Freyr - 01.11.1938, Side 8
166
FRE YR
t>Forevisningsringen“.
búnaði: Kyrrstaða og framfarir. Gamli
tíminn, sem bar vott um trúleysi á mögu-
leikana, er aftur skapaði ýmsa erfiðleika,
sem fólk trúði að ekki yrðu læknaðir með
neinum ráðum, og sízt með breytingum og
nýungum frá hinum aldagömlu venjum.
Mynd nýja tímans bar vott um flest
hið mótsetta. Hún bar vott um bjartsýni
bændanna og trú á möguleikana. Hún bar
bændunum ennfremur fagurt vitni fram-
fara og menningar síðustu tíma, um dugn-
að þeirra og elju, og skilning á tækni og
vísindum nútímans.
b. Húsdýraræktin.
Fyrir tæpri öld síðan höfðu menn mjög
lítið rannsakað lífeðlisfræði dýranna,
hvorki efnaskifti líkama þeirra, eða verð-
mæti fóðurefnanna, en á síðari hluta 18.
aldarinnar urðu Danir brautryðjendur á
þessu sviði, með docent N. J. Fjord í
broddi fylkingar. Síðustu áratugina hef-
ir próf. Möllgaard, við landbúnaðarhá-'
skólann í Kaupmannahöfn, gert mjög
merkar rannsóknir á sviði fóðurfræðinn-
ar. Þróun þessa mikilvæga þáttar búnað-
arins var á sýningunni fyrirkomið með
þeim fullkomnustu tækjum, sem nú
þekkjast. Þar voru beinagrindur úr hús-
dýrum, sem höfðu þjáðst af steinefna-
vöntun og bætiefnaskorti í fóðri. Einnig
lifandi svín með beinkröm og fleiri fóður-
sjúkdóma. Efnarannsóknarstofa og dýra-
spítali, með mjög fullkomnum áhöldum.
Danir hafa nú í 100 ár lagt mikla vinnu
og mikið fje í kynbætur húsdýra sinna.
Þeim hefir orðið geysi mikið ágengt í því
efni. Kýrnar hafa á síðustu 100 árum allt
að því þrefaldað nytina.
Árið 1930 var haldin landbúnaðarsýn-
ing í Kaupmannahöfn, og stóð allt Sjá-
land að henni. Bezta nautið á þeirri
sýningu var af rauða danska mjólkur-
kyninu og hlaut þar heiðursverðlaun
konungs. Síðan hafa hálfsmánaðar gaml-
ir nautkálfar undan þe'ssu nauti selzt