Freyr

Årgang

Freyr - 01.11.1938, Side 3

Freyr - 01.11.1938, Side 3
Bjarni Runólfsson, Hólmi. Fæddur 10. apríl 1891. Dáinn 4. sepf. 1938. Bjarni Runó/fsson Þann 4. sept. s.l. andaðist að heimili sínu, Hólmi í Landbroti, Bjarni Runólfs- son bóndi og rafvirki. Hann var aðeins 47 ára, fæddur 10. apríl 1891 að Hólmi, þar sem hann átti heima alla tíð. Bjarni var jarðaður í grafreit í Hólmi, sem vígð- ur var við greftrun hans. Sjálfur hafði hann valið sér þennan legstað, fagran hól í túninu á Hólmi. Þar hafði hann leikið sér í bernsku, og séð hinn víða fjallafaðm, með fögrum hlíðum og hvít- um jökulbungum. Foreldrar Bjarna eru enn á lífi í Hólmi, þau Rannveig Bjarnadóttir og Runólfur Bjarnason smáskammtalæknir, Runólfssonar Sverrissonar, bróður Eiríks Svei’rissonar sýslumanns. Bjarni giftist árið 1921 eftirlifandi konu sinnj, Vaí- gerði Helgadóttur frá Þykkvabæ. Eigi áttu þau hjón börn. Bjarni var elztur níu systkina og var þegar í æsku kallaður til allra starfa í þarfir heimilisins. En snemma hneigðist hugur hans til smíða og lagði hann þegar í æsku hönd á hvers konar smíði, jafn- framt heimilisstörfum. Um tvítugt réðist Bjarni nokkra mánuði að Suður-Vík, til Halldórs Jónssonar umboðsmanns. Munu kynni hans af því heimili hafa orðið hon- um til mikilla nota, og jafnan síðan stóðu honum þar opnar dyr gestrisni og greiða. Árið 1913 var reist rafstöð í Þykkvá- bæ í Landbroti, hjá Helga Þórarinssyni bónda þar. Bjarni vann við byggingu þeirrar stöðvar með Halldóri Guðmunds- syni raffræðing. — Rafstöð þessi var sú fyrsta í Skaftafellssýslu og var Bjarni jafnan fenginn til þess að lagfæra stöð- ina, er hún bilaði. Þannig óx þekking hans á rafmagni upp af reynslu hans sjálfs. i Bráðlega fór Bjarni að hugsa um raf- virkjun heima hjá sér í Hólmi. Árið 1921 byrjaði hann að smíða túrbínu í því skyni. Sýndist flestum þ'að ófæra, en Bjarni lét sig engu skipta vantrú annara. Hann hafði hugsað málið. Verkfæri hans í þá daga voru aðeins þau einföldustu, sem af verður komizt með við venjulega

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.