Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1922, Síða 10

Freyr - 01.02.1922, Síða 10
i6 FREYR sýningarinnar, veitti henni alla forstööu og kostahi hana, meíi styrk úr ríkissjó?Si. KostnaSurinn viS sýninguna varö eSlilega mikill, en tekjurnar af henni mjög rýrar Tilgangurinn meS sýningunni var sá, að sýna menningarástand búnaSarins á þessu sviSi, og aS fá safn af sem flestum bús- áhöldum og verkfærum, sem nothæf mundu hjer á landi, breytt e'Sa óbreytt. Sýnendúr voru. 124 alls og sýningarmun- ir 1349. Innlendir sýnendur voru 70, og sýndu þeir 6qo muni, stærri og minni. Frá Danmörku voru sýnd 323 eintök af alls- konar vjelum og verkfærum, Englandi 170, Þýskalandi 117, Noregi 91, SvxþjóS 42, Ameríku 4 og Frakklandi 2. AS ööru leyti vísast hjer til skýrslu um sýninguna, sem prentu'ð er í B ú n a 8 a r- r i t i n u árið sem leið, 4. hefti. HeimilisiSnaSarfjelag ís- 1 a n d s hjelt einnig um sama leyti sýningu á allskonar heimilisiðnaði. Var þar margt að sjá, eigi síður en á búsáhaldasýning- unni. Hefir þeirrar sýningar verið getiö í F r e y. — Þá var ennfremur 1 i s t a s ý n- ing í Reykjavík um þetta leyti. Um mánaðamótin júní og júlí og næstu viku á undan var óvenjulega gestkvæmt í Reykjavík. Fjöldi manns úr öllum áttum var hjer þá saman kominn. Það sem dró fólkið hingað til höfuðstaðarins þessa daga voru meðal annars þessar umgetnu sýningar. Við þaö bættist svo þaö, aö um sama leyti voru hjer háð allskonar „þing“ og „mót“ er fjöldi manna sótti. Má þar til nefna búnaðarþingiö, fiskifjelagsþingið, sambandsþing samvinnufjelaganna, stór- stúkuþingið, prestastefnuna, læknamótiö, kennaramótið o. s. frv. Loks var það kon- ungskoman með sínu aðdráttarafli, er hafði og mikil áhrif til að draga fólkið að sjer. Fór vel á þessu öllu saman, því margir gátu þarna slegið tvær flugur og fleiri í sama högginu, enda margt að sjá nýstárlegt — og heyra. Meö nýjungum ársins má nefna það, aö hingað til landsins var útveguð nýmóðins plægingavjel, er nefnd hefir verið þ ú f n a- b a n i, stórvirkt jarðyrkjuáhald. Var hún notuð til jarðvinslu-sljettunar — hjer í Reykjavíkurlandi í sumar. Þykir vjelin gefast vel, þar sem henni verður komið við, En annars mun ofsnemt að kveða upp nokkurn fullnaðarúrskurð um notagildi hennar alment, að svo vöxnu máli. B æ k u r um landbúnað er komu út á árinu eru þessar helstar: Á r s r i t Búnaðarsambands Austurlands 1920, Á r s r i t Garðyrkjuf jelagsins, B ú n- aðarritið 33. ár, Dýraverndar- i n n 6. ár, F r e y r XVIII. ár, S k ý r s 1 a Búnaðarsambands Vestfjarða 1918—1919, Tímarit íslenskra samvinnufjelaga 15. ár, framhald Mjólkurfræði Gísla Guðmundssonar gerlafræð., J a r ð- ræktarmál eftir Metúsalem ráðu- naut StefánssonogUmskógrækt. Auk þessa hefir komið út sjerprentun af grein í „Tímanum“: „Búsáhaldasýningin", og nokkrar ritgerðir í Búnaðarritinu hafa einnig verið sjerprentaðar. ----0---- Öllum kemur saman um það — og mikið um það rætt — að horfurnar yfirleitt sjeu mjög ískyggilegar, og verður ekki á mótí því mælt. Sjerstaklega eru fjárhagsástæð- urnar slæmar, bæði hjá einstaklingunum og þjóðinni í heild sinni. Eru margar á- stæður að því, sem hjer yrði oflangt mál upp að telja. Enda gagna lítið sífeldar harmatölur, vol og víl. — Nú verður hver að duga eins og best getur, og verða sam- taka um það, að rjetta við hag þjóðarinn- ar. Þingið verður að gjörbreyta um stefnu í fjármálunum, og sjá sig um hönd. Það

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.