Einherji - 14.12.1946, Síða 4
Laugardaginn 14. des. 1946
15. árgangur. — 22. tölublað.
MÁLVERKASÝNING
Herbert Sigfússon, málari, liefur opnað málverkasýningu í Gildaskálanum og
verður sýningin opin nœstu daga frá kl. 11 f'.h til kl. 9 e. h.
Það er flestum Siglfirðingum kunnugt, að Herbert hefur um mörg ár fengizl
við listmálningu í tómstundum sínum, og hafa margar af myndum hans borið
ótvíræðan vott um ríka listræna hæfileika og þótt með afbrigðum góðar. Mál-
verk eftir Herbert prýða nú orðið fjölda heimila liér í Siglufirði.
Þetta mun vera fyrsta opinbera sýningin, sem Herbert efnir til, á málverk-
um sínum, svo að án efa verður mörgum forvitni á því að sjá liana. Alls eru á sýn-
ingunni um 30 myndir, vatnslitamyndir og olíumálverk, stór og smá. Flestar
munu myndirnar málaðar í sumar og eru aðallega landslagsmyndir eða úr at-
vinnulífinu. Eru þær úr Borgarfirði, frá Þingvöllum, Siglufirði og víðar.
Hér verður ekki lagður neinn dómur á listgildi sýningarinnar eða ein-
stakra málverka, þar sem þessum línum er fyrst og fremst ætlað að vekja athygli
á sýningunni og hvetja menn, til þess að sjá liana, enda efast ég ekki um það,
að mörg málverkin munu vekja athygli og sýningin i lieild þykja eftirtektar-
verð og merkileg.
Það er spá min, að eftir þessa fyrstu sýningu, muni Herbert málári, gefa
sig meir en áður að listmálningu, og að ekki líði á löngu, áður en hann verði
víðar kunnur en liér á Siglufirði.
Ó. J. Þ.
ÁLYKTANIR FRAMSÓKNARFLOKKSINS
(Framliald af 1. síðu)
1) nota vísindalega þekkingu og fullkomna nútímatækni í þjón-
ustu atvinnuveganna og við verklegar framkvæmdir.
2) gera iiflugar ráðstafanir til þess að tryggja afkomu framleiðslu-
stéttanna Og liafa þau áhrif á tekjuskiptinguna í þjóðfélaginu, að fram-
leiðslustörfin séu eftirsóknarverð.
3) styðja og skipuleggja framleiðslustarfsemi þjóðarinnar með það
fyrir augum, að sem allra flestir fái lífvænlega atvinnu við framleiðslu-
störf, og koma á eftirliti með og íhlutun um stóratvinnurekstur ein-
staklinga til tryggingar, því að hann sé rekin í samræmi við þjóðarhag.
4) stuðla að því með löggjöf og fjárhagslegri aðstoð, að sem flest
atvinnutæki verði rekin á samvinnu- og hlutaskiptagrundvelli.
5) koma skipulegri stjórn á f járfestingu landsmanna, til íþess að
forða ofþennslu annars vegar og koma í veg fyrir atvinnuleysi hins
vegar, Sé í því sambandi höfuðáherzla lögð á eftirfarandi:
a) Þstir framkvæmdir sitji fyrir, sem þýðingarmestar eru til eflingar
atvinnulífsins og til þess að bæta úr húsnæðislþörf þjóðarinnar.
b) Að næg atvinna sé í landinu fyrir þá, sem vinna vilja.
c) Að framleiðsluatvinnuvegir þjóðarinnar fái nægilegt atvinnuafl, til
þess að hægt sé að reka þá af fullu f jöri.
d) Að f jármagni því, sem þjóðin hefir yfir að ráða, verði dreift eðlilega
uim landið, með tilliti til framleiðsluskilyrða. Tryggt sé, að lánastarf-
semi bankanna verði hagað í samræmi við þetta.
6) Vinna að því, að félagssamtök launþega og atvinnurekenda taki
upp samvinnu sín á milli um leiðir til þess að auka framleiðslu og afköst
og stuðla þannig að því, að 'þjóðin geti búið við þau beztu lífskjör, sem
skilyrði leyfa. f því sambandi sé lögð áherzla á ákvæðisvinnu og hætta
skipulagsbætti í atvinnurekstri.
