Freyr - 01.02.1922, Page 4
10
FREYR
sveitum. En ályktanir Alþingis, er áSur
hafa veriS nefndar, miðuSu einungis að
því, aS komiö yrði á fót „s j e r s t a k r i
lánstofnun fyrir landbúnaö-
i n “, er veitt gæti bændum hagkvæm lán
til búnaSarbóta.
Annars skal hjer eigi fariS út í þennan
ágreining um málið, er fram kom á þingi.
Lögin eru þegar komin í gildi — á papp-
írnum — en framkvæmd þeirra frestaö
um sinn.
Veröur nú vikið aö sjálfum lögunum og
skýrt stuttlega frá helstu ákvæöum þeirra
eöa þeim atriöum, er almenning varöa.
Stofnfje Ríkisveöbankans eru 3 miljónir
króna, er ríkissjóöur leggur bankanum til.
Ríkissjóöur greiöir honum þettafjeþannig:
1. Úr Ræktunarsjóöi íslands í skulda-
brjefum eöa peningum e i n a miljón kr,
2. Úr Kirkjujarðasjóði í skuldabrjefum
bankavaxtabrjefum eöa peningum
e i n a miljón kr.
3. Úr Viðlagasjóði í skuldabréfum eöa
peningum e i n a miljón kr.
Stofnfje bankans má auka meö nýjum
fjárframlögum úr ríkissjóði eða meö yfir-
færslum úr varasjóöi bankans.
Andvirði þeirra þjóðjarðaogkirkjujaröa,
er hjer eftir verða seldar, renna inn í stofn-
sjóö bankans, þar til ööruvísi veröur á-
kveðið.
Auk þessa tekur bankinn viö allri for-
sjá og stjórn veðdeildar Landsbankans.
með öllum hennar skyldum og rjettindum.
Aö ööru leyti gilda lög og reglugerðir veö-
deildar framvegis um þessa deild Rikis-
veðbankans, þar til allrir fjórir flokkar
bankavaxtabrjefa veðdeildarinnar eru að
fullu innleystir.
Af stofnfjenu greiöir bankinn 2% árs-
vexti fyrstu 10 árin, en úr því 4%. Vext-
irnir renna til Ræktunarsjóðs, Kirkjujaröa-
sjóös og Viölagasjóðs, aö rjettri tiltölu viö
eign hvers þeirra í stofnsjóði bankans.
Tilgangur Ríkisbankans er:
1. Að veita lán, trygð veði í fasteignum
á íslandi.
2. A ö veita lán, trygð með ábyrgö bæjar,
sýslu eða sveitarfjelags.
3. A ð veita lán til löggiltra fjelaga, er
hafa með höndum samvinnumannvirki
til umbóta á fasteignum, svo sem áveit-
ur, raforkuveitur, samgirðingar eða
önnur álíka mannvirki, og sjeu lánin
trygð meö veði í afgjöldum af eign-
unum.
4. Að veita lán eða kaupa skuldabrjef,
trygð með veði í fasteign og auk þess
með fullri ábyrgð ríkisins.
5. Að gefa út og selja bankavaxtabrjef
fyrir þeim fjárhæðum, er bankinn ver
til lána samkvæmt ofansögðu, alt að
áttfaldri upphæð stofnsjóðs bankans.
Öll lán skulu veitt til endurgreiðslu, með
ákveðnum afborgunum, um langt árabil,
en afborgunarlaus, föst lán, má aldrei
veita.
Hreinn ágóði af rekstri bankans skal
lagður í varasjóð. Og hrökkvi eigi árs-
tekjur hans fyrir útgjöldum, greiðist það
sem á vantar úr varsjóði.
Bankanum skal sett reglugerð, er breyta
má, þegar þörf gerist. í henni skal ákveöið,
hvenær innlausn allra vaxtarbrjefa skal
lokiö. Innlausnartíminn sje þó eigi lengri
en 55 ár. — í reglugerð skal einnig ákveða
um vexti o. fl.
Bankinn er undanþeginn öllum tekju-
skatti, útsvari, stimpilgjaldi og öðrum
sköttum.
Bankinn lánar, samkvæmt 12. gr., fje
gegn hvers konar fasteignum sem vera
skal, ef eignin annars álíts tryggilegt veð
fyrir umbeðnu láni til langs tíma. Láns-
upphæðin má aklrei fara fram úr hlut-