Freyr - 01.11.1938, Side 7
FRE YR
165
a. Jarðræktin.
I tjaldi með um 500 m2 gólfflöt, voru
helztu og þýðingarmestu rannsóknir cg
tilraunaniðurstöður jarðræktarinnar
sýndar, aðallega í þrem liðum, þ. e. 1.
jarðvinnslu og áburðarnotkun, 2. ræktun
nytjajurtanna bg 3. uppskeran, magn
hennar, gæði og notkun.
1 fyrstu liðunum var gefið yfirlit yfir
mismunandi jarðvegstegundir í Dan-
mörku, vinnu við jarðvinnslu og ræktun,
og ennfremur þörf nytjajurtanna fyrir
kalk. Þessu var haganlega og skipulega
fyrir komið með kortum, línuritum og
myndum. Undir þann lið heyrði ennfvem-
ur húsdýraáburðurinn, geymsla hans og
notkun. Þar var sýndur hinn mikli munur
á mismunandi aðferðum við að koma hús-
dýraáburðinuum niður í jörðina.
Lærdómsríkur pistill fyrir oss Islend-
inga, að sjá eitt hlass af kúamykju plægt
ofan í jörðina strax, gera sama gagn og
tvö hlöss, sem voru látin liggja ofan á að
eins í fjóra daga, en þá plægt niður. Þá
var einnig gerður samanbvrður á verð-
mæti húsdýraáburðar og tilbúins áburðar.
Öðrum lið, ræktun nytjajurtanna, var
skipt niður í þrennt: korn, rótarávexti og
belgjurtir. Þar var gert yfirlit yfir mis-
munandi notagildi tegunda, afbrigða og
ætta, innan hvers flokks, með sýnishorn-
um afbrigðanna. í þessari deild var og
haganlega fyrir komið sýnishornum af
jurtasjúkdómum og upplýsingum um
varnir gegn þeim o. fl.
í miðju tjaldi voru sýndar þær grasteg-
undir, sem voru ræktaðar fyrir 150 árum,
og þær, sem nú eru ræktaðar, og saman-
burður gerður á uppskerumagni þeirra
og notagildi. Á stóru landabréfi af Dan-
mörku var sýnd lega allra tilraunstöðv-
anna, og gert mjög greinilegt yfirlit yfir
alla tilraunastarfsemi jarðræktarinnar.
Heimili allra ráðunauta voru merkt á
kortinu ásamt bændaskólunum. í tjald-
inu var ennfremur partur af eínarann-
sóknastofu, sem eingöngu starfar í þágu
j arðræktarinnar.
í þriðja liðnum var sýnt, aðallega með
línuritum, hið vaxandi uppskerumagn,
bæði af flatareiningu og landsins í heild,
síðustu 100 árin. Uppskeran er nú af sum-
um tegundunum margföld á við það, sem
áður var. Á einum stað var sýndur korn-
vöruiðnaður, og þar með yfirlit yfir
neyzlu af dönsku og útlendu korni í Dan-
mörku. Þar var brauð bakað úr mismun-
andi afbrigðum af korni. Nú á síðustu ár-
um hefir verið gert all-mikið að því að
rækta ný afbrigði, sem gott sé að baka
brauð úr, og gefa mest eftirsóttu brauðin.
Heildaryfirlit yfir allan iðnað, sem not-
ar hrávörur landbúnaðarins, þróunarsaga
hans og allar þær vörutegundir, sem
framleiddar eru úr þessum efnum var
sýnt, bæði með sýnishornum, línuritum
og góðum Ijósmyndum.
Á all-stóru svæði, úti undir berum
himni, var haganlega fyrir komið náttúr-
legri sýningu í tveimur smækkuðum
myndum, þar sem önnur sýndi hvernig
jörðin var notuð og henni skipt um 1788,
þegar allir bæirnir stóðu í einni þyrp-
ingu ,,Landsby“, með litlum og illa lög-
uðum ökrum, er höfð voru á áraskipti.
Þeir voru smáir og kúptir, óreglulega
skipt niður og lágu langt út frá húsunum.
Akrarnir höfðu verið ræktaðir smátt og
smátt í hundruð ára, en aðeins smáspild-
ur í einu. Þeir voru illa ræktaðir og þétt
vaxnir illgresi. Hin myndin var af sjálf-
stæðum nútíma bóndabæ, með fallegum
ökrum, skrúðgarði, verkfærum, girðing-
um, malbikuðum þjóðvegi og rafiínu.
Þessar tvær ólíku „myndir“ gáfu góða
og skjóta hugmynd um tvenn tímabil í
þróunarsögu jarðræktarinnar, þar mætt-
ist gamli og nýi tíminn í dönskum land-