7) Beina fjármagni þjóðarinnar til nýrra framkvæmda eftir fyrir-
fram gerðri áætlun, sem fyrst og fremst verði miðuð við það að gera
framleiðslukerfi þjóðarinnar að sem fullkomnastri heild. Verði fjár-
magninu beint áð eftirfarandi verkefnum, meðal annars:
a) Til þess að auka beinan stuðning við ræktunina.
b) Til stofnlánadeildar sjávarútvegsins.
c) Til rafvirkjana fyrir kauptún og sveitir.
d) Til ræktunarsjóðs vegna stofnlána landbúnaðarins.
e) Til fiskimálasjóðs, til þess að styðja nýungar í þágu sjávarútvegs-
ins, byggingar fiskiðjuvera og eflingar útvegs þar sem fjármagn
er lítið fyrir hendi, en góð skilyrði.
f) Til hafnarframkvæmda, þar á meðal viðleguliafna og nauðsyn-
legra mannvirkja í þeim höfnum.
g) Til verksmiðjubygginga, einkum þeirra, er vinna úr framleiðslu-
Vörum landsmanna, eða eru til eflingar framleiðslunni.
h) Til nauðsynlegustu byggingarframkvæmda.
Um framkvæmd á stefnu flokksins í atvinnumálum, visast að öðru
leyti til álýktana flokksþingsins um iðnaðarmál, landbúnaðarmál og
sjávarútvegsmál.
MERKASTA MAtlB
Seinasti Mjölnir var að vanda
,ánægður með sig og sina. I feit-
letraðri fyrirsögn á fremstu síðu
reynir hann að flétta dýrðarkranz
til skrauts Áka ráðherra. Viljinn
er að vísu virðingarverður, en ár-
angurinn rýr eins og efni standa
til.
Mjölnir telur það merkasta mál,
sem lagt hefir verið fyrir núver-
andi Alþingi, er atvinnumálaráð-
herrann leggur það til, að öll báta-
útgerð landsmanna og hraðfrysti-
húsarekstur sé rekin á ábyrgð
ríkissjóðs.
Þetta má að vísu til sanns vegar
færa. En margur mun samt ætla,
að það sé vafasamur greiði, sem
Mjölnir gerir hlutaðeigendum, er
hann vekur slíka athygli á þessu
imáli, sem hann hefir gert. Áka er
líklega engin þökk 'í slíku.
Það er rétt að þetta er merkilegt
mál, raunar alveg stórmerkilegt.
Það er eitt athyglisverðasta heil-
brigðisvottorð, sem íslenzku at-
vinnulífi hefir verið gefið að
undanförnu.
Með þessu frumvarpi viðurkenn-
ir atvinnumálaráðherra, að það sé
ekki hægt að gera út á fiskveiðar
í vetur nema 'fiskverðið hækki um
30%. Hann viðurkennir hreinlega
ósigur sinn og sinnar fráfarandi
ríkisstjórnar. Og hann gerir meira.
Hann hreinlega gefst upp við lausn
vandamálsins.
Það ,að leggja til að allur sjávar-
útvegur landsmanna verði rekinn
á ábyrgð ríkissjóðs er engin lausn.
Og Mjölnir ætti að doka við með
stóryrði og skammir i garð þeirra
manna í Sjávarútvegsnefnd Al-
þingis, sem ekki vildu flytja nefnt
frumvarp, því á meðan var þó .ekki
opinbert, hversu gjörsamlega Áki
er mát.
Ýmiskonar fatnaður
svo SEM
Barnagallar
Drengjabuxur og blússur
Herranáttföt
Herrablússur
Herrapeysur
o. m. fl.
Kaupfélag Siglfirðinga
Fatadeild
JÖLASKÚNA
er bezt að kaupa í
Kaupfél. Siglfirðinga
Skóbúð
Gerið svo vel og komið með
börnin næstu daga til klippinga,
því síðustu þrjá daga fyrir jólin
verður ekki teldð á móti börn-
um.
Jónas Halldórsson
rakari
Teiknistofa
bæjarins.
Sigluf jarðarbær hefir í þjónustu
sinni verkfræðing. Bæjarbúum
mun yfirleitt ókunnugt hver verk-
efni þessi maður hefir við að fást
og hvert starfssvið hans sé.
Þar sem hér er um að ræða
nýjan starfsmann, er ekki nema
eðlilegt, að þetta sé nokkuð óljóst
og ókunnugt 'i fyrstu.
Þar sem bærinn héfir nú fengið
í þjónustu sína mann, sem fær er
um að annast húsateikningar allar,
sýnist eðlilegt og sjálfsagt, að
nú þegar eða svo fljótt sem frek-
ast er kostur verði kornið á fót:
Teiknistofu Sigluf j.kaupstaðar
Teiknistofan á að annast allar
húsateikningar fyrir bæjarbúa
fyrir sanngjarna þókmm. Með
þessu vinnst margt, en hér skal
aðeins nefnt tvennt.
Verkfræðingurinn, þessi starfs-
maður bæjarbúa, verður af sjálfu
sér hinn faglegi leiðbeinandi að því
er snertir öll tæknileg atriði húsa-
bygginga og um leið fær bæjarfé-
lagið sanngjarna greiðslu frá þeim,
sem verkf ræðingur inn teiknar
fyrir á Teiknistofu bæjarins.