Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1930, Blaðsíða 17

Freyr - 01.11.1930, Blaðsíða 17
FRE YR 117 virka daga ársins. Verkamenn er sjá sjer sjálfir fyrir fæði og húsnæði, hvað Hauge að fengju 5 til 6 krónur á dag. Hauge gerist nú aldraður maður og lætur af staríi sínu í ár. Hefir sauðfjárbúið á Hodne orðið til mikilla bóta undir hans stjórn og verður því haldið áfram með sama fyrirkomulagi. Þar er alin upp líffjársstofn af Cheviot-fje og bændum seldir þaðan kynbóta gripin. Búið sjált't eru 200 ær og annað fje tilsvarandi. Tvö önnur samskonar bú eru vestan-fjalls í Noregi. Cheviot-fjeð nær tæplega þeirri þyngd sem íslenzkt fje en gefur meiri og betri ull og meira ket af lifandi þunga. Hjá Hauge dvöldu sem aðstoðarfjármenn fjórir íslenzkir piltar Hailgrímur Þorbergsson, og sá er þetta ritar, Emil Tómasson, sem l)ýr á Stuðlum í Reyðarfirði og Jón Jónsson í Húsavík í Þingeyjarsýslu. Munum við allir bera hlýjan -hug til gamia mannsins, sem reyndist okkur góður húsbóndi og góður maður og munuin við allir óska honum góðs æfikvölds. Paul Gúnther prófessor við Landbúnaðar- háskólann í Berlín var hjer nætursakii' hjá mjer í sumar. Honum ógnaði mjög kauphæð- in hjá verkafólki hjer í sveitinni og kvað atvinnuleysið vera alvarlegasta mál í Þýzka- landí eins og nú stæði. Taldi hann hægðar- leik að fylla sveitirnar hjer með þýzku vinnufólki, sem gera mundi minni kaupkröf- ur. en hjerlent fólk gerði. Margir Englendingar og Skotar komu hjer í sumar. Þeir höt'ðu sömu sögu að segja um útvinnuleysi í Bretlandi. Kaupið í sveitunum þar nú, fyiir karlmenn er um B0 skildingar á viku og af því þurfa verkamenn að sjá fyrir sjer að öllu leyti. Árin 1908 og 1909 þegar jeg var í Skotlandi var kaup þetta 20 skildingai' á viku og hefir því ekki hækkað síðan nema um ca 33% En hjer hef ir það hækkað síðan yfir 900.0/° Verkakaup karlmanna hefir stigið hjer í hjeraði hröðum skrefum undanfarandi 2 ár. Vor og haustvinna um ca 50 Með þeirri kauphæð sem nú er orðin (alt upp í 70 kr. um sláttarviku og alt frítt) verða bændur að hætta algerlega við kaupmannahaldið. Jeg þekki bónda er hjelt kaupamann í sumar í 10 vikur. Bóndinn hafði 75 dilka til förgun- ar í haust og kaupamaðurinn fór með 50 af þeim. Bóndanum varð að orði: „Ja, nú tek jeg ekki kaupamenn aftur.“ Samtímis þessu kaupgengi lækka búsafurðir bænda árlega. Landbændur eru nú aliir að gefast upp við að nota annan vinnukraft en sjálfs síns hend- ur og sinna. Næst koma útvegsbændur með uppgjöfina. En afleiðingar geta orðið þjóðinni dýrt spaug. Framleiðsian stórminkar, pen- ingastofnanirnar verða máttlausar og tóm- hljóð í skúffunni hjá landssjóði. íslendingar hafa fallið af skorti á öllum öldum, síðan landið bygðist nema á 20 öld- inni. En af henni eru enn ekki liðin nema tæp 30 ár. Þeir eru nú á góðri leið með að stöðva framleiðsluna eða hnekkja stórlega, er valdið getur, fyr en síðar, matvælaskorti 1 landinu. Dr. Hellmut Lotz hefir á þessu hausti rit- að um ormaveikina í „Dag“ og lýst aðferð sem notuð er til að drepa orma í inníflum sauðfjársins. Hann segir meðal annars: Með rannsóknum sínum fann dr. Kers- chagl meðal, sem hann nefnir Contortin. Þetta tneðal er gefið þannig að maður bland- ar saman 2 matskeiðum Contortin, nokkm salti og V4 kg. maísmjöl og fiskmjöl (síldar- mjöl) og gefur kindunum þetta í litlum trje- kössum. Best er að taka frá allar þær kind- ur sem hafa hósta, eru magrar og hafa niðurgang og halda þeirn í húsi eða stíu út

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.