Freyr - 01.09.1912, Side 3
JBúnaðarmálið o. fl.
Ut af ritgerð Jónasar Illugasonar í Búnaðarritinu XXVI. 2.
„Svo lengi lærir sem lifir“ segir máltækið,
■enda eru það sannindi sera enginn getur neitað.
Við fáum daglega nýtt að sjá og heyra,
blöðin koraa raeð hverri póstferð lengst upp í
landið og sömuleiðis Búnaðarritið við og við og
þar er óhætt að segja að kemur meiri fróðleik-
ur en margur heldur, sera ekki kynnir sér það
rit. Eg skal nú ekki taka mjög hart á bænd-
um, þó þeir hafi ekki gerst alment kaupendur
að Búnaðarritinu — þeir hafa í svo mörg horn
að líta, og eg væri óvlst enn kaupandi þess,
hefði Sigurður ráðunautur ekki verið á ferð
hjá mér fyrir nokkrnm árum og hvatt mig til
þess, en það segi eg afdráttarlaust að það eru
þau beztu kaup sem eg hefi gert. í þvi eru
stórmerkilegar ritgerðir t. d. um fóðrun bú-
penings eftir líermann Jónasson árið 1887,
um tamning hesta eftir Gunnar Ólafsson 11.
árg., um horfelli á skepnum eftir Torfa í Ó-
lafsdal, vatnsleiðsla í bæi eftir Jón Þorláksson,
með myndum, í 22. árg., og svona mætti telja
fjölda margt í eldri árgöngum, og í síðasta ár-
gangi uppdrættir af hagkvæmu húsafyrirkomu-
lagi, sem vel gæti orðið til þess að sumirfyndu
út enn ódýrara fyrirkomulag og þó eins end-
ingargott og þægilegt. Það má margt finna, ef vel
er að gætt, og það má fráleitt dragast lengur
að hver bóndi eigi og lesi Búnaðarritið, því
bændum er það sérlega gagnlegt að blaða í
eldri árgöngum, jafnframt og þeir lesaþánýju,
aem er sérlega áríðandi og oft má grípa í um
borðunartíma og á kveldin þegar hætt er að
vinna, sérstaklega ef við færum að hafa fast-
ákveðinn vinnutíma, sem eg hygg að væri rétt-
ast og bezt. Vinna um sláttinn 11 klt. og þar
fyrir utan aðeins 10 klt. á dag, en vinna þá
al-dosklaust og um sláttinn að þurheyjum eftir
þvi sem með þarf, en sleppa þá úr óveðursdög-
um og næstu dögum eftir stórhirðingar, svo
samtals um sláttinn verði vinnan alls ekki meiri
en 11 klt. á dag án þess að sérstaklega só
borgað. Þetta er nú að vísu nokkurskonar
innskot, eg ætlaði að benda á fleira í Búnaðar-
ritinu. í 26. árg. 2. hefti er ritgerð eftir Jón-
as Illugason í Brattahlíð. I. Rækta húsdýrin
tóðrið sitt? Það er mikið gleðiefni, að sjá, að
það er hugsanlegt að það takist ef vel er að
staðið, og vona eg að allir sveitabændur eða
þeir sem hafa túnstæði geri alt til að fá fullar
sannanir um það, og gefi svo Búnaðarritinu ár-
lega stutt yfirlit yfir hvað þeim hefir reynst.
Það er altaf viðkvæðið, að alt sé ómögulegt
fyrir áburðarskort, en eg held að það sé þó
litlu síður ómögulegt að nokkur áburður dugi
til þess, að ná viðunnanlegu grasi upp úr mörg-
um holtum og börðum sem við eyðum áburði
á árlega án þess að losa þau til áður. Mér
sárnar altaf meira seinna árið en það fyrra,
hvern stórskaða eg hefi gert mér með þessu, og
sama munu margir mega játa. JÞað er að vísu
ein tegund áburðar sem dugar á þessa umræddu
jörð, og það er sterkur foraráburður, en hvað