð ein kind sjálldauð auk þeirrar er áður er nefnd; voru það rýrustu og veiklu- legustu kindurnar, báðar veturgamlar, bezt báru sig sauðir og ær á þriðja og fjórða vetri. Tveimur kindum slepti eg um kveldið, er frísk- astar voru, var önnur þeirra sú, er út hafði verið slept um morguninn, lifði hún af en var mikið hölt lengi á eftir og ekki afhölt fyr en að þrem vikum liðnum, hin dó eftirl1/, sólarhring að henni var slept, varð sjálfdauð. Kindin sem lifði var ær á 4 vetri. Af kindun- um, sem drápust, vorti 15 veturgamlar og hinar eldri. Á fénu sem lifði sá ekkert, heltist ekki einusinni vitund og þótti mér það undarlegt,- þar, sem gera má ráð fyrir, að þræðirnir séu allir jafn sterkir. Það var auðvitað mjög óvarlegt að bólu- setja svona margt fé í einu með þessu óreynda efni, og ætti þetta dæmi að vera öðrum til við- vörunar framvegis, en þá afsökun hef eg þó og bólusetjarinn, að hann hafði bólusett milli 60- og 70 fjár rétt áður með þessum þráðum, og engin kind veikst til muna, að vísu var það fé flest ær og lömb. Á öðrum bæ, Eyri i Seyðis- firði, drápust aftur á móti 13 eða 14 af 90, er bólusettar voru þar daginn áður en hér var bólusett. Annarstaðar hafa þessir þræðir ekki verið notaðir hér við Djúpið, og slys heldur eng- in orðið af bólusetningu það eg til veit. — Eg skrifa ekki línur þessar til að fæla menn írá bólusetningunni, þótt svona illa tækist til hjá mér, heldur til þess að bændur og bólu-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.