Einherji


Einherji - 29.06.1944, Blaðsíða 4

Einherji - 29.06.1944, Blaðsíða 4
13. tölublað. Fímmtudaginn 39. júní 1944. ORÐSENDING frá Lýðveldis- og Þjóðháteðarnefnd Þökkum einstaklingum, félögum og öll- um almenningi þá miklu aðstoð, er okkur hefur verið veitt við undirbiining og fram- kvæmdir lýðveldiskosninganna 20-23- maí s. 1. og þjóðhátíðarinnar 17. -18. júní þ. m. Sérstaklega þökkum við Siglfirðingum, hve fljótt og myndarlega þeir brugðust við til þess að snotra og prýða bæinn. Allt hef ur þetta orðið Sigluf irði til sóma. F. h. Lýðveldis- og Þjóðhátíðarnefndar H. KRISTINSSON form. nefndanna. I Ræða forseta að Lög- bergi. Framhald af 1. síðu. annars mál. Síðan gengu menn í braut ok þótti öllum horfa til inna mestu óefna.“ Forustiunaður kristinna manna fól nú andstæðingi sínum, hinum heiÖna höfðingja, Þorgeir Ljós- vetningagoða, að ráða fram úr vandræðum. Hann gerhugsaði mál ið. Um málalok segir m. a. svo í Njálu: „En annan dag gengu menn til Lögbergs. Þá beiddi Þorgeir sér hljóðs og mælti: „Svá lýst mér sem málum várum sé komit í ó- nýtt efni, ef eigi hafa ein lög allir. En ef sundur er skipt lögum, þá mun sundur skipt friðnum, ok mun eigi við þat megu búa.“ Heiðinginn Þorgeir Ljósvetn- ingagoði segir því næst svo: „Þat er upphaf laga várra, at menn skuli allir vera kristnir liér á landi.“ Undu allir þessum málalokum með þeim árangri að af leiddi blómaöld Islands, unz sundurþykk ið varð þjóðveldinu að fjörtjóni. Nú á þessum fornlielga stað og á þessari hátíðarstundu bið eg þann sama eilífa guð, sem þá hélt verndarhendi yfir íslenzku þjóð- inni, að lialda sömu verndarliendi sinni yfir Islandi og þjóð þess á þeim tímum, sem vér nú- eigum framundan. Þjóðhátíð í hverjum bæ og byggð. Framh. af 1. síðu. vallarins. Bæjarstjóri Óli Herter- víg afhenti íþróttaráði Siglufjarð- ar völlinn til varðveislu og íþrótta- mönnum til afnota. Aage Schiöth formaður íþróttaráðs þakkaði fyr- ir hönd íþróttamanna. Þá fóru fram kappleikir í handbolta og fótbolta og boðhlaupi. 18. júní héldu íþróttamenn há- tíðahöldunum áfram og fór þá fram keppni í ýmsum greinum og eru úrslit í þeim birt á öðrum stað í blaðinu. Um kvöldið hafði K. S. samkomu í Nýja-Bíó. Voru þar flutar ræður og afhent verðlaun. Öll hátíðahöldin fóru hið bezta fram bg voru Siglfirðingum til sóma. Iþróttavöllurinn var fánum skreyttur báða dagana. Þá blakti og fáni á flestum húsum í bænum. Laukur fæst í Kjötbúð Siglufjarðar. Tilkynning um öflun eldsneytis. Bæjárstjórn liefur borizt tilkynning frá viðskiptamálaráðu- neytinu um, að miklir erfiðleikar muni verða á að útvega nægileg kol til landsins, og að vissa sé fyrir því, að innflutningur minnki mikið. Bæjarstjórn skorar því á alla bæjarbúa að taka upp svörð í vor, svo sem þeir frekast geta, til að tryggja það, að sá skammtur sem hingað fæst af kolum hrökkvi næsta vetur. Leyfi til svarðartöku geta menn fengið hjá bústjóranum á mjólkurbúi bæjarins, sem gefur öll fyrirmæli um, livernig ganga eigi frá mógröfunmn og þurrkvellinum. Utmæling fer fram á mánudags- og miðvikudagskvöld frá kl. 4 til 6 Útmælingargjald er 20 aurar á feralin og greiðist mn leið og útmæling fer fram. BÆJARSTJÓRI TILkYNNIIMG Viðskiptaráðið hefur ákveðið að frá og með 24. júní 1944 megi verð á líkkistum, öðrum en zink og eikarkistum liæst vera kr. 900.00. Ódýrari gerðir sem framleiddar hafa verið, mega ekki liækka í verði nema með samþykki Verðlags- stjóra. Verð á zink og eikarkistum er háð samþykki hans. Reykjavík, 16. júní. 1944 VERÐLAGSSTJÓRINN. KfllJPTAXTI Verkamannafélagsins Þróttar frá 1. júlí til 1. ágúst 1944. Vísitala 268. Dagv. Eftirv. Helgid.v. 1. Almenn vinna: 6,49 ‘ 9,73 12,98 2. Skipavinna: 7,32 10,97 14,63 3. Utsk. á síldar- og beinamjöli 8,04 12,06 16,08 4. Vinna við: Kol, laust salt, uppskipun og útskipun á sementi og lileðsla þess í vörugeymsluhúsi og ennfremur losun síldar í- úr skipum og bátum: 8,82 13,23 17,64 5. Boxa- og katlamenn: 9,65 14,47 19,30 6. Vindumenn og beykjar 7,75 11,61 15,50 7. Þróarmenn: 7,16 10,73 14,31 8. Kvndarar: 7,83 11,74 15,65 9. Taxti drengja 14—16 ára: 4,82 7,24 9,65 10. Ákvæðisvinna: Malartunna 5,84, tenfaðmur grjót 286,76. 11. Síldarsaltendur tryggja verkamönnum sínum kr. 1200,00 fyrir 2ja mánaða vinnu (dag-, nætur- og helgidagavinnu), er reiknist frá því vinna hefst almennt .á hverri vinnustöð að sumrinu, plús verðlagsuppbót. Mánaðarkaup í 2—4 mán. (alm. dag-á) kr. 1291,22. Mánaðarkaup í allt að 6 mán. (alm. dagv.), kr. 1255,85. Mánaðarkaup í 6 mánuði eða lengur (alm. dagv), kr. 1149,72. Mánaðarkaup þróarmanna kr. 1424,42. Mánaðarkaup kyndara kr. 1558,42. Mánaðarkaup vindumanna og beykja kr. 1415,04. Stjórn Þróttar. — Kaupið og lesið TlMANN og DAG —

x

Einherji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.