Freyr - 01.01.1908, Page 18
14
FREYR.
auk þessara stólpa, þarf aðra miklu gildari til
þess að hafa í allar beygingar á girðingunni,
og í hornstólpa og við hlið. Ef girðingin
hefir langa beina hlið, þá þurfa einnig gilda
stólpa á hverjum 25—30 föðmum. -— Þessir
gildu máttarstólpar þurfa að vera 7—8 fet á
lengd og 6x6 þuml. að gildleika. í>arf vel
að búa um þá eigi síður en hina, bæði að grafa
þá hæfilega langt niður og skorða vel upp með
þeim, og nota til þess grjót. — í stuðla milli
máttarstólpa er bezt að nota járnstólpa, annað-
hvort vinkilbeygða eða öðruvísi gjörða. Mjóu
sívölu teinana er óráðlegt að nota nema í bráða-
birgðargirðingar, eða girðingar sem færðar eru
til (þ. e. skifta nátthögum eða beitilandi), eða
sem teknar eru upp að haustinu. Einnig má
nota þá með, þar sem vir er látinn ofan á garða
og eigi eru hafðir nema 1- 3 strengir.
Eg hefi minst á þessi atriði hér, með því
að vírgirðingum er enn víða ábótavant. En að
öðru leyti skal hér bent á góða grein um girð-
ingar í Arsskýrslu Ræktunarfélags Norðurlands
1906, eftir Jösep J. Björnsson kennara á Hólum
i Hjaltadal.
Að endingu skal eg geta þess, að Lands-
búnaðarfélagið hefir síðustu árin heitið styrk
og styrkt nokkur samgirðingar-íjnrtæki með
5—6 aurum á faðminn eða með l/í0 “Via
kostnaðinum.
Eyrsta girðingin, er félgað styrkti var sam-
girðing um tún og engjar jarðanna Stóra-Nups
og Ása í Clmipverjahreppi í Árnessýslu. Girð-
ingin var gjörð 1903—1904, og voru ábúend-
urnir á þessum jörðum þeir Ólafur Briem
prestur á Stóra-Núpi og Gísli Einarsson, er þá
bjó á Ásum, einir af þeim allra fyrstu hér syðra,
er girtu með gaddavír í stórum stíl. Girðing
þessi er 3077 faðmar. —- Síðan hefir félagið
styrkt samgirðingu íReykjadalnumí Suður-Þing-
eyjarsýslu. Girðing sú er fyrir tún og engjar
allmargra jarða þar í dalnam og er 4624 faðm-
ar á lengd. Girðingin er ekki að öllu leyti
vírgirðing, heldur er sumstaðar torfgarður hlað-
inn undir, og 2—3 strengir ofan á honum.
— Einnig hefir það styrkt samgirðingu fyrir
lönd svo nefndra Hagabæja í Húnavatnssýslu.
í>essi langa girðing er lögð úr Vatsdalsflóði
og vestur að Hópinu, oger hún 3005faðm. álengd,
og kostaði 1735 kr. eða 571/,, eyri hver faðmur. —
Ennfremur hefur verið heitinn styrkur til sam-
girðingar nálægt Mælifelli í Skagafirði, gegn
ágangi afréttarfjár, um 2000 faðma; til girðing-
ar milli búfjárhaga og afréttarlands í Fellum á
Fljótsdalshéraði, um 2800 faðma, og til girð-
ingar fyrir afréttarfé milli Hvítár og Tungu-
fljóts í Eystri-Tungunni í Árnessýslu, um 2000
faðma. — Loks hefir kom® til tals að styrkja
stórfeldar samgirðingar, ef þess verður leitað, í
Glæsibæjarhreppi í Eyjafjarðarsýslu og í Fljóts-
hlíð í Rangárvallasýslu.
Sigiirður Sigurðsson.
Afhending búnaðarskólanna á
Hvanneyri og Hólum til Landssjóðs.
Afhending Hvanneyrarskólans fór fram dag-
ana 31. maí til 2. júní í vor. Afhendingargjörð-
ina framkvæmdu fyrir hönd amstráðsins, aufr
skólastjóra, þeir Þórður hreppstjóri Guðmunds-
son á Hálsi og Jóhann Horsteinsson prófastur í
Stafholti. Jón Hermannsson skrifstofustjóri var
viðtakandi fyrir landssjóðs hönd.
Skólastofnunin með öllu tilheyrandi, föstu
og lausu, var metin í hendur landstjórnarinnar
með því verði, er hér greinir:
Hvanneyri með Kvígsstöðum .... 26,000 kr.
Hús....................... 40,381 —
Kirkjan.................... 5,000 —
Flyt: 71,381 —