Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1922, Síða 6

Freyr - 01.02.1922, Síða 6
12 FREYR hvert bráðabirgðarmat, þótt eigi verði meira unniS aS sinni. Um lántökuskilyrðin og útborgun á þessum umræddu lánum veröur nánar skýrt í reglugerð. Lán til bæja-, sýslu- eöa sveitarfjelaga e@a lán, sem trygö eru með ábyrgö þeirra, skulu því aö eins veitt, aö stjórnarráðiS hafi samþykt lántökuna eöa ábyrgöina. Um lán til fjelaga, til samvinnufram- kvæmda, svo sem áveitufyrirtækja, sam- giröinga, rafmagnsveitu o. s. frv., er þaS aS segja, a8 slík fjelög þurfa, eigi þau að geta fengið lán, að vera stofnuS samkvæmt sjerstökum lögum, og verSa aS hafa lög- varinn rjett eSa löggilta samþykt, til aS geta lagt á hlutaöeigandi fasteignir greiSsluskyldu á kostnaSi þeim, er fyrir- tækiS hefir í för meS sjer, þar meS taldar umbætur og viShald. VerSa þessar greiSsl- ur aS hafa forgangsrjett fyrir öllum veS- skuldum, og mega eigi vera hærri en þaS á neinni fasteign, aS svari til lánsupphæðar þeirrar, er bankinn gæti veitt gegn veSi í eigninni. Lánum þeim, er bankinn veitir, má hann ekki segja upp, meSan lánþegi stendur í skilum, og engar breytingar verSa á veS- settri fasteign, er rýri veSgildi hennar. — Eigendaskifti aS veösettri fasteign skal til- kynna bankanum, og getur hann þá heimt- aS lániö endurgreitt aS nokkru eSa öllu leyti, nema öðruvísi umsemjist, og hinn nýi eigandi sanni eignarheimild sína. Falli lán í gjalddaga og engir samning- ar komist á um framlenging þess eSa greiSslu, getur bankinn, til lúkningar skuld- inni, ógreiddum vöxtum o. s. frv., látið selja veSiS viS opinbert uppboö, án undan- farandi dóms, eSa látið leggja það bank- anum út til eignar. En kjósi skuldunautur þaS heldur, aS afhenda bankanum eignina, meS samþykki bankastjórnar, til fullra umráSa til sölu eSa á hvern þann hátt, er best gegnir, þá er honum þaS heimilt. Skal bankinn síSar, þegar skuldinni er lokið, gera eigandanum sem var reiknings - skil og greiða honum þaS, sem afgangs kann aS hafa orðið, að öllum kostnaði frádregnum. Vextir af lánum skulu jafn háir því, er bankinn greiöir af bankavaxtabrjefum þeim, sem út eru gefin vegna lánsins. Hvað þeir verða, er eigi enn ákveðið. Er senni legt, að þeir verði, með gjaldinu af lánum til varasjóðs bankans o. s. frv., 6—7%. Gert er ráð fyrir árlegri afborgun af öll- um lánum. Skal í reglugerð ákveSið, hvað lánsfrestur er lengstur á hverju láni, en það fer að öðru leyti eftir því, hverrar tegundar lánið er, hvað hann verður hafS- ur langur. Því tryggara og betra sem veð- ið er, þess lengri mun lánsfresturinn verða. Sennilega verður og tekiö tillit til þess, til hvers lániS er notaS o. s. frv. Ætlast er til, eftir lögunum, að stjórn bankans skipi 3 menn: aðalbankastjóri og tveir meðstjórnendur. Auk þess skal skipa bókara og fjehirði. En fyrst um sinn má þá fresta skipun þeirra, en fela Lands- bankanum að annast út- og innborganir bankans. Sömuleiðis er gert ráð fyrir því, aS tveir af bankastjórum Landsbankans, er stjórnarráöiö tilnefnir, gegni fyrst um sinn störfum meðstjórnenda Ríkisveðbankans, án sjerstakrar þóknunar. Hjer hefir nú veriö að nokkru skýrt frá ýmsum helstu ákvæðum laganna um Rikis- veðbanka íslands. Reglugerð fyrir bankann er enn ekki samin, og sagt er, að framkvæmdum bank- ans sje frestað, að minsta kosti í bráð. Líklegast, að þingiö í vetur geri samt ráð- stöfun til þess, að bankinn taki til starfa sem fyrst. Eins og menn munu sjá og skilja af

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.