Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1938, Page 4

Freyr - 01.11.1938, Page 4
162 PRE YR \ smíði og flest hans eigin verk. Fátæktin hafði kennt honum að komast af með lítið, og svo virtist sem honum gæti orðið allt að verkfærum, þegar þess þurfti við. Þótt verkfæra kostur væri lítill við þessa fyrstu túrbínusmíði, bælti hann úr því eftir hendinni, með því að smíða sér verkfæri. Aðkeypt verkfæri hans voru aðeins hamarinn, steðjinn og járn- sagarblaðið. En smíðinni skilaði áfram og túrbínan reyndist skila ágætlega því afli, sem til var ætlast. Þótt Bjarni hafi skilað mörgu glæsilegra verki síðar, en þessari fyrstu túrbínu, er óvíst að hann hafi nokkru sinni unnið meira afreks- verk, þegar tillit er tekið til alls. Nú hefir þetta hlaupahjól verið hirt úr úrgangs- járnhlaðanum og er geymt sem stáss- gripur í stofunni í Hólmi. Svo einkenni- lega vill til, að eins og Bjarni byrjaði hér í Hólmi, sem brautryðjandi nýs tíma í rafmagnsmálum sveitanna, svo endar hann líka þetta starf sitt í Hólmi. Það síðasta, sem hann hreyfði hönd að í smiðju sinni, var að ljúka við nýja raf- stöð í Hólmi, miklu aflmeiri en þá, er áð- Hólmur í Landbroti. ur var. Var stöð þessari með naumindum lokið, er Bjarni lézt, en stækkun stöðv- arinnar var nauðsynleg, vegna hins nýja frystihúss, sem Bjarni var byrjaður á og tilheyarandi véla, sem þegar voru komn- ar. Frystihúsið reisti Bjarni árið 1936 fyrir heimili sitt, en svo var það notað til frystingar á kjöti til Sláturfélags Suður- lands. Árið sem leið var slátrað 6000 f jár í Hólmi, en í haust nokkru minna. Starfs- ferill Bjarna í rafmagnsmálum, er á milli þessara rafstöðva, sem hann reisti í Hólmi. Á síðari árum hafði Bjarni kost hinna fullkomnustu tækja við smíðar sínar. Nú létta aflmiklir rafknúnir dynamóar starf verkamannsins. í stað litla rennibekks- ins, sem Bjarni smíðaði sjálfur og notaði við túrbínusmíðar í fyrstu, eru nú komn- ir tveir, stærri og minni, sem látlaust — stundum nætur og daga — urguðu á járninu í túrbínurnar. Auk borvéla, sem ganga fyrir rafmagni og fjölda verk- færa, eru þar logsuðu- og gassuðutæki. Innanbæjar er rafmagnið látið snúa skil- vindu og strokk, hita vatn í bað o. fl.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.