Einherji - 09.06.1953, Page 1
Þriðjudaginn 9. júní 1953
5. tölublað,
22. árgangur.
Kosnmgaskrifst
Framsðknarfl.
er í Norðurgötu 4.
Opin 5—7 og 8,30—10,30
síðd. — Framsóknarmenai
og annað stuðningsfólk
Jóns Kjartanssonar er
beðið að hafa samband
við skrifstofuna.
Kosniniganefndin
Stefna Framsóknarflokksins í sjávar-
útvegs- og iðnaðarmálum
SJÁVAItÚTVEGSMÁL v
Tíunda flokksþing Framsóknarmanna telur það eitt af megin-
skilyrðum fyrir efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar, að sjávarútveg-
inum séu búin svo arðvænieg skiiyrði, að unnt sé að reka hann á
fjárhagslega öruggum g;rundvelli og að þeir, sem við hann vinna,
hafi sambærileg kjör við aðrar stéttir, og ,njóti sannvirðis vinnu
sinnar.
Stefnu flokksins í sjávarútvegsmálum markar flokksþingið í meg-
inatriðum þannig:
1. Flokksþingið lýsir ánægju siuni yfir þeim áfanga, sem náðst
liefur með stækkun fiskveiðiiandhelginnar og þakkar forgöngu
ríkisstjórnarinnar í málinu. Telur flokksþingið, að ekki komi til
mála að veita neinar ti'lslakanir varðandi hina nýju friðunarlínu
og skorar á þjóðina að standa einhuga saman um þá ákvörðun,
sem tekin hefur verið. Ennfremur telur flokksþingið brýna nauð-
syn bera til, að vinna að friðun ákveðinna veiðisvæða, sem liggja
utan núverandi friðunardínu og sem reynslan hefur sýnt, að hafa
orðið fyrir sérstakri ágengni togara, t. d. veiðisvæði vélbáta á
Vestfjörðum þar sem sérstök góðfiskimið liggja undir gereyðingu.
Þá leggur flokksþingið áherzlu á, að landhelgisgæzlan verði aukin
og bætt frá því, sem nú er.
2. Flokksþingið te'lur æskilegt að þeir, sem vinna að framleiðslu
;sjávarafurða, eigj beinna hag:muna að gæta um rekstursafkomu
útgerðarinnar með hlutaskiptvim, ef um einkarekstur er að ræða,
eða beinni þátttöku í félagsformi. Fdokksþingið tedur, að vinna
beri að því, að jafnhliða einkarekstri á útgerð séu rekin sam-
vjnnuútgerðarfélög sjómanna. Flokksþingið telur það mjög nauð-
. . . .synlegt, að útgerðarmenn og sjómenn verði beinir aðilar að
vinnslu og nýtingu aflans og sölu hans, svo þeir njóti sannvirðis
vörunnar.
Þá telur flokksþingið rétt að stofnuð verði, þar sem nauðsyu
krefur, fé’lög um rekstur togara tii atvinnuaukningar i hinum
ýmsu iandshiutum, með stofnframiögum frá ríkinu, kaupstöðum
og 'kauptúnum.
3. Flokksþingið telur nauðsynlegt, að útgerðinni sé jafnan séð í
tæka tíð fyrir fulinægjandi hagkvæmum rekstrarlánum, og vextir
af þeim lækkaðir frá því sem nú er, svo að til stöðvunar atvinnu-
tækjanna ikomi ekki vegna skorts á rekstursfé, enda sé gætt fullr-
ar hagsýni 1 rekstrinum. Þá telur það, að stefnu bankanna beri
að breyta í það horf, að lánum til útg;erðar verði beint til ver-
stöðva víðsvegar um landið meira en nú er gert, og bankaútibú-
um verði gefnar frjálsari hendur ,um útlán í því skyni. Harmar
þingið þá þróvm, sem undanfarið hefur átt sér stað, að fleiri og
og fieiri bátar eru fluttir frá útgerðarstöðum úti á landi, þar sem
útgerðarski-lyrði eru góð, með þeim afieiðingum, að atvinnulíf
lamast og byggðir eyðast.
4. Áherzla sé lögð á að ijúka þeim hafnargerðum, sem byrjað hefur
verið á og mikla þýðingu hafa fyrir útgerðina. Þá sé einnig stefnt
að því, að koma upp hafnarmannvirkjum, þar sem skammt er í
auðug og lítt notuð fiskimið.
