Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1908, Page 11

Freyr - 01.01.1908, Page 11
FREYR. 7 setjarar varist viti mirr í þessu efni og gæti sem mestrar varúðar, er um nýtt bóluefni er að ræða. Það er þegar fengin nokkur reynsla fyrir því, að þessi bólusetning varnar bráða- pestinni, en hún er enn ekki reynd til hlítar, og það ætti öllum fjáreigendum að vera hið mest áhugamál að þessar tilraunir gætu haft þann árangur að útrýma þessu mikla böli sauð- fjárræktarinnar hjá oss. Það væri stórkostleg framfor fyrir landbúnað vorn, ef vísindurum tækist a,ð stemma stigu fyrir bráðapestinni, en eitt aðaiskilyrðið fyrir því er, að tilraunum sé haldið áfram með þolgæði og athygli, eftir þeim reglum, er settar eru af þeim, sem fyrir máli þessu baitast og bezt vit hafa á því. En hinu má heldur ekki gleyma, að góð meðferð -og hirðing á fénu er annað vissasta ráðið til að xitrýma bráðapestinni. Yigur 27. nóvbr. j.907. Sigurður Stefánsson. « Árið 1907. Arið sem leið var að ýmsu leyti allerfitt, að því er landbúnaðinn snerti. Vetur frá nýári sunnanlands og vestan mjög áfellasamur og tíðir umhleypingar. Oftast inni- staða fyrir allar skepnur, því þó jörð væri auð með köflum, urðu þess lítii not, sökum ill- viðra. Norðanlands og austan var og gjaffelt, en eigi eins hrakviðrasamt og syðra. — Með einmánaðarkomu brá til hins betra með veður- áttu far. Voru þá og margir orðnir heytæpir, énda þá viða búin að vera innistaða svo að segja fyrir allar skepnur fullar 20 vikur. — Þessi góða tíð stóð allan apprilmánuð, en þá skifti um og kólnaði í veðri; gjörði frost að nóttunni og tók þá fyrir allan gróður um hrið. Þessi kuldatíð hélst svo alt vorið og fram á sumar. Aðeins einstaka daga hlýtt, t. d. um. 20. júní og miðjan júli. — Gróðurleysi mikið fram eftir öllu vori, og grasvöxtur yfir höfuð lítill um land alt. Heyskapur varð einnig alment rýr, og töðu- brestur nálega alstaðar mikil. Norðanlands víða varð taðan 1/i—’/3 minni en vant er að vera í meðalári. Útheysskapur sömuleiðis með minna móti, en nýting á heyi víðast hvar góð, nema norðanlands; þar var hún misjafnari. Á Vesturlandi var grasspretta enn lak- ari en annarstaðar, einkum á Vestfjörðum. Vorið og sumarið þar kalt og óvanalega þurt. Kom aldrei skúr úr lofti yfir alt vorið og sum- arið fram í ágúst. Af þvi leiddi, að tún og harðvelli brann af ofmiklum þurki, og yfirleitt var öll jörð illa sprottin. Töðubrestur varð þar því mikill; munaði viða um helming, ertaðan varð minni en í meðalári. Sama að segja uin utantúns heyskap. Þrátt fyrir grasleysið byrjaði þó sláttur sumstaðar snemma t. d. i Eyjafjarðarsýslu, og víðar. Elestir báru niður utantúns, og þeir sem áttu fjall-slægjur, notuðu þær. Einna fyrstir munu þeir hafa borið niður, Gisli Jónsson sýslu- nefndarmaður á Hofi í Svarfaðardal og Guðm. G. Bárðarson á Kjörseyri i Hrútafirði. Byrj- uðu þeir að slá 8. júlí. Aðrir tóku til 10.—11. júlí (11 vikur af) en flestir ekki fyr en 15. — 20 júlí og sumir seinna. — En fyrir því hefi eg minst á þetta hér, að eg tel það eftirbreytnisvert að byrja snemma að slá, jafnvel hvernig sem sprottið er. Haustið var kalt og snjóaði snemma í októ- be.r Rak þá svo að segja hvert hríðaráfallið annað, og lenti fé víða í fónn, en sumir mistu það í ár. En síðar gjörði beztu tíð, er hélzt fram um áramót. Eóru allmargir úr Árnes- og Rangárvallasýslum á jólaföstunni með vagna til Reykjavíkur, og er slíkt óvanalegt um þann tíma árs.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.