Freyr - 01.01.1908, Side 13
FREYR.
9
verið að reyna að verja sig veikinni, en geng-
ið misjafnlega.
Þegar á alt er litið, verður því eigi ann-
að sagt, en að árið hafi verið erfitt ýmsra Hluta
vegna, og þó lakara norðanlands og vestanlands
en sunnan og austaniands.
S. S
Kosning búnaöarþingsfulltrúanna,
Á seinasta búnaðarþingi var, eins og skýrt
hefir verið frá Irey, gjörð sú breyting á lög-
um Búnaðarfél. íslands að sýslunefndirnar kjósi
þá 8 búnaðarþingsfulltrúa, er amtsráðin bafa áð-
urkosið, þannig að sýslunefndirnarábverjuamts-
ráðssvæði kjósi 2 fulltrúa og 2 menn til vara.
Gjört er þó ráð fyrir að sýslunefndirnar feli
ijórðungsbúnaðarfélögum á þeim kjörsvæðum
þar sem þau eru eða koma á fót kosning full-
trúanna, og þarf til þess samþykki búnaðar-
þingsins.
Búnaðarfélagið befir nú skrifað sýslunefndum
út um iand, og skorað á þær að taka að sér
kosningu búnaðarþingsfulltrúanna.
í ár á að kjósa 5 búnaðarþingsfulltrúa og
jafn marga til vara, en 3 ef núverandi búnað-
arþingsfulltrúum og jafn margir varafulltrúar
eiga sæti á búnaðarþinginu þar til 1910 — voru
kosnir af amtsráðunum 1906 og ’07 til 4 ára.
Þeir búnaðarþingsfulltrúar sem eiga setu
á næsta regluiegu búnaðarþingi eru: Hjörtur
Snorrason kennari á Skeljabrekku kosinn af
amtsráði Suðuramtsins 1907, Pétur Jónsson kaup-
félagsstjóri á Gautlöndum kosinn af amtsráði
Norðuramtsins 1906, og Jóhannes Jóhannesson
bæjarfógeti á Seyðisfirði kosinn af amtsráði Aust-
nramtsins 1906. Varafulltrúi var enginn kosinn
1 Suðuramtinu 1907, en af Norður- og Austur-
amtsráðunum voru kosnir 1906 Björn Sigfússon
bóndi á Kornsá og Árni Jónsson prófastur á
Skútustöðum.
Búnaðarþingsfulltrúar, sem endað bafa
kjörtíma sinn fyrir næsta reglulegt búnaðarþing
eru: Ágúst Helgason óðalsbóndi í Birtingaholti
kosinn af amtsráði Suðuramtsins, Júlíus Havsteen
fyrv. amtmaður og Ásgeir Bjarnason bóndi
Knararnesi kosnir af amtsráði Vesturamtsins,
Stefán Stefánsson kennari á Akureyri kosiun at
amtsráði Norðuramtsins og Einar JÞórðarson
prestur á Bakka kosinn af amtsráði Austuramts-
ins.
Sýslunefndirnar á amtsráðssvæðum Suður-
amtsins, Norðuramtsins og Austuramtsins eiga
því að kjósa á sýslufundum í vor einn íulltrúa
fyrir bvert amtsráðssvæði, og teljum var vafa-
laust að Ágúst Helgason og Stetán Stefánsson
verði endurkosnir. Aftur er vafasamt að beilsa
séra Einars Þórðarsonar leyfi bonum setu á
búnaðarþinginu eftirleiðis, þótt mikill skaði
sé að missa bann, og væri þá rnjög æskilegt
að einhver úr stjörn Búnaðarsambands Austur-
lands yrði kosind í bans stað t. d. séra Magn-
ús Bl. Jónsson í Vallanesi eða Björn Hallsson
óðalsbóndi á Rangá. Þá teljum vér æskilegt
að sýslunefudirnar á amsráðssvæðum Norður-
amtsins og Austuramtsins feli Ræktunarfélagi
Norðurlands og Búnaðarsambandi Austurlands
að kjósa eftirleiðis þá fulltrúa á búnaðþingið
er þeim ber. Það er umsvifa minna og tryggir
fult svo vel, að sannir búnaöarfrömuðar verði
fyrir kjöri, og á því ríður.
Sýslunefndirnar á amtsráðssvæði Vestur-
amtsins eiga að kjósa tvö búnaðarþingsfulltrúa
eins og áður er sagt. Þar stendur svo sérstak-
lega á, að svæðið er svo að segja sundurskift
í tvo jafna parta, og er mjög æskilegt að full-
trúarnir séu búsettir bver i sínum bluta, þar
eð landslag og búskaparbættir eru all misjafn-
ir á Vestfjörðum og sunnan Breiðafjarðar. Ás-