5. Sjómönnum og öðru starfsfólki útgerðarinnar sé tryggð gpð að-
búð 'í viðleguhöfnum og annars staðar, þar sem það dvelur vegna
atvinnu sinnar.
6. FloUksþingið telur, að rejmsla siðustu ára af síldveiðum fyrir
Norður- og Austurlandi sýni nauðsyn þess, að aukin verði fjöl-
breytni í útgerð, og meiri áhcrzla verði lögð á reknetasíldveiðar
og sildveiðar á úthafinu, en verið hefur. Flokksþingið ályiktar að
fela þingmönnum flokksins að vinna að þv'i, að íslendingar fái
aðstöðu til útgerðar við Grær.land.
7. Flokksþingið ályktar að vinna beri að því, að sala saltfisks verði
frjálsari en nú er og bendir á í þvi sambandi, að S.Í.S. verði
löggiltur útflytjandi, ásamt S.I.F.
8. Efldar séu vísindalegar rannsóknir í þágu fiskveiða og nýtingar
sjávarafurða, og þeim búin þau skilyrði, að þær geti komið að
sem beztum notum. I því sikyni verði útvegað fuilkomið skip til
haf- og fiskrannsókna og ramisóknarstofnun sjávarútvegsins bú-
in betri og fullikomnari starfsskilyrði.
9. Flokksþingið áréttar fyrri ályktanir um að æskilegt sé, að komið
verði upp reikningaskrifstofu fyrir togaraútgerðina á sama hátt
og fyrir vélbátaflotann.
10. Flokiksþingið leggur áherzlu á, að fuilit tiilit sé tekið til smábáta-
útgerðarinnar í löggjöf og stjórnarframkvæmdum varðandi sjáv-
arútvegsmál. Lýsir flokksþingið ánægju sinni yfir þingsályktim
. . um rekstrarlán til cpinna véibáta, er samþykkt var á síðasta
Alþingi.
11. Flo'ksþingið telur nauðsynlegt, að varzla verði allan sólarhringinn
árið um kring á talstöðvum, þar sem það kann að þykja nauð-
synlegt vegna öryggis sjófarenda og ennfremur að greitt sé fyrir
Framhald á 2. s'íðu
BETL ARI N N
I Neista, sem út kom 30. f.m.
birtist grein eftir einhvern
ónefndan Adþ.fd.mann innlendan
eða „erlendan“, undir fyrirsögn-
inni: „Hver verður stefna Fram-
sóknarfl. eftir næstu kosningar?“
Efni þessar greinar er ekkert
nýmeti fyrir Sigifirðinga. Upphaf
hennar og endir er áskorun til
Framsóknarmanna hér, um að
svíkja flokk sinn og frambjóð-
anda á kosningadagjnn 28. þ.m.
Álíka áskoranir hafa Alþýðufl-
menn hér sent frá sér fyrir
hverjar alþingiskosningar, allt frá
því Siglufjörður varð sérstakt
kjördæmi, og eru þær ýmist fram
settar í blaði þeirra eða í gegn-
um „talstöðvar" flokksins.
Þessi áróðursaðferð Aiþýðu-
fiokiksmanna hér, er einstök í
sinni röð og sýnir glöggt móral-
inn, sem þarna ríkir hjá þessu
fólki.
I umræddri grein , Neista birt-
ist t. d. þessi klausa:
„Ef flokkurinn (Framsóknarfl.)
ætlar sér aö gera iteiðarlega til-
raun til þess að ltverfa fró íhalds-
pólitíkinni og taka upp umbóta-
sinnaða vinstri stefnu, þá getur
hann ekki ó isama tíma stutt af
fremst mégni andstæðinga þeirrar
stefnu til áhrifa í þjóðfélagsmál-
um, eða stuðlaö beinlínis að kosn-
ingu fulltrúa kommúnista eða
Sjálfstæðismanna í ákveðnum
kjördæmum.
En þetta gerir flokkurinn visu-
lega hér í Siglufirði. Allir vita,
að kosning Jóns Kjartanssonar er
vonlaus. — Með því að beita allri
orku sinni að því hér í Siglufirði
að fá frjálslynda Framsóknarmenn
til þess að eyðileggja atkvæði sín
og áhrif á islenzk stjórnmál, með
því að kasta þeim á glæ, er flokk-
urinn beinlínis að stuðla að kosn-
ingu koinmúnista á Siglufirði.“
Þessi „móralska“ grein endar
Framhald á 3. síðu