Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1938, Page 5

Freyr - 01.11.1938, Page 5
FRE YR 163 Bjarni kom í alla landsfjórðunga til leiðbeiningar við rafvirkjun. Leiðbeindi hann bæði á vegum Búnaðarfélags Is- lands og Búnaðarsambands Suðurlands. Ótal fyrirspurnunum svaraði hann í all- ar áttir. Alls smíðaði hann og sá um smíði á eitthvað á annað hundrað túrbínum og setti upp talsvert fleiri stöðvar að auk. Rafstöðvar hans eru dreifðar víðsvegar um Suður-, Yestur- og Norðurland. Fáum mun hafa auðnast það í eins ríkum mæli og Bjarna, að veita birtu og yl í huga og híbýli manna. Þótt Bjarni hafi orðið frægastur mað- ur fyrir rafstöðvar sínar, vita þeir, sem kynntust honum meira en af afspurn, að hann var afburðamaður á fleiri sviðum. — Hann var verkmaður svo af bar, að hverju sem hann gekk. Hugur og harð- fengi hefir ef til vill orðið ofjarl heilsu hans, sem ekki var að sama skapi sterk, þótt eigi væri það sjáanlegt, þegar að verki var gengið. Bjarni var smiður af Guðs náð, hann naut engrar kennslu, lífið var skóli hans. Engin var sú vél, að Bjarni virtist eigi þekkja hana og kunna hennar full skil. Öllum fagmönnum var því ofaukið þar sem Bjarni var, þótt hann ætti við hin vandasömustu viðfangsefni. Samferðamenn Bjarna eiga, í minnir.g- unni um hann, margar myndir, sem ekki gleymast. Þeir minnast atvika, þegar ekkert virtist fyrir hendi til bjargar þv;, er bjarga þurfti, en þá sá hann jafnan ráð. Urðu þá fáir til þess að grípa fram í fyrir Bjarna, þegar svo stóð á. Æfi Bjarna, í'rá því hann komst úr æsku, var óslitið brautryðjandastarf. Fór hann heldur eigi varhluta í byrjun af misskilningi og áróðri, heldur en aðrir brautryðjendur. Fyrstu sláttuvélina, sem að verulegum notum kom í sýslunni, aust- an Mýrdalssands, keypti Bjarni. Vann Landbúnaðarsýninp danska. I. Bellahöj. í einu úthverfi Kaupmannahafnar liggur hæð ein, sem er all-há á danska vísu og heitir Bellahöj. Fyrir fáum árum lá hún utan Kaupmannahafnar, og þá klædd bændabýlum, ökrum og skógi. Á síðasta aldarfjórðung hafa í kringum Bellahöj risið upp stórar byggingar, verksmiðjur, nýtízku verkamannabústað- ir, villur ríkra manna, steyptar götur o. s. frv. Það er að segja, Kaupmannahöfn hefir teygt armana út fyrir Bellahöj og lokað hana inni í faðmi sínum. Bellahöj er einskonar rjóður í sjálfri borginni, um 30 ha. að stærð, þar af 15 ha. skógur, hitt akrar. Af Bellahöj sér inn yfir mest alla hann með henni víða á bæjum fyrir lítið endurgjald, en sýndi í verki nauðsyn sláttuvéla. Bjarni átti fyrsta bílinn, sem fór yfir vötn og vegleysur Skaftafells- sýslu. Var það upphaf þess, að landleiðir voru bættar austur, og vegir lagðir með tilliti til notkunar bíla. Þessi dæmi eru aðeins nefnd af mörg- um, sem sýna framkvæmdir Bjarna um fleira en það, sem hann hefir orðið lands- kunnur fyrir. Nú líta menn spyrjandi heim að Hólmi. Ilvað verður um Hólminn? Það er hljótt yfir Hólmi við fráfall Bjarna. Járnspæn- irnir þjóta ekki lengur útaf rennibekkj- u.aum. Leiftur logsuðunnar sjást ekki meir. Á hinn létti vélakliður aldrei að heyrast í Hólmi framar? — Gestrisni Bjarna og hjálpsemi kemur hverjum í hug, sem heim lítur, en hvað verður gert fyrir minningu hans? Þykkvabæ í okt. 1938. Þórarinn Helgason.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.