Freyr - 01.11.1938, Blaðsíða 10
168
FRE YR
sölurnar, til þess að bæta búpeninginn.
Þeir geta nú lagt tölurnar á borðið, með
skýrslum og ættbókum, sem tala sínu
máli til afkomendanna og gefa þeim
fastan grundvöll að starfa á.
Bezta kynbótanautið á sýningunni í ár
var hálfbróðir konungsverðlaunanauts-
ins 1930, og er af danska rauða mjólk-
urkyninu.
Danskt svínakjöt (Bacon) er það
bezta, sem ennþá flyzt á enskan markað.
Józki dráttarhesturinn stendur jafnfætis
beztu hestakynjum heimsins.
Það munu margir sýningargestanna
hafa litið svo á, að húsdýr þau, sem sýnd
voru, hafi verið það, sem sýningin hafi
fyrst og fremst hlotið frægð sína fyrir.
Það er heldur ekki ósennilegt að svo hafi
verið. Miðdepill sýningarsvæðisins var
einskonar hringleikssvið („Forevisnings-
ringen“) (sjá mynd), þar sem sýning-
argripirnir voru leikendur. Það var til-
komumikil sjón að sjá þar í skipulögðum
röðum á 9. hundrað úrvals nautgripi, um
300 hesta, spriklandi af fjöri og gljáw
andi sem sllki. Það var sjón, sem aldrei
gleymist og það hlaut að vekja hrifningu
allra áhorfenda og stolt bændanna. Það
hrífur alla bændurna með. Þeir, sem ekki
höfðu haft trú á kynbótum og ræktun
eða góðri meðferð húsdýranna, sann-
færðust hér um gildi þess. Þetta var e. t.
v. sterkasti þáttur sýningarinnar fyrir
danska bændur, sem hana sóttu. Búfjár-
sýningar yfirleitt gera ávalt sitt mikla
gagn á þann hátt, að auka samkeppni
á milli beztu bændanna, og auka áhuga
hjá þeim, sem skemmra eru komnir, sbr.
grein mína ,,Frá Danmörku“ í 31. árg.
Freys, bls. 196.
Bellahöj-sýningin mun ekki að-
eins um aldur og æfi verða dönskum
bændum til mikils sóma, heldur mun
hún einnig verða þeim til varanlegrar
Kvillar í sumar.
Talsverð brögð urðu að ýmsum plöntu-
kvillum í sumar. — Var kálmaðkurinn
verstur viðfangs hér í Reykjavík. Eyði-
lagði hann mikið af káli, einkum blóm-
káli, og nagaði auk þess rófur allmikið.
Framan af sumri nagaði maðkurinn rót-
arkál jurtanna svo þær visnuðu og ultu
um koll. Síðar át hann sig inn í rófurnar
sem eftir lifðu, svo þær urðu allmjög
maðksmognar. Mun maðkurinn nú einn-
ig kominn til Akureyrar og Blönduóss.
Helsta varnarráðið er að vökva kring-
um plönturnar með sublimtvatni, þegar
egg kálflugunnar sjást. Eggin eru við
rótarháls jurtanna, rétt neðan við yfir-
borð moldarinnar. Eru eggin hvít, aflöng
og vel sjáanleg með berum augum. Nokk-
ur vörn er í því að bera sót í garðana.
Svo er sjálfsagt að treysta ekki á blóm-
kálið eingöngu, en rækta einnig græn-
kál, hvítkál og toppkál, sem betur þola
áhlaup maðkanna en blómkálið. í garði
Atvinnudeildarinnar voru Gautarófur
minna skemmdar af maðkinum en aðrar
rófutegundir. Er vert að gefa gætur að
þessu framvegis, því ekki er víst að allar
teg. séu jafnnæmar fyrir maðkinum. (1
sumar sáust fyrstu kálflugueggin seint í
júní). Bórvöntunar varð einnig vart í
rófum. Annars uxu Gautarófur, íslenzk-
uppbyggingar í áframhaldandi lífsbar-
áttu þeirra.
Runólfur Sveinsson.