Freyr - 01.09.1912, Page 7
FREYR.
117
og nokkuð írá Punta Arena. Hin bezta ull aí
kynbótafé kemur frá suðurkluta Buenos Ayres
og frá norðurhluta Bahia Blanca. £>rir fjórðu
hlutar af Argentínu ullinni, er frá Buenos Ayres
og fer mestur hluti hennar í gegnum Mercado
ullarmiðstöðiua, enda þótt Bahia Blanca sé mik-
ill ullarsölustaður, en yanalega eru þar seldar
lakari ullartegundir. Þar er líba seld ull frá
Patagóníu, líkist hún mjög ull frá Colorado,
New Mexico, Utha og Wyoming að gæðum og
útliti.
Mikið af ullinni frá Suður-Ameríku er nokk-
uð gróf, og taka ullarkaupendur frá Bandarikj-
unum tillit til þess er þeir kaupa hana. Þeir
leggja áherzlu, á að nllin sé sem hvítust og laus
við morlit, Sú ull, sem á að fara til Banda-
ríkjanna, er fyrst flokkuð eftir gæðum, þannig
að hið grófgerðasta og mjög óhrein ull er að-
skilin frá betri tegundum. Úrgangsullin erlát-
in sór. Oft kemur það fyrir, að maður sér ull-
arsalana hagræða svo úrgangsullinni, að hið
bezta snýr út, en hið óútgengilegasta inn. Þann-
ig geta sumir af seljendunum losnað við úr-
gangsullina með allgóðu verði, og grætt á at-
hugaleysi kaupandans,
Buenos Ayres framleiðir aðallega ull af
lakari tegund, en ull af kynbótafé kemur mest
frá Entre Rios og Corrientes. Sauðfé í Entre
Bios er aðallega grófullað og ullin er notuð i
gólfábreiður eða annað samslags efni. Þetta
sést af úrgangsullinni, er því nauðsynlegt að
vera aðgætinn með flokkunina á sölustaðnum.
Stjórnin i Argentínu leggur ofurlítinn toll
á útflutta ull, 30 cent á 1000 kílo. Elutnings-
kostnaður til Bandaríkjanna er hérumbil 2 doll-
arar undir hver 40 teningsfet.
Eins og geta má nærri verður maður að
gæta sín vel innan um hina afarstóru ullarbingi
á markaðinum, þeir eru svo stórir, að maður
getur hæglega vilst.
Salan byrjar klukkan 8 að morgni og stend-
ur yfir til klukkan |11 árdegis, þá er hringt-
klukku og táknar það að salan er á enda þann
daginn.
Síðari hluti dagsins er notaður til þess að’
taka á móti ulJ, sem inn er lögð, ogtilþessað
afgreiða það sem seltj' hefir verið fyrri hluta
dagsins.
Yagnar ganga inn í húsið á neðsta Iofti,
og strax eftir að búið er að losa þá, er ullar-
sekkjunum lyft með lyftivélum upp á efrihæð-
ir hússins.
Allan kostnað við ílokkun, umbúnað,keyrslu,
toll, afgreiðslu og umboðslaun o. s. frv., verð-
ur kaupandinn að bera, og umboðsmennirnir
gleyma sannarlega ekki að reikna sér borgun
fyrir sérhverja auka fyrirhöfn, auk hinna reglu-
legu umboðslauna. Og 'ekki er laust við, að
látið só lítið eitt af latari ull saman við betri
tegund. Preistingin til þess verður mjög sterk,
þegar peningar eru sendir með pöntuninni,
Hinn mikli biti, sem var í Argentíu síðast-
liðið haust, gerði það að verkuin, að fjöldi a£
sauðfé dó, í sumum hlutum landsins alt að
fjórða hluta. Enginn hluti landsins fór var-
hluta af ullartapinu. Skaðinn var áætlaður
20°/0 eða 80,000 ullarsekkir, það er sama sem
80,000,000 punda.
Þessvegna var uli í þetta sinn lakari en
áður, svo þeir, sem unnið hafa úr henni, segja,
að hún hafi aldrei verið jafu léleg síðustu 20 ár.
Þegar komu fram sendingar, sem virtust
góðar, voru tuttugu fyrir einn, sem keptust um
að fá hana, svo verðið jafuaði sig upp, þótt:
ullin væri verri, því að hún seldist eigi
að síður. Verðinu var í þetta sinn aðallega
haldið uppi af Amerikumönnum og Þjóðverjum;
svo virtist sem Þjóðverjar þyrftu endilega að
fá ull, en Erakkar voru varkárir, og Englend-
ingar íhaldssamir.
Þegar markaðurinn var opnaður, var eftir-
spurnin eftir góðri ull mikil, hinar lakari teg-