Freyr - 01.09.1912, Síða 6
116
FREYR.
komst hæst eínalega, séu einmitt smámuDÍrnir
og nýting þeirra.
Eg vona að lesarinn misvirði ekki við mig,
þó eg hérna á pappírnum ráðstafi þeim 3 þús.
kr. er eg sýndi með dæminu hér að íraman,
að töpuðust. Betra væri að eiga það fé í
sjóði, er orðið gæti vísir til skólastofnunar, þar
sem kend yrði hreinleg umgengni, og alt er
lýtur að bættri nýting á eigin efnum.
Yér þurfum að fylgjast víðar með, en í
bókfræðum einum, svo vér getum talist ment-
uð þjóð, því sú þjóð finst mór gagnmentuðust,
er glatar minstu af þeim nothœfu efnum og kröfl-
um, er lífið hefir að bjóða.
Að þessu ber oss að stefna og það því
fremur sem vér erum fátækari. Mér finst sá
maður „vargur í véum“ íslenzkrar hamingju,
er gerist sekur í því, að þjóðþrifamál vor og
þjóðargróður eyðist í stórpólitískum skriðuhlaup-
um. Eg segi þetta af því, að margur er sá
nú í landi voru, er ekki gæti með góðri sam-
visku þvegið kendur sínar hreinar hvað þetta
áhrærir.
Vissulega er þetta efni urntals og áhyggju.
En „ennþá spáir vori von“; vori í íslenzkan
verkkvæmdarhug og trú á það að lífið só ann-
að og meira en tilgangslaust strit og landið
vort annað en frjólaus og stórgrýttur táradalur.
25. júní 1912.
Kr. Sigurðsson.
Ullarsalan í Argentínu,
Ullarkaupmaður, sem ferðaðist 1911 til Suð-
ur Ameríku skýrir svo frá:
í borginni Mercado CeDtral de Erutic er
hin þýðingarmesta miðstöð fyrir ullarkaupend-
ur. Byggingin er úr tigulsteini og tekur yfr
afar stórt svæði. Hún liggur við skipakvína og
er því mjög bagfeld fyrir samgöngur frá sjó-
og landi.
Hús þetta er þrílyft. Annað og þriðja loft—
ið er notað eingöngu fyrir ull, og þar eru öll
skinn og ull seld, sem fer til erlendra kaup-
enda eða umboðsmanna.
Hægt er að afgreiða 40,000,000 pund af
ull í einu, og má af því nokkuð ráða hve stórt
húsið muni vera.
Hérumbil 25,000,000 pund af ulleruvana-
lega fyrirliggjandi um ullarsölutimann, og ná-
lægt 2,000,000 pund af ull eru meðtekin dag-
lega og hin sama upphæð aíhent og seld.
Næstum 400,000,000 puud af ull eru með-
tekin og seld á ullarsölutímanum árlega, sem
byrjar í október og stendur yfir í 5 mánuði.
Þangað koma ullarkaupmenn frá Erakk-
landi, Belgíu, Býzkalandi, Englandi og Banda-
ríkjunum til þess að kaupa ull.
Yörusendendur leigja gólfpláss f söluhús-
inu, og eftir að ullin er afhent þar af ullareig-
endum, er hún athuguð og lauslega flokkuð
fyrir þá, er vilja gera boð í hana.
Fulltrúar fyrir ullarsölunni standa á verði
allan daginn, bæði til að taka á móti tilboðumr
og til þess að fylgjast með verðinu. Kaupin
afgera þeir ekki fyr en síðasta lysthafanda hef-
ir gefist tækifæri til þess að skoða ullina o'g:
gera tilboð.
Verðið er reiknað í dollurum og miðað við
20 punda þunga. Allur ágreiningur milli kaup-
anda og seljanda um gæði ullarinnar, er út-
kljáður með gerðardómi af tveimur eða þrem-
ur óvilhöllum mönnum er hlutaðegendur skipa
sjálfir.
En skyldi gerðardómurinn ekki koma sér
saman, þá eru dómarar sem hægt er að færæ
málið fram fyrir, en það er sjaldgæft, að slík
mál fari leDgra en til gerðardómsins.
Auk ullar frá Buenos Ayres og Entre Rios,
sem flutt er hiugað, er lika ull frá Patagonia